Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 69

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 69
69 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags það kerfið 500 ár að jafna sig, þ.e. endurnýja sig. Mat þeirra Sanyal16 og O'Sullivan o.fl.15 gerir ráð fyrir að varmaflæði frá varmagjafanum haldist stöðugt allan vinnslu- og endurnýjunartímann. Þótt svo væri er ekki víst að þetta varmaflæði nýt- ist allt til að hita upp það berg sem kólnaði á vinnsluskeiði, heldur eru líkur á að hluti þessa varma tapist til yfirborðs. Því verður endurnýj- unartíminn lengri en þeir gera ráð fyrir. Ekki er heldur víst að nátt- úrulegt varmatap nýtist vinnslu á háhitasvæðum. Að minnsta kosti sýnir reynslan að ekki tekur fyrir náttúrulegt varmatap á yfirborði háhitasvæða við nýtingu þeirra. Þessu er öfugt farið með lághita. Við umfangsmikla vinnslu þorna hverir og laugar oft, og ætla verður að það vatn sem áður streymdi í þessar uppsprettur nýtist vinnslunni. Allmikið hefur verið ritað um sjálf- bæra nýtingu jarðhitakerfa16,79 og ýmsar skilgreiningar hafa verið not- aðar fyrir sjálfbæra nýtingu.5,16,79,80 Guðni Axelsson o.fl.79 telja nýtingu einstakra jarðhitakerfa sjálfbæra ef þau endast í 100–300 ár. Guðmundur Pálmason, sem er einn af höfundum greinar Guðna Axelssonar o.fl.,79 skilgreinir þó sjálfbæra nýtingu jarð- hita með nokkuð öðrum hætti í Jarðhitabók sinni.5 Sanyal16 gagn- rýnir nokkuð ákveðið skilgreiningu Guðna Axelssonar o.fl.79 og leggur til aðra skilgreiningu, byggða á raunhæfum hagkvæmniviðhorfum. Skilgreining Sanyal16 er þó varla í anda viðtekinnar skilgreiningar á sjálfbærni. Það er ekki innan ramma þessa greinarstúfs að fjalla um sjálfbæra þróun. Hún er ekki sambærileg við greiningu á því hvort einstök jarðhitakerfi teljast fremur endur- nýjanleg auðlind en endanleg. Sú greining byggist á því að skilja eðli þessarar auðlindar. En á bak við hugtakið um sjálfbæra þróun liggur ákveðinn siðaboðskapur gagnvart komandi kynslóðum. Hugtakið um sjálfbæra þróun festist í sessi eftir ráðstefnuna í Rio de Janeiro árið 1992 og hefur það verið skilgreint svo:81 „Þróun sem mætir þörfum sam- tímans án þess að draga úr mögu- leikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum.“ Sjálfbær þróun tekur mið af þremur þáttum: (1) efnahag, (2) félagslegum þáttum og jöfnuði og (3) varðveislu umhverfisins. En undir 3. þáttinn heyra auðlindir jarðar eins og jarðhitinn. Sam- kvæmt þessu er í raun ekki rökrétt að tala um sjálfbæra nýtingu endan- legrar orkulindar því hún eyðist eftir því sem af henni tekið. Öðru máli gæti gegnt um jarðefni ef þau eru endurunnin. Ef til vill er vinnsla og notkun gulls besta dæmið um sjálfbæra þróun slíks jarðefnis, og það um þúsundir ára. Það liggur í því að gull hefur alla tíð verið talið verðmætt og þess vegna er því ekki hent. Vafalítið er langmest af því gulli sem unnið hefur verið enn í „umferð“, og það kostar sáralitla orku að endurvinna það. Af þeim sökum hafa „komandi“ kynslóðir um langan tíma getað notið þess gulls sem forfeður þeirra hafa tekið úr náttúrunni. Helstu niðurstöður Einstök jarðhitakerfi, sama hvaða flokki þau tilheyra, geta ekki talist til endurnýjanlegra orkulinda eðlis- fræðilega séð nema nýtingin byggist á sjálfrennsli úr laugum eða hverum. Ef nýting með borunum er umfangs- mikil, þ.e. langt umfram náttúrulegt varmatap, er endurnýjun svo hæg að oft munar lítið sem ekkert um hana og stundum verður engin endur- nýjun. Evrópusambandið og Orkumála- ráðuneyti Bandaríkjanna flokka jarð- varma sem endurnýjanlega orkulind. Ástæðan virðist ekki vera sú að þessi orkuuppspretta sé talin endurnýjan- leg í eðli sínu, heldur er hún sett í flokk með endurnýjanlegum orku- lindum vegna þess að jarðvarminn er tiltölulega vistvænn og öll áhersla er lögð á að draga úr brennslu jarð- efnaeldsneytis vegna þeirra hnatt- rænu breytinga sem hún veldur. Auk þess er ástæða til að reyna að þróa tækni til að nýta varmaorku úr heitu, óleku bergi því takist það hefur opnast gífurlega stór varma- náma. Af þessum sökum er rökrétt að leggja áherslu á aukna nýtingu jarðvarma á veraldarvísu. Umhverfisáhrif af nýtingu lág- hita eru sáralítil en geta verið tals- verð af nýtingu háhita, og þá helst jarðrask og efnamengun, vegna vatns- og gufuborinna eiturefna. Fjölnotkun jarðvarma eins og á Nesjavöllum og í Svartsengi er í anda sjálfbærrar þróunar en nýting jarðgufu til raforkuframleiðslu ein- göngu er það naumast því varma- orka auðlindarinnar er illa nýtt, en hana má nýta mjög vel með fjöl- notkun. Þegar áform um nýtingu jarðhita á tilteknu svæði verða að veruleika ríkir óvissa um árangur, stærð virkj- unar og hvenær hún verði gangsett. Auk þess er óvissa um stofnkostnað. Þessi staðreynd hefur leitt til ákveð- ins verklags við undirbúning að nýt- ingu jarðvarma.82 Þegar jarðhitakerfi eru tekin í notkun er ekki vitað hversu stór varmanáman er og þar með ending- artími kerfisins miðað við ákveðna vinnslu. Eftirlitsmælingar á við- brögðum jarðhitakerfis við vinnslu- álagi, sérstaklega með tilliti til kalds írennslis, veita mikilvægar upplýs- ingar um endinguna. Varmagjafi ungra háhitakerfa er kvika eða innskot sem enn eru mjög heit þótt kvikan hafi náð að storkna. Varmagjafi lághitakerfa er heitt berg í rótum þeirra. Öll háhitakerfi og mörg lághita- kerfi eru svonefnd hræringarkerfi. Hræringin, þ.e. hringrás vatns (og gufu), er knúin með eðlisþyngdar- mun á köldu grunnvatni sem sígur niður og heitum vökva (gufu og/ eða vatni) sem streymir upp. Kalda grunnvatnið sígur niður rétt utan kerfanna eða beint ofan í þau. Upp- streymi jarðhitavökva verður þar sem lekt bergsins er best. Stundum getur hræring falið í sér að vatn streymi niður að varmagjafanum og sjóði þar yfir í gufu sem stígur upp í efri jarðlög og til yfirborðs. Þesskonar hræring verður þar sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.