Peningamál - 01.03.2007, Page 44
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
1
44
Lítil von á sjálfbærum viðskiptahalla innan þriggja ára
Samfelldur halli hefur verið á viðskiptajöfnuði frá upphafi ársins
2003. Þrátt fyrir að engin algild skilgreining á hugtakinu sjálfbær
viðskiptahalli sé til innan hagfræðinnar má telja öruggt að jafnmikill
viðskiptahalli og verið hefur undanfarin ár fái ekki staðist til lengdar.
Spurningunni hversu mikill halli geti viðgengist til frambúðar er ekki
auðsvarað. Samkvæmt þröngri skilgreiningu mætti telja halla sjálfbær-
an ef hann leiðir ekki til takmarkalausrar skuldasöfnunar. Sú skilgrein-
ing kann þó að vera ófullnægjandi ef skuldir staðnæmast við jafnvægi
sem gerir þjóðarbúskapinn óhóflega næman fyrir breytingum í ytri
skilyrðum, t.d. erlendum vöxtum. Því gæti verið gagnlegt að skilgreina
halla sjálfbæran ef hann getur hjaðnað án þess að komi til samdráttar
í efnahagslífinu.
Þrátt fyrir að núverandi halli sé að nokkru leyti tilkominn vegna
fjárfestingar í þeim greinum atvinnulífsins sem vænta má að skili tals-
vert auknum útflutningstekjum á komandi árum er ekki þar með sagt
að aðlögun að sjálfbærum jöfnuði geti orðið án verulegs samdráttar
innlendrar eftirspurnar. Að vissu leyti mun aðlögun vöruskiptahall-
ans þó hefjast sjálfkrafa á þessu ári, ef ekki koma til nýjar stórfram-
kvæmdir.
Vegna þess að viðskiptahallinn á síðasta ári reyndist mun meiri
en spáð hafði verið mun taka talsvert lengri tíma að draga svo úr hall-
anum að hann geti talist sjálfbær en áætlað var í grunnspánni í síð-
asta hefti Peningamála, þrátt fyrir mun strangara peningalegt aðhald.
Viðskiptahallinn dregst reyndar mikið saman á þessu ári og spáð er að
hann verði kominn niður í 13½% af vergri landsframleiðslu á fjórða
ársfjórðungi. Eftir það vinna neikvæð þróun viðskiptakjara og miklar
skuldir og vaxtagreiðslur af þeim gegn hjöðnun hallans, þótt hratt
dragi úr halla á vöru- og þjónustuviðskiptum. Spáð er að vöru- og
þjónustuviðskipti verði nálægt jafnvægi árið 2010, þ.e.a.s. hallinn
nemi innan við 1% af landsframleiðslu. Eftir stendur þá halli á jöfnuði
þáttatekna sem nemur um 8% af vergri landsframleiðslu. Til þess að
viðskiptahallinn verði sjálfbær í þeim skilningi að skuldasöfnun stöðvist
þarf hins vegar að myndast álitlegur afgangur á vöru- og þjónustu-
viðskiptum. Þetta eru alvarleg skilaboð um að þörf sé á langvarandi
aðhaldi í efnahagsmálum á næstu árum.