Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Blaðsíða 20

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Blaðsíða 20
Einar Sigurbjörnsson tagi má nefna Heidegger og frumatriði existensheimspekinnar,13 Enn- fremur má nefna áðumefnda ritgerð „Existensiell hugsun og existens- heimspeki.” Föst ritgerðarefni í almennum trúarbragðafræðum voru annars vegar „stjómmálastefnur” og hins vegar „lausnarleiðir indverskra trúarbragða.” Þjónaði annað þeim tilgangi að gera mönnum ljósa undirstöðu vestrænnar þjóðfélagsskipunar, en hitt var veitt í því skyni að menn gætu kynnst frá fyrstu hendi kenningum um lausnarleiðir, sem þá áttu þegar upp á pallborðið hér á landi í gegnum starf guðspekifélagsins og hefur síðan æ meira komið upp á yfirborðið í hinni s.k. nýaldarhreyfingu. Trúfræðinámið kom á eftir þessu og öðru undirbúningsnámi. í trú- fræðikennslunni fylgdi hann bók Regin Prenters, Skabelse og genlpsning. Sú trúfræði er barthiönsk að því leyti, að boðskapurinn er kristsmiðlægur og Kristur, krossfestur og upprisinn, er settur fram sem mælikvarði allrar kenningar í kirkjunni. Jafnframt því reynir Prenter að forðast það öngvegi barthianskrar hugsunar, sem einangrar kristna trú við sögulega opinbemn Jesú Krists og hafnar þeim spumingum, sem heimspeki og önnur trúarbrögð hafa fram að færa. Þessar tvær víddir koma fram í ritgerðinni „Hugtakið theologi”.14 Þar gefur hann þessa barthíönsku skýrgreiningu á guðfræðinni: Kirkjan skapaði guðfræðina til að gera sér grein fyrir athöfnum sínum, tilbeiðslu, prédikun, kennslu, lestri texta og túlkun þeirra, bænagjörð, lofsöng, þjónustu að sakramentum og öðrum helgum athöfnum. Viðfangsefni guðfræðinnar er kirkjan og það sem í henni gerist og hefir gerst og mun gerast á komandi tímum. Kunnasti guðfræðingur vorrar aldar, Karl Barth, orðaði þetta á þá leið, að „guðfræði stundum vér í dag vegna þess að prédika skal á sunnudaginn kemur”.15 Síðar í sömu ritgerð segir á þessa leið: Guðfræðingur er maður, sem rannsakar trú sinnar eigin kirkju og athugar, hvernig sú trú verður bezt fram sett í orðum og athöfnum. Guðfræðingurinn setur sig ekki út fyrir eigin kirkju, heldur stendur hann innan hennar.16 Hin víddin birtist í því, að þetta rýrir ekki gildi almennra trúarbragða- fræða. Að hans mati em þau ekki hluti eiginlegrar guðfræði, heldur falla við hlið hennar, en þau eru nauðsynlegar hjálpar- eða stoðgreinar, af því að þau fjalla um efni, sem eru sífellt uppi á teningnum og sérhver kennimaður verður að geta gert sér grein fyrir. Um mikilvægi þeirra segir hann í ritgerðinni um guðfræðina: Guðfræðingur þarf að kunna nokkur skil á þessum fræðum, þótt þau séu ekki guðfræði. Landamærin milli þeirra og guðfræðinnar mætti afmarka á þessa leið: Guðfræði stundum vér af því að kirkja Krists vinnur alla daga og vér þurfum að 13 Fjölrit Háskóla íslands 1969. 14 Fjölrit Háskóla íslands (ártal vantar). 15 „Hugtakið theologi" s. 4. 16 „Hugtakið theologi“ s. 8. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.