Peningamál - 01.03.2007, Side 16
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
1
16
á hækkun en lækkun. Helstu óvissuþættir á framboðshlið tengjast
meðal annars pólitískri óvissu og spennu í Miðausturlöndum, þjóðnýt-
ingaráformum í Venesúela, Rússlandi, Ekvador og Bólivíu auk árása á
hagsmuni olíuframleiðenda í Nígeríu.
Aflabrögð slök í fyrra en horfur betri í ár
Heildarafli á seinasta ári var hinn minnsti frá árinu 1992. Hér skiptir
mestu að loðnuaflinn dróst saman um 410 þús. tonn, rækjuaflinn um
helming og botnfiskaflinn um 1% frá fyrra ári. Aflaverðmæti á föstu
verði minnkaði um 4,7% á árinu 2006. Mælt á föstu gengi jókst
útflutningsverðmæti sjávarafurða um 1%, en magnið dróst saman um
rúmlega 6% milli ára. Verðlag sjávarvöru í erlendri mynt hækkaði um
u.þ.b. 7%.
Um sl. áramót var nokkru meira óveitt af aflamarki fiskveiðiársins
sem hófst hinn 1. september sl. en um áramótin 2005/06, sérstaklega
í verðmætari tegundum. Gera má ráð fyrir að þessar aflaheimildir verði
nýttar á vor- og sumarmánuðum.
Aflamark í þorski á yfirstandandi fiskveiðiári er nokkru minna en
á sl. fiskveiðiári en aflamark í öðrum tegundum botnfisks lítið breytt
frá fyrra ári. Karfastofninn hefur minnkað síðustu misseri og í kjölfarið
mun aflinn dragast saman á næstu árum. Horfur eru á að afli annarra
botnfisktegunda en þorsks verði svipaður eða meiri á þessu ári en í
fyrra. Horfur um loðnuaflann eru að jafnaði mjög óljósar, en nokkur
loðna fannst í byrjun vetrarvertíðar og leyfður afli var ákveðinn 300
þús. tonn eða um 65% meiri afli en veiddist á sl. ári. Loðnuvertíðin
hefur gengið vel. Verulegt magn hefur farið í matvælaframleiðslu
og verð á loðnumjöli hefur ekki verið hærra um árabil. Verulegur
búhnykkur er því í auknum loðnuafla. Þá er talið að síldaraflinn aukist
um 25 þús. tonn á þessu ári, en verðmæti hans hefur aukist mjög und-
anfarin ár vegna betri nýtingar og hærra hlutfalls matvælavinnslu.
Í grunnspánni er gert ráð fyrir að útflutningur sjávarafurða auk-
ist um 4% að raungildi, í stað 2% samdráttar í síðustu spá. Erfitt er
að leggja mat á afla og útflutningsverðmæti sjávarafurða árið 2008.
Mikil óvissa er um loðnustofninn og aflinn mjög sveiflukenndur milli
ára. Dökkar horfur um karfastofninn gætu leitt til þess að leyfilegur
afli djúpkarfa verði minnkaður enn frekar á næsta ári. Hins vegar má
gera ráð fyrir óbreyttum afla annarra botnfisktegunda. Líklegt er að
leyfilegur kolmunnaafli verði minnkaður á næsta ári. Loðnuaflinn er
stærsti óvissuþátturinn varðandi verðmæti heildaraflans og útflutning
á næsta ári. Í spánni er reiknað með að verðmæti aflans og útflutn-
ingur hans muni standa í stað á næsta ári.
Verð sjávarafurða nálægt sögulegu hámarki
Markaðsverð sjávarafurða tók að hækka undir árslok 2004 og hefur
farið hækkandi síðan (sjá mynd II-8). Verðlag sjávarafurða (án fersk-
fisks) í erlendri mynt hækkaði um 8,4% milli áranna 2004 og 2005
og meðalverðhækkunin á sl. ári nam 7,3%. Ferskur fiskur, ísaður eða
kældur, hefur hækkað meira en aðrar botnfiskafurðir að jafnaði sein-
ustu árin. Því má gera ráð fyrir að virk verðhækkun hafi verið nokkru
meiri en hér er sýnt. Lengst af var verðhækkunin borin uppi af mikilli
hækkun botnfiskafurða, sérstaklega sjófrystra afurða, sem hafa hækk-
1. Staðvirt með veginni neysluverðsvísitölu í helstu viðskiptalöndunum.
Árlegar tölur 1990-2006, nýjasta gildi er fyrir janúar 2007.
Heimild: Hagstofa Íslands.
1990 = 100
Mynd II-8
Verðlag sjávarafurða í erlendum gjaldmiðli1
85
90
95
100
105
110
20062002199819941990