Peningamál - 01.03.2007, Page 36
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
1
36
VI Vinnumarkaður og launaþróun
Ekki sjást merki um að dragi úr eftirspurn eftir vinnuafli. Eftirspurn hefur í
vaxandi mæli verið mætt með innflutningi vinnuafls, enda atvinnuleysi
óverulegt og hópar sem að jafnaði standa utan vinnumarkaðar
ekki dugað til að anna eftirspurn. Umframeftirspurn eftir vinnuafli
hefur komið fram í stigvaxandi launaskriði og voru launabreytingar
á síðasta ári þær mestu frá því að farið var að reikna vísitölu launa.
Hefur launakostnaður því aukist langt umfram það sem samræmist
verðbólgumarkmiðinu.
Enn hefur dregið úr atvinnuleysi ...
Þar sem atvinnuleysi hefur verið óverulegt hefur ekki verið hægt að
sækja vinnuafl í raðir atvinnulausra undanfarin misseri. Minnkaði það
enn um 0,8 prósentur árið 2006 og var að meðaltali 1,3%. Er það svip-
að atvinnuleysi og gert var ráð fyrir í spám bankans á síðasta ári. Fyrstu
tvo mánuði ársins minnkaði atvinnuleysi að teknu tilliti til árstíðarsveiflu
enn og var 1,1%. Grunnspá gerir ráð fyrir svipuðu atvinnuleysi á þessu
ári og í síðustu spá, en að það aukist eftir því sem dregur úr umsvifum
í hagkerfinu og verði tæp 5% í lok spátímabilsins árið 2009.
... og vinnuaflsnotkun aukist á alla mælikvarða
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands var vinnuaflsnotkun
á síðasta fjórðungi ársins 2006 mun meiri en á sama fjórðungi árið
áður, sama hvaða mælikvarði er notaður. Vinnustundum fjölgaði um
5,4% frá fyrra ári, en meðalfjölgun vinnustunda á árinu var 4,7%. Frá
árinu 2004 hefur heildarvinnustundum fjölgað um 8,2% og starfandi
fólki um 8,6%.
Frá síðasta fjórðungi ársins 2005 til jafnlengdar árið 2006 hafði
heildarvinnustundum fjölgað einna mest í 25-54 ára aldurshópnum.
Fyrstu þrjá fjórðungana þar á undan var einna mestur vöxtur
meðal þeirra sem áður stóðu utan vinnumarkaðar í yngsta og elsta
aldurshópnum.
Mikil aukning erlends vinnuafls á síðasta ári
Nokkuð dró úr þörf fyrir mannafla vegna stóriðjuframkvæmda á seinni
hluta síðasta árs. Eftirspurn eftir vinnuafli var hins vegar áfram kröftug
og sem fyrr var henni að miklu leyti mætt með innflutningi vinnuafls.
Þegar íslenskur vinnumarkaður var opnaður fyrir ríkisborgurum
ESB-8-ríkjanna 1. maí sl. varð töluverð breyting á því hvernig erlent
vinnuafl var skráð hjá opinberum aðilum. Síðan þá hafa atvinnurek-
endur ekki þurft að sækja um atvinnuleyfi fyrir starfsmenn frá þessum
ríkjum, en er skylt að skrá þá hjá Vinnumálastofnun. Atvinnuleyfum
fækkaði því um 1 þús. milli ára. Voru þau tæp 3 þús. á árinu. Í staðinn
fjölgaði nýskráðum starfsmönnum frá ESB-8-ríkjunum um 4 þús. Nýir
erlendir starfsmenn skráðir hjá Vinnumálastofnun á síðasta ári voru því
tæplega 7 þús.
Íslendingum og Pólverjum á vinnualdri fjölgaði jafnmikið
Samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofu Íslands fjölgaði erlendum
ríkisborgurum á vinnualdri (16-74 ára) töluvert minna á liðnu ári
0
1
2
3
4
5
6
7
8
‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95‘93‘91
Heimildir: Vinnumálastofnun, Seðlabanki Íslands.
Mynd VI-1
Atvinnuleysi janúar 1991 - febrúar 2007
% af mannafla
Atvinnuleysi
Atvinnuleysi (árstíðarleiðrétt)
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-2
Breytingar á vinnuafli
2003-2006
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
7
1. ársfj. 2004
2. ársfj. 2004
3. ársfj. 2004
4. ársfj. 2004
Breyting frá sama fjórðungi fyrra árs
1. ársfj. 2005
2. ársfj. 2005
3. ársfj. 2005
4. ársfj. 2005
1. ársfj. 2006
2. ársfj. 2006
3. ársfj. 2006
4. ársfj. 2006
Meðal-
vinnutími
(klst.)
Heildar-
vinnustundir
(%)
Atvinnu-
leysi
(prósentur)
Fjöldi
starfandi
(%)
Atvinnu-
þátttaka
(prósentur)
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-3
Vinnuaflsnotkun
Framlag aldurshópa til breytingar heildarvinnustundafjölda
Breyting frá fyrra ári (%)
55-74 ára
25-54 ára
16-24 ára
Heildarvinnustundir
-4
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
7
200620052004‘02‘00‘98‘96‘94‘92