Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 60
Náttúrufræðingurinn
60
Lághitakerfi
Jarðhiti á flestum lághitasvæðum
tengist ungum sprungum í eldri
berggrunni. Sannanlega hefur orðið
hreyfing á sumum þessara sprungna
á nútíma.20 Á sumum svæðum hefur
fundist jarðhitavatn með borunum
þótt jarðhiti á yfirborði sé enginn.
Þessi kerfi, a.m.k. sum þeirra, hafa
verið nefnd dulinn lághiti. Þau virð-
ast, a.m.k. á Suðvesturlandi og í
Skagafirði, tengjast ungum sprungu-
reinum sem teygja sig út úr gosbelt-
unum yfir í eldra berg.56 Þá er lághiti
þekktur innan virku gosbeltanna,
einkum sunnan Hofsjökuls og suð-
vestan Tungnafellsjökuls (8. mynd).
Sprungumyndun í berggrunni
frá kvarter og neógen (síðtertíer)
orsakast af spennuástandi í jarð-
skorpunni sem tengist gliðnunar-
stefnu í rekbeltunum miðað við
flekaskilin og færslu rekbeltanna.57
Ungar sprungur eru miklu algeng-
ari í Norður-Ameríku- og Hreppa-
flekunum en á Evrasíuflekanum, og
því er lághiti miklu algengari þar
(8. mynd). Hiti samkvæmt efna-
hitamælum er hæstur og rennsli úr
hverum mest sitt hvorum megin
við gosbeltið suðvestanlands en á
heildina litið lækkar bæði hiti og
rennsli með fjarlægð frá gosbelt-
unum (9. mynd). Hiti í berggrunni
á lághitasvæðunum sýnir vensl við
hitastigul (10. mynd). Talið er að
þessi vensl endurspegli að grunn-
vatn sígi oft niður á svipað dýpi í
berggrunn og sprungur ná. Það nær
þeim mun hærri hita sem hitastig-
ullinn er hærri.
Í sumum tilfellum tengist lághit-
inn sprungum sem liggja skástígt
á flekaskilin og út úr gosbeltunum.
Krýsuvíkursprungureinin liggur
þannig um Hjalla í Heiðmörk yfir
í Mosfellsdal og hugsanlega nær
Reykjanessprungureinin alla leið í
Laugarnes í Reykjavík59 (11. mynd).
Á ofanverðu Suðurlandsundirlendi
tengist lághitinn við Laugarvatn og á
Efri-Reykjum NNA-sprungum í gos-
beltinu, sem teygja sig út úr því suður
í Hreppaflekann, og í Skagafirði
liggur sprungurein skáhallt suður
og vestur yfir dalinn í framhaldi
12. mynd. (A) Samband klór-
íðs við tvívetni í jarðhita-
vatni í borholum á Skeiðum
og í Grímsnesi. (B) Tvívetni
og súrefni-18 í sama vatni.
Talið er að venslin í (A) or-
sakist af blöndu tveggja þátta,
annars vegar úrkomu eins og
hún er nú (blár punktur) og
hins vegar af vatni sem er
blanda af sjó og ísaldarvatni
sem seig niður í berggrunn-
inn í ísaldarlok og á ísöld.
Línan sýnir hlutfall tvívetnis
og klóríðs í þessari blöndu en
ekki hvar hún er á línunni. –
(A) Chloride versus deuteri-
um in geothermal well waters
in Skeid and Grímsnes (S-
Iceland). (B) Deuterium and
oxygen-18 in the same wa-
ters. It is considered that the
correlation in part (A) is the
consequence of mixing of
two endmember components,
modern precipitation and a
component that is a mixture
of seawater and fresh ice-age
water that infiltrated the
bedrock at the end of the last
glaciation and during the ice
age. The line shows the ratio
of seawater and ice age water
in the component but not
where it is located on the
line.
11. mynd. Lághitasvæði Orkuveitu Reykjavíkur og sprungureinarnar sem taldar eru skapa
hina góðu lekt í þessum kerfum. – Low-temperature systems utilized by Reykjavík Energy
and the fissure systems considered to create the good permeability in these systems.
Skjálftabelti / plötumót
– Seismic zone / Plate boundary
Kjalarnes
Br
en
nis
tei
ns
fjö
ll
He
ng
ill
Kr
ísu
vík
Re
ykj
an
es
10 km
ViðeySprungurein – Fissure swarm
Lághitasvæði
– Low-temperature field
Stardalur
-100
-90
-80
-70
-60
0 100 200 300 400 500 600
-100
-90
-80
-70
-60
-14 -13 -12 -11 -10 -9 -8
Úrkomulína
– Global
meteoric line
A
B
Tv
ív
et
ni
–
D
eu
te
riu
m
(‰
)
Tv
ív
et
ni
–
D
eu
te
riu
m
(‰
)
Súrefni-18 – Oxygen-18 (‰)
Klórí – Chloride (mg/kg)
A
B