Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2012, Blaðsíða 154

Náttúrufræðingurinn - 2012, Blaðsíða 154
Náttúrufræðingurinn 154 ekki minna en helmingur þess hafi orðið fyrir breytingum vegna fram- ræslu. Þetta hlutfall er mun hærra á láglendi en hálendi. Gera má ráð fyrir að framræslan hafi raskað 4–5 þús. km2 af mýrum, eða sem nemur um 5% af flatarmáli landsins. Fram- ræsla mýranna hefur, líkt og eyðing gróðurs og jarðvegs, valdið stór- felldum breytingum. Við lækkun grunnvatns breytist jarðvegur mýr- anna þegar kolefni losnar, auk þess sem breytingar verða á lífríki. Nýting jarðvarmans Á síðari hluta 20. aldar var farið að hita húsakost landsmanna með jarðvarma í stórum stíl. Borað var eftir heitu vatni á jarðhitasvæðum í nágrenni þéttbýlissvæða. Við dæl- ingu úr borholum þornuðu hverir og heitar laugar víða, t.d. í Mosfells- sveit, Reykjavík og Eyjafirði. Orkuvinnsla á háhitasvæðum hefur farið vaxandi síðustu áratugi og nú hefur flestum háhitasvæðum utan miðhálendisins verið raskað að meira eða minna leyti með bor- unum og virkjunarframkvæmdum. Í sumum tilvikum hefur orku- vinnslan haft bein áhrif á jarðhitann á yfirborði en mest eru áhrifin af bor- unum, vegagerð, pípulögnum, hús- byggingum og raflínum (4. mynd). Jarðefnavinnsla – stein-/fyllingarefni Við framkvæmdir er yfirleitt mikil þörf fyrir jarðefni á borð við sand, möl, jökulruðning og jafnvel stór- grýti. Þessi jarðefni eru yfirleitt nefnd steinefni eða fyllingarefni. Þau eru t.d. notuð til fyllingar undir götur og vegi, í húsgrunna, steinsteypu, landfyllingar og varnargarða. Vél- væðingunni fylgdu stórstígar fram- farir í allri mannvirkjagerð. Í byrjun voru nýtt þau fyllingarefni sem auðveldast var að ná með minni tækjum. Mikið var unnið úr fornum sjávarhjöllum og jökulmyndunum en einnig úr virkum jarðmynd- unum á borð við áreyrar, aurkeilur og skriður. Gjallgígar reyndust auðunnir og hurfu þeir að stórum hluta í nágrenni þéttbýlis fyrir 1970. Smám saman urðu tækin öflugri og þar sem lausu jarðefnin gengu til þurrðar var farið að vinna fyll- ingarefni úr berggrunni. Kargi var hreinsaður ofan af apalhraunum og bólstraberg unnið þar sem slíkt hentar. Nú er jafnvel farið að vinna þykk basalthraunlög í fyllingarefni. Breytingar á straumvötnum og stöðuvötnum Virkjun vatnsfalla til vinnslu raf- orku fylgir að jafnaði rennslisjöfnun úr miðlunarlónum ofarlega í far- vegi ánna. Þetta á einkum við um jökulár. Þorri framburðarefna sest til í lónunum og við það gerbreytist eðli vatnsfallanna þannig að í stað þess að þau setji af sér efni niður eftir farveginum allt til sjávar taka þau til við að rjúfa úr honum laust efni og leita eftir nýju jafnvægi. Flóð heyra yfirleitt sögunni til. Við þetta bætist hvers kyns mannvirkjagerð í farveginum, breytingar á rennsl- isleiðum o.fl. Þannig hefur farvegi Þjórsár og Jökulsár á Dal verið raskað nánast frá upptökum og stórum hluta af farvegi Blöndu, Jök- ulsár í Fljótsdal/Lagarfljóts, Köldu- kvíslar og Tungnaár. Stöðuvötn hafa verið nýtt til vatnsmiðlunar, með tilheyrandi vatnsborðssveiflum, t.d. Þingvallavatn, Skorradalsvatn og Þórisvatn. Algengt er að hróflað hafi verið við farvegum straumvatna vegna vega- gerðar og fleiri mannlegra athafna. Jökulám er eðlilegt að flæmast um áreyrar, en víða hefur þeim verið þröngvað með görðum í ákveð- inn farveg þar sem þeim er veitt undir brýr, framhjá ræktarlöndum o.s.frv. Slíkt getur valdið stórfelldri röskun á hinu virka myndunarferli árauranna, bæði ofan og neðan við framkvæmdasvæðið. Nú er rennsli stýrt að stórum hluta m.a. um aura Markarfljóts, Kúðafljóts, Klifandi, Múlakvíslar og Jökulsár í Lóni. Hér verða ekki tíundaðir fleiri þættir í hnignun jarðminja hér á landi þótt af nógu sé að taka. Hin (stein)dauða náttúra – hugtök og skilgreiningar Um allan heim hefur náttúruvernd síðustu áratugina mikið til snúist um málefni lífríkisins. Hin dauða eða lífvana náttúra, sem saman- stendur af innri og ytri gerð berg- og jarðgrunns, hefur að mestu orðið útundan. Í daglegu máli er berg- grunnurinn iðulega aðeins nefndur „klöpp“ eða „fast“ (sbr. grafa niður á fast). Hann nær víða til yfirborðs og því meir sem ofar dregur í landi. Á 4. mynd. Jarðvarmanýting við Kröflu. – Geothermal exploitation at Krafla. Ljósm./Photo: Sigmundur Einarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.