Peningamál - 01.03.2007, Blaðsíða 49
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
1
49
mánaða verðhækkun innfluttrar mat- og drykkjarvöru rúmlega 10%,
sem er óbreytt staða frá því í október sl.
Fyrir ári hækkaði verð nýrra bifreiða hratt í kjölfar gengislækk-
unar krónunnar. Að undanförnu hefur verð þeirra hækkað áfram
þrátt fyrir tiltölulega stöðugt gengi. Tólf mánaða verðhækkun nýrra
bifreiða nam tæpum 13% í mars og hafði verðið þá hækkað um ½%
að meðaltali milli mánaða frá sl. hausti. Líklegt er að verðhækkun frá
framleiðendum vegna hærra hráefnaverðs skýri þessa hækkun að ein-
hverju leyti. Verðlækkun bensíns að undanförnu hefur dregið verulega
úr verðbólgu. Í mars hafði bensínverð hækkað um rúmlega 2½% á
tólf mánuðum. Áhrif mikilla verðhækkana bensíns fyrir ári hverfa úr
mældri verðbólgu á næstu mánuðum og mun ársbreyting bensínverðs
þá mælast neikvæð.
Lækkun óbeinna skatta skilar sér út í vöruverð
Í mars var virðisaukaskattur á matvöru, veitingum og ýmissi annarri
vöru og þjónustu lækkaður úr 14/24,5% í 7%. Vörugjöld af allri mat-
vöru að undanskildu sælgæti og sykri voru afnumin. Verð á mat- og
drykkjarvöru lækkaði um 7½% í mars og skilaði lækkun virðisauka-
skatts sér í vöruverði nánast að fullu. Hins vegar hefur hún ekki enn
skilað sér að fullu til lækkunar á verði veitinga. Verð innlendrar vöru
án búvöru og grænmetis hefur lækkað um rúmlega ½% á síðustu tólf
mánuðum. Breytingar vörugjalda verða nokkru lengur að skila sér út í
vöruverð vegna birgða hjá framleiðendum og innflytjendum.
Ekkert lát á hækkun þjónustuverðbólgu
Verðlag almennrar þjónustu hefur haldið áfram að hækka frá útgáfu
Peningamála í nóvember. Í febrúar nam tólf mánaða verðhækkun
almennrar þjónustu rúmlega 6% og hafði ekki mælst hærri síðan
sumarið 2002. Í mars lækkaði verð almennrar þjónustu hins vegar um
rúmlega ½% enda gætir þar áhrifa lækkunar virðisaukaskatts m.a. á
veitingum, gistingu og veggjöldum. Framlag þjónustuverðbólgu til
mældrar verðbólgu er nokkuð hátt og má nú rekja rúmlega eina pró-
sentu af hækkun vísitölu neysluverðs á síðustu tólf mánuðum til hækk-
unar verðlags þjónustu einkaaðila. Þjónustuverðlag hækkaði töluvert
í ársbyrjun í takt við launahækkanir, en vísitala fyrir laun á almennum
markaði hækkaði um 3½% í janúar. Þótt þjónustuverðbólga hafi ekki
fylgt launahækkunum algerlega eftir að undanförnu er líklegt að hún
eigi enn eftir að aukast í ljósi þróunar innlendrar eftirspurnar og kostn-
aðartilefna.4 Hins vegar er hugsanlegt að áhrif erlends vinnuafls komi í
veg fyrir að þjónustuverðbólga verði eins mikil og launahækkanir gefa
tilefni til (sjá rammagrein VI-1).
Verðlag opinberrar þjónustu hækkaði umtalsvert í janúar þegar
ýmsar opinberar verðhækkanir bundnar við áramót komu til fram-
kvæmda. Í mars lækkaði verð opinberrar þjónustu um tæplega 1% og
gætir þar áhrifa lækkunar virðisaukaskatts á afnotagjöldum, rafmagni
og hita. Tólf mánaða hækkun nam rúmlega 3%.
4. Sjá umfjöllun um þjónustuverðbólgu, gengi og launakostnað á bls. 44 í Peningamálum
2006/3.
-10
-5
0
5
10
15
‘07200620052004200320022001
Mynd VIII-6
Vöruverð janúar 2001 - mars 2007
Heimild: Hagstofa Íslands.
12 mánaða breyting vísitölu (%)
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis
Dagvara
Mynd VIII-7
Nokkrir undirliðir vísitölu neysluverðs
júní 2004 - mars 2007
Áhrif á þróun vísitölu neysluverðs sl. 12 mánuði
%
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
2007200620052004
Húsnæði
Opinber þjónusta
Almenn þjónusta
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks
Vísitala neysluverðs
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VIII-8
Umfang verðhækkana vísitölu neysluverðs
janúar 2001 - mars 2007
12 mánaða breyting vísitölu (%)
1. Notað er 3 mánaða miðsett meðaltal.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Hlutfall vöruflokka sem hækka í verði (v. ás)1
Vísitala neysluverðs (h. ás)
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
‘07200620052004200320022001
%