Peningamál - 01.09.2005, Blaðsíða 62

Peningamál - 01.09.2005, Blaðsíða 62
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 5 • 3 62 Viðauki 2 Gengisvísitölur: Hvað mæla þær? Breytt umhverfi – ný sjónarmið Endurskoðun aðferða við útreikning gengisvísitalna í Seðlabank anum Lausleg athugun á útreikningi gengisvísitalna í nokkrum nálægum lönd - um sýnir að aðferðafræðin við gerð slíkra vísitalna hefur tekið nokkrum breytingum á undanförnum árum. Upptaka evrunnar og fl ot vaxandi fjölda gjaldmiðla heims virðist ýmist hafa dregið úr áherslu á slíkar vísitölur (vogir þeirra jafnvel ekki verið uppfærðar) eða leitt til breyt- inga á að ferðafræðinni. Aukin áhersla virðist t.d. lögð á að vísitölurnar séu sem víð astar, þ.e. innihaldi fl eiri frekar en færri gjaldmiðla. Breyting- ar á um gjörð peningastefnunnar hér á landi fyrir nokkrum árum gefa einnig tilefni til þess að endurskoða aðferðir við útreikning gengis- vísitölu krón unnar. Aðferðir við að ákveða vægi landa í gjaldmiðlakörfum eru nokk- uð mismunandi eftir löndum. Í sumum löndum er eingöngu miðað við vöruviðskipti. Upplýsingar um landaskiptingu þjónustuviðskipta eru almennt taldar síður áreiðanlegar en upplýsingar um vöruviðskipti og því hafa sumir talið vænlegast að gefa sér að þau skiptist líkt og vöruviðskiptin. Annars staðar eru þjónustuviðskipti tekin með að fullu og í enn öðrum löndum er einungis tekið tillit til landaskiptingar tekna af ferðamönnum. Gagngerar breytingar urðu á framkvæmd peningastefnunnar á Ís landi árið 2001, þegar horfi ð var frá fastgengisstefnu og verðbólgu- markmið tekið upp ásamt fl jótandi gengi. Þegar vægi gjaldmiðla í hinni opinberu gengisvísitölu á tímum fastgengisstefnunnar var ákveðið réð þörf peningastefnunnar fyrir kjölfestu í formi fastrar gengisviðmiðunar að nokkru leyti ferðinni. Gjaldmiðlakarfan þurfti því að vera samsett af gjaldmiðlum með stöðugt innra virði, þ.e.a.s. gjaldmiðlum landa með litla verðbólgu. Þetta sjónarmið var sérstaklega áberandi á árunum 1990 til 1995 þegar hlutdeild landa með litla verðbólgu var aukin. Árið 1995 var að nokkru leyti dregið í land þegar tekin var upp víðari geng- isvísitala. Það hafði að vísu ekki mikil áhrif í reynd, enda fór verðbólga almennt minnkandi víða um heim. Sú stefna að tengja krónuna við körfu „harðra gjaldmiðla” varð þó aldrei jafn hrein hér á landi og í ýms- um nágrannalöndum sem tóku upp tengingu við ECU, sem líta mátti á sem óbeina tengingu við þýska markið. Aldrei var fyllilega sagt skilið við þá stefnu að gengið gæti verið mikilvægt aðlögunartæki þegar landið yrði fyrir ytri áföllum, ekki síður en kjölfesta peningastefnunnar, og því var talið mikilvægt að gengisvísitalan endurspeglaði einnig vel breytingar á samkeppnisstöðu atvinnuveganna. Eftir að krónan fór á fl ot árið 2001 hefur þörfi n fyrir viðmiðun við körfu harðra gjaldmiðla minnkað verulega. Enn er þó gagnlegt að reikna gengisvísitölur í tvennum tilgangi: til að fylgjast með þróun sam- keppnisstöðu og áhrifum gengisbreytinga á innlent verðlag. Sérstak-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.