Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 116

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 116
Náttúrufræðingurinn 116 má sjá hvernig sökkulbólstraberg myndar tungur út frá eldfjallinu. Nærtækasta skýringin á þessu fyrir- brigði er að bólstrabergið hafi leitað út frá fjallinu í bræðsluvatns- göngum í jöklinum. Á Tungnaár- öræfum, t.d. norðan Ljósufjalla, eru mjög sérstæðar flatar gosmyndanir úr bólstrabergi sem ná allt að 3 km breidd og 15 km lengd.41,42 Þvermál einstakra bólstra sökkul- bólstrabergsins er háð efnasam- setningu bergkvikunnar,43 en það er allt að 0,6 m í þvermál þegar um basalt er að ræða. Sums staðar má sjá að greipni bólstra eykst með hæð, sem er afleiðing þess að heildarþrýstingur fer minnkandi þegar ofar dregur.25,44 Óreglulegar kubbabergseiningar, sem geta orðið allt að 200 m breiðar, eru algengar í sökkulbólstraberginu. Þessar ein- ingar myndast líklega þegar vatnið nær síður til bergkvikunnar, en í nokkrum tilvikum virðist vera um að ræða innskot sem verða nær samtímis eða stuttu eftir að bólstra- bergið myndast. Við upphleðslu bólstrabergsins kemur að því að aðstæður fyrir sprengingar og tvístrun kvikunnar ná yfirhöndinni svo að hýalóklastít myndast, þ.e.a.s. ef eldgosið stendur nógu lengi. Dýptarmörkin þar sem gosið breytist í sprengigos virðast vera mismunandi, og er sennilegt að þar ráði flókið samspil uppstreymis- hraða, efnasamsetningar, gasinni- halds bergkvikunnar og breytinga í vatnsborði meðan á gosi stendur. Rannsóknir í Vesturgosbeltinu benda til að þessi mörk séu þar á 150–200 m dýpi þegar um basísk gos er að ræða. Því má bæta við að í Surtsey eru engin ummerki þess að bólstraberg hafi myndast í byrjun eldgossins; þar var hafdýpi um 130 m fyrir gos.45 Yfirleitt verður tvístrun kvikunnar og myndun hýalóklastíts í gosum undir jökli vegna áhrifa vatnsins. Forsenda sprenginga og tvístrunar virðist vera blöndun vatns og kviku þar sem vatnsbólur hrærast inn í kvikuna. Vatnið er í upphafi 1000– 1200°C kaldara en kvikan. Það yfir- hitnar síðan, en gufulag myndast milli vatns og kviku. Þegar gufulagið fellur saman snöggkólnar kvikan og molnar samfara því að vatnið hvell- sýður. Með tilraunum hefur tekist að framkalla sprengingar þar sem verður til gjóska sem hefur sömu kornastærðardreifingu og kornagerð og dæmigerð er fyrir basísk sprengi- gos í vatni.46,47 Gufulagið sem nefnt er hér að ofan gegnir lykilhlutverki í ferlinu. Við háan þrýsting verður það mjög þunnt og nær að leiða varma hratt frá kviku að vatni. Við það kólnar kvikan nægilega til þess að molnun og hvellsuða verður ekki þegar gufulagið fellur saman. Þetta virðist vera meginástæða þess að gufusprengingar af því tagi sem hér er lýst verða yfirleitt ekki á miklu dýpi.48 Í ljós hefur komið að ekki er hægt að setja jafnaðarmerki milli vatnsþrýstings og ísþykktar. Vegna rennslis frá gosstað og aflögunar sigketils í jökli yfir gíg getur vatns- þrýstingur undir jöklinum meðan á gosi stendur verið miklu minni en sem nemur þunga íssúlunnar.49 Flest bendir því til þess að tvístrun kviku geti orðið undir jökli sem er mun þykkari en 200 m. Helgafell ofan Hafnarfjarðar, sem eingöngu er úr hýalóklastíti, er t.d. talið hafa mynd- ast undir um 500 m þykkum jökli.28 Hýalóklastít, eða móberg, er algengasta ásýnd gosmyndananna, sjá 2. mynd. Neðan til í eldfjallinu er hýalóklastítið yfirleitt grófkorna, ólagskipt eða lítið lagskipt og berg- brot eru algeng.27 Þessi eining getur orðið allt að 400 m á þykkt og hana má m.a. sjá í Kálfstindum og Hlöðu- felli í Vesturgosbeltinu. Sams konar einingu má greina í borkjarna í Surtsey á 20–130 m dýpi undir sjáv- arborði.50 Það er ljóst að þessi hluti hýalóklastítsins í Surtsey barst aldrei upp fyrir sjávarmál, heldur hlóðst hann hratt upp í byrjun gossins og myndaði frekar óreglulegan massa. Lýsingar á Surtseyjargosinu51,52,53 og óbirtar rannsóknir á borkjarn- anum úr Surtsey sýna að hýaló- klastítið barst upp fyrir sjávarborð þegar sprengingarnar urðu á minna en 30–50 m dýpi. Þetta hýalóklastít myndaði í Surtsey hálfmánalaga 2. mynd. Einfaldað þversnið af dæmigerðum móbergshrygg og móbergsstapa í Vesturgos- beltinu. – Simplified cross-sections of a tindar (hryggur) and a tuya (stapi). Based on observations of subglacial and intraglacial mountains in the Western Volcanic Zone.2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.