Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 86
86 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Fatahönnun
vönduð og tímalaus föt
Gust
„Ég byrjaði að gera fyrstu flíkurnar á mig
þegar ég var tólf ára,“ segir Guðrún Kristín
Svein björns dóttir sem lét draum sinn rætast og
lauk sveinsprófi í kjólasaumi hér heima. Hún
fór síðan í framhaldinu í fatahönnunarnám við
virtan skóla í Þýskalandi.
Guðrún hannar fatnað undir vörumerkingu
GuSt. Eftir að hafa rekið verslun á eigin kenni -
tölu og í samstarfi við aðra í nokkur ár stofnaði
hún fyrir tíu árum verslunina GuSt þar sem
hönnun hennar er seld.
„Ég vil hanna föt sem endast vel og verða
uppá haldsflíkur þeirra kvenna sem ganga
í þeim. Ég vanda mig þegar ég vel efnin og
hönn unin er tímalaus. Mér finnst frábært þegar
konur koma í verslunina og hrósa fötum sem
þær keyptu fyrir tíu árum og eru enn að nota,“
segir Guðrún en ull og vönduð efni einkenna
fötin sem hún hannar.
Gust flutti í október í nýtt húsnæði í miðbæ
Reykjavíkur en Guðrún festi kaup á húsinu þar
sem er m.a. líka að finna vinnustofuna hennar.
Hún segist aðeins hafa selt hönnun sína til út -
landa en að það taki of mikla orku hjá svona
litlu fyrirtæki.
„Ég sel í tveimur sérverslunum í Danmörku.
Það er alltaf gaman að selja meira og ég myndi
vilja leita fyrir mér á fleiri mörkuðum en í
Dan mörku en það tekur mikinn tíma og fyrir -
höfn að koma sér á nýjan markað. Eins og er
ætla ég að einbeita mér að heimamarkaði. Það
væri auðvitað gaman að prófa að selja vöruna
í Þýskalandi, Bretlandi og Noregi en fólk frá
þessum löndum hefur sýnt henni sérstaklega
mikinn áhuga þegar það kemur í verslunina.“
Guðrún segir að rauðir tónar einkenni
vetrarlínuna. „Það er skærrauður litur, appel -
sínugulur, rústrauður og næstum því út í
koníaksbrúnt. Og svo auðvitað svart og grátt.
Við hönnun á síðustu línum hef ég leitað
mark visst í íslenskt landslag eða það sem ber
fyrir augu í náttúrunni. Öldur hafsins höfðu
áhrif á hönnunina í einni línunni en þá voru
bylgjulaga form í efninu. Núna hafa bogalínur
fjallshlíðanna áhrif í sniðunum. Formin eru líkt
og lækir sem renna hlykkjótt niður fjallshlíðar
og vegir sem fikra sig upp í sveigum og kröpp -
um beygjum. Landslagið er allt fullt af formum
og litum og endalaust er hægt að fá innblástur
bara með því að njóta náttúrunnar.“
Guðrún kristín sveinbjörns
dóttir: „Ég sel í tveim ur
sérverslunum í Dan mörku.
Það er alltaf gam an að selja
meira og ég myndi vilja leita
fyrir mér á fleiri mörkuðum
en í Danmörku.“