Peningamál - 01.03.2007, Page 95
Tölfræðihorn
Yfi rdráttarlán heimila
Að undanförnu hefur verið talsverð umræða um yfirdráttarlán heimila. Í þessari grein er fjallað um þróun
þeirra og reynt að varpa ljósi á hana. Í því skyni hafa verið reiknaðar ýmsar stærðir út frá stöðutölum þeirra,
s.s. vaxtakostnaður og meðaltalsyfirdráttarlán á hvern einstakling í landinu.
Yfi rdráttarlán heimila hafa allnokkuð verið í umræðunni undanfarna
mánuði, en staða þeirra var 72 ma.kr. í lok janúar sl. samkvæmt
skýrslum innlánsstofnana til Seðlabankans. Þó er það svo, eins og sjá
má á mynd 1, að þau voru nánast óbreytt á árinu 2006 eftir að hafa
hækkað töluvert frá árunum 2004-2005 m.v. verðlag hvers tíma. Hins
vegar er hækkunin mun minni ef tölurnar eru færðar á fast verðlag
m.v. febrúar 2007.
Einnig vekur athygli þegar myndin er skoðuð að lítil lækkun varð á
yfi rdráttarlánunum við innkomu innlánsstofnana á fasteignalánamark-
aðinn á haustmánuðum 2004. Á þeim tíma voru uppi kenningar um að
einstaklingar hefðu breytt yfi rdráttarlánum í stórum stíl í langtímalán,
jafnvel til 40 ára, með því að taka rífl eg fasteignalán. Hins vegar var
lækkun yfi rdráttarlánanna frá ágúst 2004 til ársloka aðeins 6 ma.kr.
(10%) en strax í janúar 2005 fóru þau aftur að stíga upp á við.
Yfi rdráttarlán eru yfi rleitt dýrasta útlánaform sem heimilunum
stendur til boða hjá innlánsstofnunum. Hæstu vextir þeirra eru nú
23,95% hjá fl estum innlánsstofnunum, en þó eru ýmsir viðskiptamenn
sem njóta betri kjara á þessum lánum, s.s. námsmenn og sérstakir við-
skiptavinir. Hægt er út frá ofangreindum stöðutölum og vaxtaprósentu
að reikna vaxtakostnað heimilanna af þessum lánum.
Einn varnagla verður þó að slá við slíka útreikninga. Í stöðutölum
um yfi rdráttarlán í lok mánaðar eru innifaldar kreditkortaskuldir frá síð-
asta úttektartímabili, þ.e.a.s. skuldir á þeim kortum sem gefi n eru út
af innlánsstofnunum en ekki kortafyrirtækjunum sjálfum. Heildarvelta
á kreditkortum á úttektartímabilinu desember til janúar var tæpir 25
ma.kr., svo að dæmi sé tekið. Þegar dregin hefur verið frá þeirri tölu
velta á fyrirtækjakortum, raðgreiðslur sem eru vaxtaberandi, svo og
skuldir á kreditkortum útgefnum af kortafyrirtækjunum eru óvaxta-
berandi kreditkortaskuldir heimila sem innifaldar eru í yfi rdráttarlánum
nálægt 17 ma.kr.
Þannig er rétt og skylt að draga ofangreindar óvaxtaberandi upp-
hæðir frá yfi rdráttarlánunum áður en þau eru vaxtareiknuð. Vaxta-
greiðslur heimilanna vegna yfi rdráttarskulda í janúarmánuði sl. yrðu
samkvæmt þeirri aðferð 1.097 m.kr. í stað 1.437 m.kr. ef heildartala
á yfi rdráttarlánum væri notuð sem grunnur. Þar munar því 340 m.kr.
í vaxtakostnaði. Í báðum tilfellum er notuð hæsta vaxtaprósenta á
yfi rdráttarlánum, 23,95%.
Ef yfi rdráttarlánunum væri skipt niður á alla Íslendinga 18 ára og
eldri (228.203 talsins í árslok 2006 skv. tölum Hagstofu Íslands) kæmi í
Mynd 1
Yfirdráttarlán heimila
desember 2003 - janúar 2007
Staða í lok mánaðar
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Á verðlagi hvers tíma
Á föstu verðlagi
50
55
60
65
70
75
80
85
200620052004
Ma.kr.