Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2010, Blaðsíða 167
166 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
kirkjur hafi verið reistar hérlendis. Á Íslandi, þar sem byggingarefnið
var torf og grjót eða timbur, hefur e.t.v. verið heppilegra að verjast í
kirkjugarðinum sjálfum. Forskálar hafa þá þjónað því hlutverki að verja
leiðina út í kirkjugarð.
Órækja Snorrason var kominn til Skálholts til þess að hefna föður síns,
Snorra Sturlusonar. Skömmu áður höfðu Gissur og menn hans komið í
Reykholt, 23. september árið 1241. „Brutu þeir upp skemmuna er Snorri
svaf í. En hann hljóp upp og úr skemmunni og í hin litlu húsin er voru
við skemmuna“. Þaðan gekk Snorri „í kjallarann er var undir loftinu þar í
húsunum“,82 en þar var hann veginn. Snorri kaus að leynast í kjallaranum
frekar en að nýta sér forskála þann sem var á bænum. Samband þeirra
feðga, Snorra og Órækju, var ekki ætíð eins og best varð á kosið. Sumarið
1235 sótti Órækja að föður sínum í Reykholti með sveit manna.
Var þar skipað mönnum í virki um allan bæinn en Órækju menn
gengu um virkið og varð ekki að sótt. Þeir Þorleifur og Loftur
fóru á meðal þeirra feðga og leituðu um samningar. Kom því svo
að þeir sem á virkinu voru fundu eigi fyrr en Órækju menn allir
voru komnir í húsin og höfðu gengið upp eftir forskála frá laugu.
Höfðu þeir Loftur þá samið með þeim feðgum.83
Hér er því svo að skilja að forskáli þessi hafi legið frá lauginni, sem
væntanlega er Snorralaug, og að bæjarhúsunum. Eggert Ólafsson og Bjarni
Pálsson segja frá Snorralaug og undirgöngunum í ferðabók sinni frá 1752-
57. Þeir lýsa lauginni og göngunum á þennan hátt:
Snorralaug er det i Island for Opbygningens og Alderdommens
Skyld meest berømte Bad, som, efter almindeligt Sagn, har faaet
Navn av den bekiendte Historieskriver Snorre Sturleson, der siges
at have sat det i Stand. Man har ingen Vished herom; dog kan sees
af Sturlunga-Saga, at han har sat Reykholtsgaard i meget god Stand;
han var ellers frugtbar paa Opfindelser, meget for Bygninger, og
havde Evne nok til at fuldføre dem. Dette Bad brugte han meget: en
laug Hvelving var den Tid bygget fra Gaarden lige need til Badet,
saa at man kunde gaae frem og tilbage, uden at blive forkiolet.84