Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Page 97
Hugtakið theologi
guðfræðilegum verkefnum, heldur fjölgar þeim. Kristnihald undir ísfargi
vantrúar (glacies infidelitatis) er alveg eins merkilegt rannsóknarefni og
kristnihald undir jökli er merkilegt efni í skáldsögu og leikflutning.
Enginn efast um að læknir stundar sín vísindi þegar hann rannsakar
sjúklinginn. Með því að spyrja og fá svör og athuga sjúklinginn fær
læknirinn þekkingu, sem hann skrifar á blað svo að úr verður anamesis
og status praesens. Frekari rannsóknir leiða til enn meiri þekkingar, unz
læknirinn hefir byggt upp díagnosis, það er greiningu sjúkdómsins. Að
henni fenginni tekur læknirinn ákvörðun um meðferð og aðgerðir eða
engar aðgerðir þegar engin von er um lækningu.
A hliðstæðan hátt kann guðfræðingur að rannsaka sína eigin kirkju eða
aðrar kirkjur. Líkt og læknar finna hrömun eða úrkynjun á líkams-
ástandi, geta guðfræðingar fundið hrömun eða úrkynjun trúarbragða. Þó
mætti segja að það sé fremur hlutverk almennra trúarbragðavísinda en
guðfræði að skera út um hvort „den religiöse degenerasjonslov” er að
verki eða ekki. — Þegar trúarleg og siðferðileg verðmæti glata gildi sínu
meðal manna, verður krisis í andlegu lífi, en upp úr krisis getur margt
gerst: Dauði, langvinnt magnleysi eða endumýjun og vakning. Kirkju-
sagan sýnir að krisis hefir aftur og aftur komið fyrir í lífi kirkjunnar.
Víða hefir hún dáið alveg út — en einnig hefir hún áunnið ný lönd, nýjar
þjóðir og hlotið nýtt líf sjálf.
Fróðlegt er einnig að athuga hvemig ný trúarbrögð verða til og
breiðast út. Sum þeirra gerast keppinautar kristninnar og útrýma henni á
stórum svæðum, svo sem Islam á sínum tíma. Einkum er það merkilegt
rannsóknarefni hvemig ný trúarbrögð breiðast út — og hvemig kristnin
sjálf breiðist út, t.d. í Afríku á vomm tímum. Líkt er um siðina og háttu
manna. Sumir leggjast niður, en aðrir, stundum furðu gamlir, em teknir
upp.
15. Guðfrœðingur er maður sem rannsakar trú sinnar eigin kirkju og
athugar hvemig sú trú verður bezt fram sett í orðum og athöfnum.
Guðfræðingurinn setur sig ekki út fyrir eigin kirkju, heldur stendur hann
innan hennar.
Önnur afstaða er líka hugsanleg, að standa utan við allan átrúnað og
taka ekki neina afstöðu til neinna trúarbragða, leggja þau öll að líku,
ásamt vantrú, hjátrú, guðleysi og guðsafneitun, en rannsaka þó öll þessi
fyrirbæri. í reynd mun þó slík afstaða ekki vera til, heldur er hér á ferð
hugsjón hinnar fyrirbærafræðilegu (fenomenologisku) rannsóknaraðferð-
ar, sem næst þó ekki til fulls. Samt verður ekki hjá því komist að nota
aðferðina í almennum trúarbragðafræðum utan vors eigin átrúnaðar. En
þó er svo að þegar farið er að rannsaka einhvem hlut, þá er sú afstaða
tekin að hann sé rannsóknar virði, og þá ríkir ekki lengur algjört hlut-
leysi.
Almenn trúarbragðafræði greinast margvíslega út frá markmiðum
sínum. Algengt er að greina á milli fimm greina: Trúarbragðasögu,
fyrirbærafræði, trúarlífssálfræði, trúarbragða félagsfræði og trúar-
95