Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 37
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 37
Valdimar Sigurðsson segir að sér finnist innri markaðssetning vera mjög mikilvæg
og að litið sé á starfsmennina
raunverulega sem neytendur
númer eitt.
„Mér finnst það skrýtið þegar
fyrirtæki eru að auglýsa ýmiss
konar þjónustu eins og til
dæm is smáforrit eða breyt ingar
á heima svæði og svo kemur í
ljós að starfsmenn fyrirtækis
ins vita sama og ekki neitt um
þjónustuna. Að mínu áliti eru
þrjú lykilatriði í innri markaðs
setningu en þau eru að fræða,
hrósa og umbuna. Eftir krepp
una má segja að hendurnar
hafi farið minna á loft, eða með
öðrum orðum að starfsmenn
hafi hikað meira við að bjóða
sig fram. Það hefur myndast
nokkurt hvatavandamál þar
sem starfsmenn sjá ekki sam
bandið milli framlags síns og
umbunar. Það er yfirleitt frekar
lítill hvati að reyna að hanga í
starfi og starfsmenn sem tóku
á sig aukna ábyrgð eða störf
sátu yfirleitt uppi með aukið
álag án þess að fá umbun
fyrir. Allt of fá fyrirtæki á Íslandi
hafa handbók eða leiðarvísi
með gildum og fróðleik og
enn færri þjálfa upp færni
starfsfólks ins kerfisbundið. Oft
er rætt um mikilvægi jákvæðs
og neikvæðs umtals, og það
er rétt, en trúlega er neikvætt
umtal frá starfsmanni dýrast.
Það þarf að fræða starfsfólk og
þjálfa það betur til að það geri
framúrskarandi hluti sem þá
er hægt að hrósa og umbuna
fyrir.“
dR. VAldimAR siGuRðsson
– dósent við við skiptadeild HR
MARKAÐS-
HERFERÐIN
Innri markaðssetning
mikilvæg
Tímaritið Time er árlega með úttekt á 25 bestu og snjöllustu uppgötvunum
eða nýsköpunum á árinu. Í lok
nóvember kom listinn fyrir þetta
ár. Margt snjallt, en snjallast
fannst mér þó The Edible Pass
word Pill, eða æta lykilorðapillan.
Eins og segir í umsögn: Löng
og flókin lykilorð, sem breytt er
stanslaust, eru nauðsynleg ef þú
villt fullt öryggi í nútímasamfélagi.
Það er flókið eða jafnvel vonlaust
að leggja þau öll á minnið. Þá
komum við að gleypanlegu
lykilorðapillunni frá Motorola
(Googlefyrirtæki). Hver pilla inni
heldur lítinn örgjörva sem kveikir
á sér við orkuna úr magasýrun
um. Úr maganum sendir síðan
örgjörvinn 18 bita EKGrafboð
sem skilaboð og lykilorð í snjall
símann þinn eða tölvuna, sem þá
opnar tækið. Lykilorðapillan dug
ar í sólarhring. Hún hefur þegar
fengið já hjá bandarísku mat
v æla og lyfjastofnuninni FDA,
svo nú fer líklega að styttast í að
þú opnir Gmailinn þinn frá Google
eða snjallsímann bókstaflega
með maganum.
PÁll sTefÁnsson
– ljósmyndari
GRÆJUR
Í maganum
Motorolalykilorðapillan með örgjörva
og kveikir á sér í maganum
„Margt snjallt, en
snjallast fannst mér
þó The Edible Pass-
word Pill, eða æta
lykilorðapillan.“