Peningamál - 01.11.2006, Side 62
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
3
62
lengra sem horft er fram í tímann. Staðalfrávik er mælikvarði á hversu
langt spágildi er frá réttu gildi að meðaltali. Frávik frá réttu meðaltali
eykst eftir því sem spárnar ná lengra fram í tímann, sem endurspeglar
meiri óvissu eftir því sem horft er lengra fram á veginn.
Tafl a 2 sýnir meðalskekkju og staðalfrávik spáskekkna frá öðrum
fjórðungi ársins 2001, annars vegar eitt og hins vegar tvö ár fram í
tímann en alls hafa nú verið birtar átján verðbólguspár sem ná fjóra
ársfjórðunga fram í tímann og fjórtán spár sem ná átta ársfjórðunga
fram í tímann og hægt er að bera saman við tölur um raunverulega
verðbólgu. Verðbólgu hefur verið vanspáð meira ef litið er tvö ár fram
í tímann en eitt ár fram í tímann, en munurinn er ekki mikill.
Miðað við síðustu athugun á spáskekkjum, sem birtist í Peninga-
málum 2005/2, hefur meðalskekkja aukist bæði eitt og tvö ár fram í
tímann. Staðalfrávik eitt ár fram í tímann hefur þó minnkað um 0,3
prósentur en aukist um 0,5 prósentur horft tvö ár fram í tímann. Staðal-
frávik er nú meira ef litið er til tveggja ára en til eins árs, en því var
öfugt farið við síðustu athugun á spáskekkjum. Þrátt fyrir að nú séu
fl eiri mælingar en í síðustu athugun er úrtakið enn of lítið til að hægt sé
að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðunum með nokkurri vissu.
Tafl a 3 sýnir dreifi ngu mældrar verðbólgu með tilliti til verðbólgu-
spár annars vegar fjóra og hins vegar átta ársfjórðunga fram í tím-
ann. Ef úrtak verðbólguspáa væri nægilega stórt mætti vænta þess að
helmingur spánna yrði innan 50% óvissubils, þrír fjórðu innan 75%
óvissubils og níu af hverjum tíu innan 90% óvissubils líkindadreifi ngar-
innar. Samanburður á dreifi ngu spáskekkna og gefi nni líkindadreifi ngu
leiðir í ljós að hin raunverulegu hlutföll eru lægri þegar horft er til verð-
bólguspáa Seðlabankans fjóra ársfjórðunga fram í tímann en hærri átta
ársfjórðunga fram í tímann.
Af sextán spám sem ná eitt ár fram í tímann eru einungis fi mm
innan 50% óvissubils (31% tilvika). Níu mælingar liggja innan 75%
óvissubilsins (56% tilvika) og tólf innan 90% óvissubils (75% til-
Tafla 1 Skekkjur í verðbólguspám Seðlabankans frá 1. ársfj. 1994
Einn ársfj. Tvo ársfj. Þrjá ársfj. Fjóra ársfj.
Meðalskekkja 0,0 -0,2 -0,3 -0,5
Staðalfrávik 0,4 0,9 1,4 1,6
Tafla 2 Skekkjur í verðbólguspám Seðlabankans frá 2. ársfj. 2001
Fjöldi mælinga Meðalskekkja (%) Staðalfrávik (%)
Fjórir ársfjórðungar fram í tímann 18 -0,6 1,6
Átta ársfjórðungar fram í tímann 14 -0,9 1,7
Tafla 3 Dreifing mældrar verðbólgu með tilliti til verðbólguspár
Fjöldi mælinga 50% 75% 90%
Fjórir ársfjórðungar fram í tímann 161 5 (31%) 9 (56%) 12 (75%)
Átta ársfjórðungar fram í tímann 12 6 (50%) 11 (90%) 12 (100%)
1. Í Peningamálum 2004/1 og 2004/3 var einungis birt punktspá. Því er um 16 mælingar að ræða í töfl u 3
samanborið við 18 í töfl u 2.