Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 154
Náttúrufræðingurinn
154
ekki minna en helmingur þess hafi
orðið fyrir breytingum vegna fram-
ræslu. Þetta hlutfall er mun hærra
á láglendi en hálendi. Gera má ráð
fyrir að framræslan hafi raskað 4–5
þús. km2 af mýrum, eða sem nemur
um 5% af flatarmáli landsins. Fram-
ræsla mýranna hefur, líkt og eyðing
gróðurs og jarðvegs, valdið stór-
felldum breytingum. Við lækkun
grunnvatns breytist jarðvegur mýr-
anna þegar kolefni losnar, auk þess
sem breytingar verða á lífríki.
Nýting jarðvarmans
Á síðari hluta 20. aldar var farið
að hita húsakost landsmanna með
jarðvarma í stórum stíl. Borað var
eftir heitu vatni á jarðhitasvæðum
í nágrenni þéttbýlissvæða. Við dæl-
ingu úr borholum þornuðu hverir
og heitar laugar víða, t.d. í Mosfells-
sveit, Reykjavík og Eyjafirði.
Orkuvinnsla á háhitasvæðum
hefur farið vaxandi síðustu áratugi
og nú hefur flestum háhitasvæðum
utan miðhálendisins verið raskað
að meira eða minna leyti með bor-
unum og virkjunarframkvæmdum.
Í sumum tilvikum hefur orku-
vinnslan haft bein áhrif á jarðhitann
á yfirborði en mest eru áhrifin af bor-
unum, vegagerð, pípulögnum, hús-
byggingum og raflínum (4. mynd).
Jarðefnavinnsla – stein-/fyllingarefni
Við framkvæmdir er yfirleitt mikil
þörf fyrir jarðefni á borð við sand,
möl, jökulruðning og jafnvel stór-
grýti. Þessi jarðefni eru yfirleitt nefnd
steinefni eða fyllingarefni. Þau eru
t.d. notuð til fyllingar undir götur
og vegi, í húsgrunna, steinsteypu,
landfyllingar og varnargarða. Vél-
væðingunni fylgdu stórstígar fram-
farir í allri mannvirkjagerð. Í byrjun
voru nýtt þau fyllingarefni sem
auðveldast var að ná með minni
tækjum. Mikið var unnið úr fornum
sjávarhjöllum og jökulmyndunum
en einnig úr virkum jarðmynd-
unum á borð við áreyrar, aurkeilur
og skriður. Gjallgígar reyndust
auðunnir og hurfu þeir að stórum
hluta í nágrenni þéttbýlis fyrir 1970.
Smám saman urðu tækin öflugri
og þar sem lausu jarðefnin gengu
til þurrðar var farið að vinna fyll-
ingarefni úr berggrunni. Kargi var
hreinsaður ofan af apalhraunum
og bólstraberg unnið þar sem slíkt
hentar. Nú er jafnvel farið að vinna
þykk basalthraunlög í fyllingarefni.
Breytingar á straumvötnum og
stöðuvötnum
Virkjun vatnsfalla til vinnslu raf-
orku fylgir að jafnaði rennslisjöfnun
úr miðlunarlónum ofarlega í far-
vegi ánna. Þetta á einkum við um
jökulár. Þorri framburðarefna sest
til í lónunum og við það gerbreytist
eðli vatnsfallanna þannig að í stað
þess að þau setji af sér efni niður
eftir farveginum allt til sjávar taka
þau til við að rjúfa úr honum laust
efni og leita eftir nýju jafnvægi. Flóð
heyra yfirleitt sögunni til. Við þetta
bætist hvers kyns mannvirkjagerð
í farveginum, breytingar á rennsl-
isleiðum o.fl. Þannig hefur farvegi
Þjórsár og Jökulsár á Dal verið
raskað nánast frá upptökum og
stórum hluta af farvegi Blöndu, Jök-
ulsár í Fljótsdal/Lagarfljóts, Köldu-
kvíslar og Tungnaár. Stöðuvötn hafa
verið nýtt til vatnsmiðlunar, með
tilheyrandi vatnsborðssveiflum, t.d.
Þingvallavatn, Skorradalsvatn og
Þórisvatn.
Algengt er að hróflað hafi verið við
farvegum straumvatna vegna vega-
gerðar og fleiri mannlegra athafna.
Jökulám er eðlilegt að flæmast um
áreyrar, en víða hefur þeim verið
þröngvað með görðum í ákveð-
inn farveg þar sem þeim er veitt
undir brýr, framhjá ræktarlöndum
o.s.frv. Slíkt getur valdið stórfelldri
röskun á hinu virka myndunarferli
árauranna, bæði ofan og neðan við
framkvæmdasvæðið. Nú er rennsli
stýrt að stórum hluta m.a. um aura
Markarfljóts, Kúðafljóts, Klifandi,
Múlakvíslar og Jökulsár í Lóni.
Hér verða ekki tíundaðir fleiri
þættir í hnignun jarðminja hér á
landi þótt af nógu sé að taka.
Hin (stein)dauða
náttúra – hugtök og
skilgreiningar
Um allan heim hefur náttúruvernd
síðustu áratugina mikið til snúist
um málefni lífríkisins. Hin dauða
eða lífvana náttúra, sem saman-
stendur af innri og ytri gerð berg-
og jarðgrunns, hefur að mestu orðið
útundan. Í daglegu máli er berg-
grunnurinn iðulega aðeins nefndur
„klöpp“ eða „fast“ (sbr. grafa niður á
fast). Hann nær víða til yfirborðs og
því meir sem ofar dregur í landi. Á
4. mynd. Jarðvarmanýting við Kröflu. – Geothermal exploitation at Krafla. Ljósm./Photo:
Sigmundur Einarsson.