Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 24
24 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Mikil vinnA eftir við
A
lla langar til að heyra
sögur af ævin týraleg
um framgangi manna.
Hug mynd verð ur að
veruleika eftir hetjulega baráttu.
Núna hefur barátta Þor steins
Baldurs Friðrikssonar og þeirra
hjá leikjagerðinni Plain Vanilla
Games skilað árangri: Erl end ir
fjárfestar hafa lagt stórfé í íslensk
an sprota, sem fyrir ári var „bara“
talinn í röð þeirra efni legustu.
Fróðir menn meta fyrirtækið nú
á meira en tvo milljarða. Starfs
mönnum hefur fjölgað smátt og
smátt og eru nú 25 en voru sjö í
vor. Verkefnin sem bíða krefj ast
þó enn meiri mannafla. Fyrir tæk
ið er í örum vexti.
Bandarískir fjarfestingasjóðir
hafa veðjað á hugmyndina og lagt
fram fé í þremur áföngum, alls 5,7
milljónir Bandaríkjadala. Það eru
nær 700 milljónir ís lenskra króna
á gengi haustsins.
skjótar vinsældir
Það er spurningaleikurinn Quiz
Up sem vekur þennan áhuga.
Hann hefur í haust slegið í gegn,
sérstaklega í Bandaríkjunum, og
á tímabili í það minnsta bættust
150 þúsund manns við sem
nýir notendur á hverjum degi.
Þeir telja nú yfir þrjár milljónir á
tæp um þremur vikum. Leikurinn
hefur náð fjöldaútbreiðslu. Spurn
ingar munu vera yfir 150 þúsund
og forritið gengur út á að hver
og einn getur slegist í hópinn
með sínar eigin spurningar. Þetta
kallar Þorsteinn „platform“ eða
„brautarpall“ þar sem allir geta
stigið um borð í lestina og verið
með. Vinnan við að koma „brautar
pallinum“ upp hefur staðið í tvö ár
og enn er farið ókeypis.
„Við völdum í upphafi vinsælt
leikjaform, spurningaleik, og
gerð um hann aðgengilegan á
snjallsímum,“ segir Þorsteinn.
„Spurningaleikur úreldist aldrei;
það er stöðugt hægt að endur
nýja spurningarnar og bæta við.
Það er annað en á við um marga
tölvuleiki, sem eiga sér ákveðinn
líftíma og gleymast svo.“
Þau tvö ár sem QuizUp hefur
verið til hefur leikurinn smátt og
smátt vakið meiri athygli og áhuga.
Frjótt tækniumhverfi
„Leikurinn hefur náð þeim vin
sældum að almennir fjömiðlar
eru farnir að fjalla um hann, ekki
bara einhverjir tæknibloggarar.
Við höfum fengið umfjöllun á
CNN og í dagblöðum og það er
mjög mikilvægt,“ segir Þorsteinn.
Það er fjárfestingasjóðurinn
Sequoia Capital í San Francisco
sem leggur mest fram til að
þróa hugmyndina – og ætlar sér
væntalega að græða á fjár fest ing
unni með tíð og tíma. Slíkir sjóðir
kaupa hluti, taka áhættu á að
hugmyndin reynist lífvænleg og
selja svo dýrar en þeir keyptu.
En af hverju koma íslenskir fjár
festar ekki að svona hugmynd?
Margir spá í af hverju svo mikill
munur er á áhættuvilja. Þorsteinn
segir að það sé ósanngjarnt að
gagnrýna íslenska peningamenn
fyrir að hafa ekki trú á nýrri hug
mynd fyrr en útlendingar hafa
komið auga á möguleikana.
„Tækniumhverfið er annað og
fjárfestingahefðin er allt önnur
við San Franciscoflóann en á
Íslandi. Þetta er raunar alveg
einstakt í heiminum,“ segir Þor
steinn. Þarna vísar hann m.a. í að
í Kísildalnum er vagga tölvu
tækn innar og netsins.
„Einhver galdur“
Hátæknifyrirtæki þar skipta þús
und um og nýir sprotar spretta upp
ótt og títt. Mörg fræg vöru merki
eins og t.d. Apple og Face book
urðu til við þessar að stæður. Og
áhættufjárfestar vita að sumir
þessir sprotar eru verð mætir,
aðrir ekki. Það er erfitt að vita
fyrir fram hvaða sprotar ná að
vaxa og dafna og hverjir visna.
Þorsteinn orðar það svo að
„ein hver galdur“ sé tengdur
þessu landsvæði við Kyrrahafið.
„Áhættan við að leggja fé í nýjar
hugmyndir er mikil en gróðinn
getur líka verið mikill ef vel tekst
til,“ segir Þorsteinn. Hann nefnir
Þorsteinn Baldur Friðriksson hjá Plain Vanilla Games:
Þegar Þorsteinn Baldur Friðriksson var í viðtali í Frjálsri verslun fyrir ári taldi hann að Plain
Vanilla stæði á tímamótum. Núna er fyrirtækið komið yfir þau tímamót og bara vinna og
vöxt ur framundan. Fróðir menn meta fyrirtækið nú á meira en tvo milljarða.
PLain VaniLLa
Quizup
TexTi: Gísli krisTjánsson / Myndir: Geir ólafsson oG úr safni