Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 162
Náttúrufræðingurinn
162
Árni Hjartarson
Skýrsla stjórnar
Hins íslenska náttúrufræðifélags
fyrir árið 2010
Fundir stjórnar
Á aðalfundi HÍN, sem haldinn var
25. feb. 2010, var Árni Hjartarson
kosinn formaður félagsins. Kristín
Svavarsdóttir lét þá af störfum eftir
að hafa gegnt formennsku frá 2002.
Þá gengu einnig úr stjórn Droplaug
Ólafsdóttir og Helgi Guðmundsson.
Í þeirra stað komu Jóhann Þórsson
og Rannveig Anna Guicharnaud.
Frá síðasta aðalfundi hefur
stjórn haldið níu venjubundna
stjórnarfundi. Flestir þeirra voru
haldnir í húsakynnum Náttúru-
minjasafns Íslands (NMÍ) í Loft-
skeytastöðinni gömlu við Suður-
götu. Á fyrsta fundi skipti stjórnin
með sér verkum, öðrum en for-
mannsstarfinu. Esther Ruth Guð-
mundsdóttir er varaformaður,
Hilmar Malmquist ritari, Kristinn
Albertsson gjaldkeri, Ester Ýr Jóns-
dóttir fræðslustjóri, Jóhann Þórs-
son félagsvörður (nýtt embætti),
Rannveig Anna Guicharnaud með-
stjórnandi.
Félagsmenn
Fjöldi félagsmanna nú er samkvæmt
félagatali 1.314. Í fyrra voru félags-
menn 1.284 skv. gögnum félags-
varðar (skv. ársskýrslu síðasta aðal-
fundar voru félagar 1.241, munur-
inn er óútskýrður). Í félagið gengu
58. Alls hættu 28 (þar af dóu fimm).
Fjölgun félagsmanna í HÍN á starfs-
árinu er því 30 manns.
Fræðsluerindin
Fræðslufundirnir voru haldnir í
stofu 132 í Öskju. Árið áður voru
þeir um skeið í Menntaskólanum
við Sund en voru nú fluttir til baka
í húsnæði HÍ. Reglan er sú að
þeir eru haldnir síðasta mánudag
hvers mánaðar á tímabilinu sept-
ember til maí að desember undan-
skildum. Þetta gerir átta fundi. Frá
síðasta aðalfundi hafa verið sex
fundir. Febrúar-fundurinn verður
strax eftir helgi (og telst ekki til
þessa starfsárs) en maí-fundurinn
féll niður. Aðsókn á þessa fundi
hefur verið allsæmileg, eða 333
fundargestir á árinu. Eftirfarandi
erindi voru haldin:
Dr. Ólafur S. Ástþórsson, sjávar-
líffræðingur við Hafrannsókna-
stofnunina. „Veðurfarsbreytingar og
lífríki sjávar við Ísland“.
Dr. Erpur Snær Hansen, líffræð-
ingur við Náttúrustofu Suðurlands.
„Fortíð, nútíð og framtíð lundastofns
Vestmannaeyja“.
Dr. Rannveig Anna Guichar-
naud, jarðvegsfræðingur við Land-
búnaðarháskóla Íslands. „Flúor-
vöktun í gróðri og jarðvegi í tengslum
við eldgosið í Eyjafjallajökli“.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson,
jarðfræðingur og forstöðumaður
Náttúrustofu Norðurlands vestra.
„Komur hvítabjarna til Íslands á undan-
förnum árum. Hvernig brugðumst
við þeim? Hvað höfum við lært?“
Dr. Sigurður H. Magnússon,
gróðurvistfræðingur og sérfræð-
ingur á Náttúrufræðistofnun Íslands.
„Alaskalúpína og skógarkerfill – ágengar
tegundir á Íslandi“.
Jón Már Halldórsson, líffræðingur
og sérfræðingur hjá Fiskistofu.
„Ussuriland – hin rússneska Amazon!“
Náttúrufræðingurinn
Í málefnum Náttúrufræðingsins
er það helst að um langt árabil
hefur útgáfan verið á eftir áætlun
svo munaði meira en heilu ári.
Fyrir þremur eða fjórum árum var
ákveðið að gera markvisst átak til
að draga inn þennan hala. Það tókst
nú í ár og 80. árgangur 3.–4. hefti
kom út í árslok 2010. Undanfarið
hafa yfirleitt komið út tvöföld hefti
Þrír formenn HÍN. Kristín Svavarsdóttir og
Árni Hjartarson við legstein Benedikts Grön-
dals, fyrsta formanns HÍN, í kirkjugarðinum
við Suðurgötu. Ljósm.: Hrund Ólafsdóttir.
Náttúrufræðingurinn 82 (1–4), bls. 162–164, 2012