Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Page 122

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Page 122
Jóhann Hannesson ræðum hans flytur siðferðilegan boðskap. Hann deildi miskunnarlaust á alls konar lesti yfirmanna og undirmanna í þjóðfélaginu. Frá Tertullianusi kirkjuföður eru ýms rit varðveitt, en ekki ræður, hins vegar allmikið efni um fræðslu trúnemanna. Frá Cyprianusi er nokkuð varðveitt, en ekkert þýðingarmikið. Ágústínus kirkjufaðir ber prédikun Ambrósíusar fagurt vitni. „Ambrósíus fjarlægði hinn dularfulla hjúp og opnaði merkingu ritningar- orðanna.” Þó finnst oss ekki að sama skapi mikið til um þær ræður Ambrósíusar, sem varðveittar eru. Mikið af efninu er lán frá grískum feðrum, en sparlega er farið með allegóriskar skýringar. Hins vegar hafa prédikanir Ámbrósíusar ef til vill staðið í svo nánu sambandi við litúrgíuna, að maður skilur þær ekki lengur til fulls án þess að vita meira en nú er vitað um þetta samband við hina ýmsu liði messunnar. Menn hafa eignað Agústínusi kirkjuföður mörg hundruð prédikanir, sem varðveittar eru, og talið er að fjögur hundruð þeirra séu raun- verulega eftir hann. Vafalaust hafa margar af ræðum hans verið hrað- ritaðar jafn óðum og þær voru flutta, enda var hraðritun víða kunn í fomöld. De doctrina christiana heitir eitt af verkum Ágústínusar. Fjórða bókin í því verki er oft talin vera fyrsta tilraunin til sjálfstœðrar prédikunar- fræði. Kjami málsins í þeirri bók er ekki um form, heldur um innihald, það sem prédika skal. Kirkjufaðirinn reynir að losa prédikunina undan valdi mælskulistarinnar. Sjálfur var hann fjölmenntaður í þessari list, og skildi vel hvers konar bönd hún gat lagt á boðskapinn sjálfan. Rök Ágústínusar em á þá lund að Biblían eigi sér sína sérstöku mælskulist, sem sé á engan hátt síðri hinni veraldlegu. í Biblíunni er að finna hennar eigin mælskulistrænu sambönd, hennar eigin samlíkingar og orðatiltæki, sem prédikarinn verður að læra að hagnýta. Mælskulistin er í sjálfu sér ekki neitt markmið, heldur er hún auðmjúk ambátt guðlegrar vizku. Þess vegna keppir kirkjufaðirinn að því marki að nota einfalt mál, og það telur hann megineinkenni fagurs prédikunarstfls. Samt urðu áhrif hans til þess að ýmsar kategóríur fomrar mælskulistar komust inn í kirkjulega prédikun, og þar hafa þær haldizt fram til vorra tíma. Sem dæmi má nefna kenninguna um þrefalt hlutverk ræðumannsins, samkvæmt kröfum mælskulistarinnar: docere að kenna, að fræða með ræðunni. delectare að veita ánægju, skemmta áheyrendum. flectare að beygja, sem hér merkir að skírskota með röksemdum til skynsemi, tilfinninga og vilja. Þá er einnig frá honum komin kenningin um þrjár myndir talaðs máls, genus submissum, genus temperatum, genus grande, en í reynd merkir 120
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.