Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 82
Náttúrufræðingurinn
82
Sjávarstöðubreytingar
Allt frá því að jökulskildir megin-
landanna tóku að bráðna og sjávar-
mál stóð lægst á síðasta jökulskeiði,
fyrir um 21.500 árum og þar til fyrir
um 6.800 árum, hækkaði yfirborð
heimshafanna um 120–130 m.77,78 Á
sama tíma bráðnaði ísaldarjökullinn
yfir Íslandi og var hann að mestu
horfinn fyrir um 8.600 árum.2,79 Í
lok síðasta jökulskeiðs réðst sjávar-
staða á Íslandi annars vegar af
því að yfirborð heimshafanna var
stöðugt að hækka, en þó misjafn-
lega hratt, og hins vegar af flotjafn-
vægishreyfingum, þ.e.a.s. af því
hvort jarðskorpan var að rísa eða
síga undan breytilegu fargi jökla á
landinu. Vegna sérstakra eiginleika
jarðskorpunnar undir Íslandi og
lágrar seigju í deighveli möttulsins
verður svörun við öllum breytingum
á jökulfargi hérlendis tafarlaus og
mjög hröð. Að framan hefur því
verið lýst hvernig jökulskjöldurinn
yfir landinu minnkaði hratt í upp-
hafi síðjökultíma og efstu og jafn-
framt elstu fjörumörk á landinu
urðu til. Tímabundinn vöxtur jökul-
sins á yngra Dryas- og Preboreal-
skeiði1,2,29 varð þess valdandi að
landið seig hratt undan vaxandi
fargi og við það gekk sjór á land
þegar afstætt sjávarborð hækkaði
svo nam tugum metra.2 Á 9. mynd
er rakinn líklegur ferill afstæðra
sjávarborðsbreytinga á Vestur- og
Suðvesturlandi.
Á Vestur- og Suðvesturlandi
mynduðust elstu og jafnframt efstu
fjörumörk frá síðjökultíma í Stóra-
Sandhóli í Skorradal í 150 m h.y.s.
fyrir um 14.600 árum.36 Jafnaldra
fjörumörk má finna í um 125 m h.y.s.
í Leirársveit sunnan Skarðsheiðar
og í um 105 m h.y.s. í austanverðu
Akrafjalli þar sem þau hafa einnig
verið aldursákvörðuð.2,36,37 Í dag
fer hæð þessara fjörumarka yfir sjó
vaxandi svo nemur um 2,2 m fyrir
hvern km í átt að miðju landsins.
Ástæða þess að hæð jafnaldra fjöru-
marka fer vaxandi inn til landsins er
sú að farg jökulskjaldarins var mest
yfir miðju landinu þar sem hann var
þykkastur, eða allt að 2.000 m. Þar
seig landið mest, en landsigið varð
minna úti við strendur landsins þar
sem þykkt og farg jökulsins var mun
minna.35 Þegar jökulskjöldurinn
bráðnaði og rýrnaði tók land að rísa
undan minnkandi jökulfargi, og reis
landið þeim mun meira sem jökull-
inn hafði áður verið þykkari. Þessu
landrisi var langt í frá lokið þegar
efstu og elstu fjörumörk mynduðust,
en að sjálfsögðu mynduðust þau í
upphafi lárétt. Í dag hallar þessum
jafnaldra fjörumörkum einfaldlega
vegna þess að sá hluti þeirra sem
er nær miðju landsins hefur í ald-
anna rás risið meira en sá hluti sem
er nær ströndinni. Þá hallar einnig
strandlínum frá síðjökultíma mis-
mikið, þ.e.a.s. þær eldri eru halla-
meiri en þær yngri. Ástæður þessa
eru þær að landið hefur risið mun
meira og lengur frá því að eldri
strandlínurnar mynduðust en þær
yngri. Sem dæmi um þennan mun
má nefna halla á strandlínu forns
jökullóns í Fnjóskadal á Norður-
landi sem er 2,65 m/km; halli yngra
jökullóns í sama dal er hins vegar
1,59 m/km, en þessar strandlínur
mynduðust báðar á seinni hluta
yngra Dryasskeiðs.18,60 Í Eyjafirði
er halli efstu fjörumarka á bilinu
0,4–0,6 m/km enda eru þau allt
9. mynd. Afstæðar sjávarborðsbreytingar á Vestur- og Suðvesturlandi á síðjökultíma og í upphafi nútíma.2 Hugmyndir um raunverulega
hækkun á yfirborði Atlantshafsins á sama tíma eru sýndar með bláum línum.77,78 – Lateglacial relative sea-level changes in Southwest
Iceland. Eustatic sea-level changes are shown with blue lines.