Gerðir kirkjuþings - 1991, Qupperneq 196
1. Þjónandi biskup íslands og vígslubiskupar, sóknarprestar, aðstoðarprestar, sbr.
3. gr. laga nr. 62/1990, svo og sérþjónustuprestar, sbr. II. kafla laga nr. 62/1990,
enda heyri þeir stiómskipunarlega undir embætti biskups íslands".
2. Kjörnir leikmenn, sem sæti eiga á kirkjuþingi, þegar kosning fer fram, svo og
leikmenn, sem sitja í kirkjuráði, en eru ekki kjörnir kirkjuþingsmenn.
3. Tveir leikmenn fyrir hvert prófastsdæmi, þó þrír frá
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og
Kjalamessprófastsdæmi, kjörnir á héraðsfundum til 4 ára í senn, af leikmönnum,
sem atkvæðisrétt hafa þar og skulu varamenn kjörnir á sama hátt.
4. gr.
Kosningarétt við vígslubiskupskjör eiga þeir sömu og við kjör biskups íslands og hafa
búsetu og starfa í viðkomandi vígslubiskupsumdæmi þegar kjör fer fram".
5. gr.
Þriggja manna kjörstjórn fer með yfirstjórn, undirbúning og framkvæmd
biskupskosningar. Formaður hennar er ráðuneytisstjórinn í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, en varamaður hans er sá skrifstofustjóri í sama ráðuneyti, sem
er staðgengill ráðuneytisstjóra. Stjórn Prestafélags íslands tilnefnir annan
kjörstjómarmann, svo og varamann. Kirkjuráð tilnefnir þriðja manninn og varamann
hans.
Kjörstjóm úrskurðar um kosningarrétt og kjörgengi, hvort rétt hafi verið staðið að
tilnefningu á biskupsefni og um gildi einstakra atkvæðaseðla. Úrskurði kjörstjómar má,
innan viku frá því að hann gekk, skjóta til kirkjumálaráðherra, sem leysir úr máli til
fullnaðar.
6. gr.
Kjörstjóm semur kjörskrá.Hún skal liggja frammi á biskupsstofu og hjá próföstum
og á öðmm stöðum, sem kjörstjórn ákveður í 3 vikur. Kjörstjórn auglýsir framlagningu
kjörskrár, á hvaða stöðum hún liggur frammi og frest til að koma að kærum vegna
hennar. Hún úrskurðar kærur út af kjörskrá og gengur endanlega frá henni.
7. gr.
Að lokinni endanlegri gerð kjörskrár, þ.m.t. úrlausn ráðherra, sé máli til hans
skotið, auglýsir kjörstjóm eftir tilnefningum á biskupsefnum á sama hátt og hún auglýsir
framlagningu kjörskrár. í auglýsingu skal kveðið á um ákveðinn frest til að skila
tilnefningum og hvernig ganga skuli frá þeim.
193