Peningamál - 01.09.2005, Side 93
Júní 2005
Hinn 3. júní var tilkynnt að bankastjórn Seðlabanka Íslands hefði
ákveðið að hækka stýrivexti bankans, þ.e. vexti í endurhverfum
viðskiptum við lánastofnanir, um 0,50 prósentur í 9,50% hinn 7. júní.
Vextir á innstæðubréfum til einnar viku voru ákveðnir 0,15 prósentum
undir stýrivöxtunum og fjárhæðartakmarkanir í vikulegum útboðum
þeirra voru afnumd ar. Aðrir vextir bankans hækkuðu hinn 11. júní,
vext ir á viðskiptareikningum lánastofnana í bankanum um 0,75
prósentur og daglánavextir bankans um 0,25 prósentur.
Hinn 15. júní tilkynnti Íslandsbanki hf. að gengið hefði verið frá
útgáfu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 150 milljónir evra, eða um 12
milljarða króna. Skuldabréfin teljast til eiginfjárþáttar A í samræmi við
reglur um viðbótareiginfjárliði.
Júlí 2005
Hinn 11. júlí tilkynnti Kaupþing banki hf. að öll skilyrði tilboðs
Kaupthing Holdings UK Ltd., dótturfélags hans í Bretlandi í Singer
& Friedlander Group PLC., hefðu verið uppfyllt. Í kjölfarið var stefnt
að afskráningu hluta í Singer & Friedlander. Nam tilboðsupphæðin
316 pensum á hlut eða sem svarar til um 547 milljóna punda, um
64,6 ma.kr., fyrir alla útgefna hluti í Singer & Friedlander. Mælti
stjórn Singer & Friedlander með kaupunum. Kaupþing banki átti fyrir
viðskiptin 19,5% hlutafjár í Singer & Friedlander.
Hinn 12. júlí tilkynnti Seðlabanki Íslands um árlega endurskoðun
gengisskráningarvogar krónunnar í ljósi utanríkisviðskipta ársins
2004. Hin nýja vog tók gildi sama dag (sjá meðfylgjandi töflu).
Hinn 19. júlí staðfesti alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s Investor
Service lánshæfiseinkunnir ríkis sjóðs Íslands, Aaa fyrir langtíma skuld-
Annáll efnahags- og peningamála
Ný gengisskráningarvog 2005 (%)
Byggð á viðskiptum 2004
Út- Inn- Geng is- Breyt ing
flutn- flutn- skrán - frá fyrri
Lönd Mynt ings vog ingsvog ingar vog vog
Banda rík in USD 22,03 24,02 23,03 1,19
Bret land GBP 14,66 9,55 12,10 0,21
Kan ada CAD 1,27 0,94 1,10 0,04
Danmörk DKK 7,67 8,59 8,13 -0,28
Noregur NOK 5,02 7,05 6,04 0,13
Svíþjóð SEK 2,11 5,64 3,87 0,19
Sviss CHF 1,50 0,92 1,21 -0,18
Evrusvæði EUR 42,67 39,60 41,14 -1,23
Japan JPY 3,07 3,69 3,38 -0,07
Alls 100,00 100,00 100,00 0,00
Norður-Am er íka 23,30 24,96 24,13 1,23
Evrópa 73,63 71,35 72,49 -1,16
Evrópusambandið 67,11 63,38 65,24 -1,11
Jap an 3,07 3,69 3,38 -0,07
Heimild: Seðlabanki Íslands.