Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2010, Blaðsíða 130
FRÁ VÖGGU TIL GRAFAR 129
smáaltari innan kirkjunnar en nákvæm staðsetning þess er ekki nefnd.
Í sömu heimild er einnig talað um að eina litla klukku sé að f inna í
bænhúsinu en það ekki útskýrt frekar. Telur sr. Heimir að smáaltarið
hafi getað verið innan þessa bænhúss og að bænhúsið sjálft sé innan
kirkjunnar.14 Nafnið bænhús er ekki skýrt nánar og gæti því hugsanlega
verið um að ræða kapellu sem þá hafi verið staðsett í útbroti kirkjunnar.
Sé miðað við að kórinn sé tvö stafgólf ættu mörk hans og kirkjuskipsins
að liggja samsíða við útbrotið (mynd 1). Þar sem kórinn hefur eingöngu
verið ætlaður fyrir bræðurna má áætla að hið sama hafi gilt um kapelluna
hafi hún verið í útbrotinu.
Innviðir klausturkirkjunnar
Bæði úttektir og uppgröftur benda til að kirkjan hafi nánast öll verið þiljuð
að innan með viði, fyrir utan tvö stafgólf kórsins. Jafnframt er ljóst að gólf
hafa verið úr timbri og bekkir með veggjum í þeim hluta kirkjunnar sem
ætlaður var almenningi. Kórnum var skipt með þili í fremri og innri kór,
auk þess sem þil var á milli kórs og miðskips. Glergluggi mun hafa verið
í kórnum þegar úttektin var gerð 1598 en úttektin frá 1641 vitnar einnig
um annan glugga yfir predikunarstólnum.15 Gluggaleifar fundust á þessu
svæði við uppgröftinn en fjallað verður nánar um gripi síðar í greininni.
Eins og sést á mynd 2 er f lesta gripaf lokka, sem hægt er að tengja við
innréttingar16, að finna í kór kirkjunnar. Þar fundust leifarnar af glugga,
líkt og úttektirnar geta um. Um var að ræða gluggapósta úr járni, steind
glerbrot og blýfestingar. Viður og naglar fundust um nánast alla kirkjuna,
þó langsamlega mest í kórnum.
Við fyrstu sýn gæti það virst undarlegt að meira hafi fundist af viði og
nöglum í kórnum heldur en í miðskipinu þar sem veggir kórsins munu
ekki hafa verið þiljaðir, ef marka má úttektir. Þetta gætu samt verið leifar
af þiljunum sem skiptu kórnum í tvennt, svo og fremri kór frá miðskipi.
Loks fannst eitt ljósahald í forkirkju en ekki hafa varðveist önnur ummerki
um lýsingu.
Gripir klausturkirkjunnar
Í úttektum sem lýsa klausturkirkjunni er talinn upp allnokkur f jöldi
kirkjugripa auk annarra innanstokksmuna. Kirkjan hefur átt m.a.
messuklæði, klukkur, hökla, bækur, vatnsker, vatnsketil, altarispípur,