Peningamál - 01.11.2006, Side 18

Peningamál - 01.11.2006, Side 18
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 3 18 endurfjármögnun húsnæðislána. Ný fasteignaveðlán innláns stofnana voru í septembermánuði tæplega 79% minni en í sama mánuði ári áður. Hins vegar má reikna með að ný lán séu nú að miklu leyti hrein skuldaaukning en ekki endurfjármögnun. Þegar endurfjármögnunin var sem mest nýttu margir tækifærið og juku veðskuldir sínar, en greiddu niður dýr yfirdráttarlán. Fljótlega tóku yfirdráttarlán heimila þó að aukast á ný. Þau námu 69 ma.kr. nú í lok september, en 60 ma.kr í lok ágúst 2004 þegar bankar og sparisjóðir hófu innreið sína á fasteignaveðlánamarkaðinn. Ætla má að á heildina litið hafi fjármálaleg skilyrði heimilanna versnað. Vextir húsnæðislána hafa hækkað og kostnaður vegna yfir- dráttarlána hefur aukist. Á fyrri hluta ársins jókst greiðslubyrði vegna erlendra lána þegar gengi krónunnar lækkaði. Á móti kemur að fyrir vikið hafa heimilin metið nýja lántöku í erlendri mynt hagstæðari en áður. Þessi áhrif vega líklega ekki mjög þungt og hafa nú að einhverju leyti gengið til baka. Í ljósi nýlegrar þróunar á ávöxtunarkröfu verðtryggðra íbúðabréfa gætu vextir fasteignaveðlána Íbúðalánasjóðs hækkað á næstunni. Í síðustu tveimur útboðum tók sjóðurinn tilboðum í tvo lengri flokkana en óvíst er hver útkoma næstu útboða verður. Fjármálaleg skilyrði heimil anna gætu versnað enn frekar ef vextir nýrra fasteignaveðlána hækka og einnig ef vaxtahækkunin leiddi til lækkunar fasteignaverðs. Á öðrum fjórðungi þessa árs hægði á útlánavexti lánakerfisins til fyrirtækja samanborið við sama fjórðung árið áður. Það er í fyrsta sinn síðan á öðrum fjórðungi ársins 2004, sem dregur úr vextinum. Hann er þó enn mjög mikill eða 53%. Yfirdráttarlán til fyrirtækja hafa aukist undanfarna mánuði og í septembermánuði var ársvöxtur yfirdráttarl- ána til fyrirtækja 32,7%, eða tæplega 29 ma.kr. Líkt og fjallað var um í síðustu útgáfu Peningamála hafði vöxtur peningamagns aukist mikið mánuðina á undan. Vöxturinn er enn mikill en dregið hefur úr honum, en hafa verður í huga að miklar sveiflur eru á milli mánaða. 1. Hlutfall gengisbundinna lána fyrirtækja af útlánum innlánsstofnana, bein og frá öðrum lánastofnunum í lok hvers mánaðar. Gengisbundin lán hafa verið leiðrétt fyrir áætluðum gengisbreytingum. Heimild: Seðlabanki Íslands. Ma.kr. Mynd III-9 Gengisbundin lán fyrirtækja og hlutfall þeirra af heildarútlánum 2002 - 20061 Gengisbundin lán til fyrirtækja, samtals (v. ás) Hlutfall gengisbundinna lána fyrirtækja (h. ás) % 0 200 400 600 800 1.000 1.200 1.400 52 54 56 58 60 62 64 66 20062005200420032002 1. Hlutfall gengisbundinna lána heimila af útlánum innlánsstofnana, Íbúða- lánasjóðs og lífeyrissjóða í lok hvers mánaðar. Gengisbundin lán hafa verið leiðrétt fyrir áætluðum gengisbreytingum. Heimild: Seðlabanki Íslands. Ma.kr. Mynd III-10 Gengisbundin lán heimila og hlutfall þeirra af heildarútlánum janúar 2000 - ágúst 20061 Gengisbundin lán til heimila, samtals (v. ás) Hlutfall gengisbundinna lána heimila (h. ás) 0 5 10 15 20 25 30 35 40 45 50 0,0 0,5 1,0 1,5 2,0 2,5 3,0 3,5 4,0 4,5 5,0 2006200520042003200220012000 % 1. Tekið hefur verið tillit til verðuppfærslu við útreikning á verðtryggðum skuldabréfum Heimild: Seðlabanki Íslands. Ma.kr. Ma.kr. Mynd III-11 Útlán innlánsstofnana til heimila1 Janúar 2003 - september 2006 0 50 100 150 200 250 300 350 400 450 500 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 2006200520042003 Verðtryggð skuldabréf (v. ás) Yfirdráttarlán (h. ás)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.