Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 57

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 57
57 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags varmagjafanum og breytist í gufu, sem stígur upp og hitar grunnvatns- strauminn að suðu og alla leið til yfirborðs þar sem gufuuppstreymið er mest, en þar sem það er tregara þéttist öll gufan á leiðinni þannig að efst nær grunnvatnið ekki að hitna að suðumarki. Gufupúði í rótum háhitakerfa gæti stafað af því að írennsli í ræt- urnar sé tregt miðað við varmaflæðið frá varmagjafanum, en það þarf þó ekki að vera svo. Ef lekt er góð getur hræringin falið í sér að vatn sígi niður að varmagjafanum, og þegar það sýður stígur gufan upp vegna þess að hún er mun eðlisléttari en vatnið. Bestu skilyrðin fyrir einvíða hræringu af þessu tagi verða þegar botnhiti er nokkru lægri en krítískur hiti (374°C) vegna þess að þá er seigja vatnsins lítil og mikill munur á eðlisþyngd vatns og gufu.44,45 Önnur háhitakerfi eru þannig að við botn hræringar vatnsins er hiti undir suðumarki, t.d. á Reykjanesi og í Svartsengi. Varmaflutningur frá hitagjafa þessara kerfa er ekki eins skilvirkur og í einvíðum hræring- arkerfum, sem einkennast af niður- streymi vatns og uppstreymi gufu.44 Eins og áður var nefnt liggja inn- skot grunnt í virkum háhitakerfum, svo grunnt að þrýstingur vatnssúlu nær ekki krítískum þrýstingi fyrr en komið er niður í varmagjafann, þ.e. á 3,5 km dýpi fyrir ferskvatnskerfi og 5,2 km fyrir jarðsjó46 (7. mynd). Sömu sögu er að segja um forn háhitakerfi ef miðað er við upphaf- legt yfirborð jarðar þegar þessi kerfi voru virk. Lægi varmagjafinn dýpra gæti yfirkrítískur vökvi vissulega myndast, en eigi hræringarkerfi að ná hærri hita og þrýstingi en svarar til krítíska punktsins verður hiti og þrýstingur að breytast þannig með dýpi að eðlisþyngd yfirkrítíska vökvans fari lækkandi með vax- andi dýpi. Gerist það ekki nær botn hræringar aðeins upp undir krítíska punktinn (374°C) og botnhiti verður því lægri en krítískur hiti. Súr vökvi og kvikugös Súr vökvi er vel þekktur í djúpum borholum í allmörgum háhita- kerfum í heiminum.48–50 Það sem veldur því að djúpvatn í háhita- kerfum er súrt er annaðhvort salt- sýra (HCl) eða bísúlfat (HSO-4) eða báðar þessar sýrur. Þótt bísúlfat sé sterk sýra við lágan hita er hún veik sýra við háan hita. Þess vegna er bí- súlfat-vatn ekki súrt við háan hita, en það verður súrt við að kólna með þrýstifallssuðu. Andstætt bí- súlfati er saltsýra sterk sýra við öll hitastig.46 Sýrugjafarnir eru ýmist kvika eða þurr gufa. Í fyrra tilfellinu leiðir afgösun kviku af vetnisklóríði (HCl) til þess að vatnið næst varma- gjafanum verður súrt vegna þess að vetnisklóríð myndar saltsýru þegar það leysist upp í vatni. Á sama hátt getur brennisteinstvíoxíð (SO2) frá kviku haft það í för með sér að vatn við holutopp og eitthvað niður eftir holunni verður súrt, því að það myndar bísúlfat (brennisteinssýru) við að leysast upp í vatni. SO2 er torleyst í kviku en HCl tiltölulega auðleyst. Því tapast SO2 fljótt úr kvikunni en HCl treglega og jafnvel lítið. En vetnisklóríð er gufuleitið við háan hita, sérstaklega þegar vatnið er salt. Ef gufa með HCl þétt- ist verður þéttivatnið súrt. Myndist yfirhituð gufa við þurreimingu á vatni eru líkur á að það klóríð sem var í vatninu leiti í gufuna sem HCl, því að efnasambönd af klóríði eru auðleyst í vatni og því situr klóríðið ekki eftir í berginu í steindum þegar vatnið þurreimast. Þegar fersk kvika treðst inn í rætur háhitakerfa hefur hún til- hneigingu til að afgasast, allt eftir magni gass í kvikunni og því dýpi 6000 5000 4000 3000 2000 1000 0 100 200 300 400 D ýp i – D ep th ( m ) Hiti – Temperature (°C) Hreint vatn – Pure water 374°C 221 bar 405°C 302 bar Sjór – Sea water 7. mynd. Suðumarks- ferill fyrir hreint vatn og sjó (3,2% NaCl-lausn). Frá Helga Björnssyni47 og Stefáni Arnórssyni o.fl.46 – Boiling point curve with depth for pure water and seawater (3.2% NaCl-solution). From Björnsson47 and Arnórsson et al.46 6. mynd. Einfaldað snið af háhitakerfi með gufupúða yfir kviku-varmagjafa. Þessi mynd á sérstaklega við um Kröflu og sýnir varmagjafann (kvikuinnskot), leiðnilagið milli kviku og botns jarðhitakerfisins, gufu- púðann yfir því og loks svonefnd neðra og efra kerfi. Vatnið í neðra kerfinu er gufu- hitað og við suðu (tvífasa) en í efra kerfinu er hiti undir suðumarki. – Simplified sec- tion through a high-temperature system with a vapor-dominated zone above the magma heat source. This section refers spe- cifically to the Krafla system and shows the magma intrusion, the conductive layer be- tween magma and the bottom of the hydrothermal system, the vapor zone above this layer and the above-lying lower two-phase and the upper sub-boiling reservoirs, respectively. Leiðnilag - Conductive layer Kvika - Magma Gufupúði - Vapor zone Neðra kerfi - Two-phase zone Efra kerfi - Sub-boiling zone Gufuhver - Fumarole Lek sprunga - Permeable fracture
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.