Gerðir kirkjuþings - 1991, Side 249
1991
22. Kirkjuþing
34. mál
T I L L A G A
til þingsályktunar um að vinna að því að
aðstoðarprestur, eða annar starfsmaður. verði ráðinn
til ísafjarðarprestakalls.
Flm. og frsm. sr. Gunnar E. Hauksson
22. kirkjuþing haldið 1991 felur biskupi og kirkjuráði að vinna að
aðstoðarprestur, eða annar starfsmaður, verði ráðinn til ísaþarðarprestakalls.
því að
GREINARGERÐ
Miklar breytingar hafa orðið á starfsháttum kirkjunnar á seinustu áratugum.
Guðsþjónustan og sálusorgun eru ekki lengur eina starf prestsins. Nú þykir ákjósanlegt
að í hverjum meðalstórum söfnuði sé boðið upp á margs konar starf; barnastarf, 10-
12 ára starf, unglingastarf, mömmumorgna, fræðslukvöld, leshópa, stuðningshópa,
fermingarfræðslu, fræðslu og starf meðal þroskaheftra og fatlaðra, öldrunarstarf,
þjónustu á elliheimilum og sjúkrahúsum. Þessi upptalning þarf ekki að vera lengri, en
allir hljóta að sjá að slíkt starf er ofviða einum manni. Og þá er ekki átt við tímann
sem fer í þetta, heldur er svo fjölþætt starf ofviða hæfileikum eins manns. Hér þarf að
koma til aukið starfslið kirkjunnar. Fjölþætt kirkjuleg starfsemi kallar á aukna
sérhæfingu starfsmanna, sem við sjáum nú þegar í fjölgun s.k. sérþjónustupresta.
/ /
A Isafirði og reyndar Vestfjörðum öllum er mjög takmörkuð þjónusta
sálfræðinga, geðlækna, félagsráðgjafa og annarra aðila sem veita andlega þjónustu. Þessi
staða eykur til muna starfsálagið á sóknarpresti og skerðir rættmæta kröfu um
prestþjónustu. Þá ber að taka það fram að aðstoðarmenn, svo sem guðfræðinemar eða
aðrir virkir leiðtogar úr kristilegum leikmannahreyfingum, eru ekki til staðar á ísafirði.
í ísafjarðarprestakalli er fjórðungssjúkrahús, tvö eilliheimili og eitt heimili fyrir
þroskahefta. Þá eru þar tveir framhaldsskólar og þrír grunnskólar. Þessar stofnanir, sem
þjóna öllum Vestfjörðum nema grunnskólarnir, hafa allar leitað með einum eða öðrum
hætti eftir þjónustu sóknarprestsins á ísafirði.
246