Són - 01.01.2010, Síða 127

Són - 01.01.2010, Síða 127
UM LJÓÐIÐ „ELOI LAMMA SABAKHTHANI!“ EFTIR STEFÁN G. 127 Sigurð Trölla eftir Stefán: „Lífsskoðun skáldsins er einmitt athyglisverð vegna þess, að hann er í senn aþeisti og móralisti.“13 Undir þetta virðist réttmætt að taka og jafnframt má bæta því við að siðaboð skapur skáldsins rís í öllum meginatriðum á kristilegum grunni. Segja má að Stefán sé kristinn maður án guðs eins og sagt var um Auguste Comte, heimspekinginn sem mótaði pósitívismann, að heimspeki hans væri „kaþólska án guðs“.14 Stefán er í öllum verkum sínum ákaf ur móral- isti í jákvæðum skilningi þess orðs og í höfuðdráttum tekur hann undir siðferðisboðskap kristindómsins. Hann gengur því á svig við eilífðar- málin og guðdóminn en hin kristilega breytni er honum eftir sem áður, og þó öllu fremur enn frekar en áður, þungamiðja í lífi mannsins, Mannsins með stórum staf, þar sem öll ábyrgð er nú lögð honum á herðar. Hin guðlega forsjón og handleiðsla, sem menn áður hlýddu og reiddu sig á, er augljóslega horfin. Í hennar stað virðist Stefán setja allt sitt traust á „framför“ meðal mannanna. Smátt og smátt vex þekking manna og þar með aukinn skilningur og þar af sprettur betri sambúð og samkomulag í mannheimi. Hann talar á einum stað í bréfi um „siðferðis-framförina“ sem „stríðið eilífa“.15 Und ir rótin að þessum skiln ingi liggur sennilega að hluta til í því andlega lífi sem einkennir vestrænan heim á seinni helmingi 19. aldar. Andlegt líf 19. aldar var mikilfenglegra og flóknara en allra fyrri alda og það var margt sem því olli. Vísindin höfðu verið sífelld upp spretta nýjunga síðan á 17. öld en unnu enn nýja sigra, ekki síst á sviði landafræði, líffræði og líf - efnafræði. Véltæknin á sviði framleiðslu varð til þess að þjóðfélags- gerðin breytt ist gjörsamlega og olli því að menn litu mátt sinn og megin öðrum augum í átökum við náttúruöflin en fyrr. Hin djúptæka bylting, sem á sér stað jafnt í heimspekilegum sem pólitískum efnum, verður til þess að kollvarpa hefðbundnum hugmyndakerfum og stofn - unum og hrind ir af stað árásum á margt í trú og stjórnmálum sem áður hafði þótt óumdeilanlegt. Margar arfhelgar og gamalgrónar hug - myndir verða að láta undan og brátt tekur að hrikta í viðteknum trúarhugmyndum. En ákveðinnar bjartsýni gætir þar sem menn sjá 13 Hannes Pétursson (1959:38). 14 Thomas Huxley segir í bók sinni The Scientific Aspects of Positivism: „Comte’s ideal …is Catholic organization without Catholic doctrine, or, in other words, Catholicism minus Christianity.“ Tekið hér eftir Mary Pickering: Auguste Comte. An Intellectual Biography, Volume I: 16-17. Ég vil þakka Vilhjálmi Árnasyni fyrir að benda mér á þessa tilvitnun. 15 Stephan G. Stephansson í bréfi til séra Rögnvalds Péturssonar, 11. okt. 1926, Bréf og ritgerðir (1947, III:331).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208

x

Són

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.