Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 14

Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 14
14 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 I ngvar Már Gíslason er mark aðs stjóri Norð lenska og að hans sögn er hangi- kjötið alltaf vin sælast og hefur verið alla tíð: „Íslendingar eru þó tilbúnir að prófa nýja hluti þótt þeir hrófli kannski ekki mikið við sjálfum jólamatnum. Við selj um því mikið af tvíreyktu hangikjöti og salamipylsum, sérstaklega í aðdraganda jóla. Þá erum við afskaplega ánægð með hversu góðar viðtökur íslenska hráskinkan okkar hef ur fengið, það góðar að nú ætlum við að fara að bjóða hana árið um kring. Persónulega finnst mér þó ekkert betra en léttreyktur lamba hryggur, sem er algjört sælgæti og í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Hangikjötið hefur alla tíð verið taðreykt „Hangikjötið okkar er taðreykt og hefur verið alla tíð og við leggjum mikið upp úr því að svo verði áfram. Að okk ar mati er hangikjöt ekki alvöru hangikjöt nema það sé taðreykt, pækilsaltað og reykt á beini. Það gera sér ekki margir grein fyrir því en fram leiðsla á hangikjöti er langt og flókið ferli, tekur um tvær vikur fyrir hefðbundið hangi kjöt en um sex vikur fyrir tvíreykt hangikjöt. Það eru til einfaldari fram leiðslu- aðferðir, t.d. að sprautusalta hangikjötið og úrbeina fyrir reykingu. Okkur finnst hins vegar mikilvægt að halda í gömlu framleiðsluaðferðirnar til að gæðin verði í lagi. Ábyrgð okkar er mikil og við erum þakklát fyrir traustið sem okkur er sýnt ár eftir ár, við erum jú að tala um jólamat Íslendinga.“ Jólalykt ilmar um öll hús Hvernig er stemningin hjá starfsfólki Norðlenska á þessum árstíma? „Hún er einstaklega góð, jólalykt ilmar um öll hús og eftir því mjög mikið að gera og á eftir að verða enn meira þegar líður að jólum. Við erum með augun á sama tak marki; sem er að sjá til þess að Íslendingar fái sinn jólamat. Í raun má segja að desem bermánuður þjappi okkur alltaf enn meira saman, þá eykst álagið en samvinna allra deilda er alltaf til fyrir- myndar.“ Stutt í næstu veislu Hvað er svo helst á döfinni hjá Norðlenska á nýja árinu? „Það er einfaldlega stutt í næstu veislu, þorrann. Súr - mat urinn verður fáanlegur í verslunum skömmu fyrir jól og svo fer allt á fullt í janúar. Það er eins með súrmatinn og jólamatinn; það þarf að vanda sig við framleiðsluna og við erum svo heppin hér hjá Norð - lenska að eiga frábæra kjöt- iðnaðarmenn.“ NorðleNSkA Hangikjötshátíð í bæ Desembermánuður er mikill kjötsölumánuður, hvort sem horft er til hangikjöts, reykt svínakjöts eða annarra vara tengdra jólum. Þessi árstími er ávallt mjög annasamur og skemmtilegur hjá starfsfólki Norðlenska. TexTi: Hrund HauksdóTTir Myndir: Geir ólafsson oG úr safni Ingvar Már Gíslason. „Að okkar mati er hangikjöt ekki alvöruhangikjöt nema það sé taðreykt, pækilsaltað og reykt á beini.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.