Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Page 13
Mannaveiðari
múg, verða „heildstæð, ópersónuleg og ábyrgðarlaus lífvera“, en um það
fólk er sagt á voru máli að það sé „taglhnýtingur, blók, peð eða
dindilmenni“, en þetta er það sem Heidegger kallar „das Man“. Nútíma
fjölmiðlunartæki miða að því „að gera fjölda manns að hlutgervingum,
handhægum verkfærum ráðandi smáhópa eða opinberra yfirvalda“. Séra
Jóhann gerir að umræðuefni falstilveru, hlutgervingu, firringu í lífi
nútímamanna. Hann bendir á að hafa beri í huga, „að þessi fræði eru að
verulegu leyti neikvæða hliðin á því sem rannsaka þarf í samtíð vorri, og
það nægir auðvitað ekki“. Séra Jóhann ritaði og sérstaklega um þessi efni,
og má af þessu sjá, að það er persóna, velferð og frelsi mannsins sem
honum er hugstæð, og ég hygg, að hann hafi tekið greiningu existensíal-
ismans sem dæmi um lýsingu á andstæðu hins frjálsa, sem dæmi um líf í
myrkri, og líf sem ber að gagnrýna með það í huga, hver sé leiðin til
ljóssins. En það einkennir fræðimanninn séra Jóhann Hannesson, að hann
gætir þess vandlega að prédíka ekki í ritum sínum um heimspeki, og sá
sem les rit hans um Heidegger fer jafnvel að sakna þess að séra Jóhann
komi upp um sjálfan sig í textanum. Það gerir hann ekki. Hann rekur
vandlega, nákvæmlega og skýrlega hugsun Heideggers sjálfs, og tilkynnir
lesandanum ekkert um það, til hvers hann er að þessu. En ég hygg, að
séra Jóhann hafi haft áhyggjur af því, að beiting tækninnar í okkar
þjóðfélagi, og einkum menningarframleiðsluverksmiðjur leiði oft til þess
að keyra menn niður, gera úr þeim hluti, en það er alger andstæða þess
frjálsa lífs sem hann sá fyrir sér. Og það var vafalaust þessvegna, að séra
Jóhanni brá, þegar hann sá nemendur rjúka með ópum og látum út úr
skóla að vori og kveikja í skólabókum.
Ég held að séra Jóhann hafi ekki litið svo á, að hlutverk hans væri að fá
menn til að játa kristni með vömnum, heldur að gera líf hinna kristnu
þannig að það verkaði sem súrdeig á líf þjóðanna. í þeim skilningi veiddi
hann verkefni til að leysa í þágu safnaðarins. í þeim skilningi veiddi hann
menn til að þjóna hugsjón Krists.
Summary
In this article, the writer speaks of his association with Professor Jóhann
Hannesson, whom he met while they were both working on an education
committee in the early sixties. The writer describes how deeply
concemed Professor Jóhann Hannesson had been with Icelandic children
and how he had carefully researched the issue of their sense of well-being
at school. Jóhann Hannesson's conclusions showed that Icelandic school-
children did not feel sufficiently happy at school and, as a result, he
concentrated his attention on the education of their teachers.
At this time, Jóhann Hannesson was especially interested in the
influence of the media on the lives of individuals and on the nation as a
whole. He believed that the media encouraged the individual to be
unenterprising and inactive. In connection with this, he cited Heidegger's
theory conceming "das Man" ("the mob") which replaces individual
11