Jökull - 01.12.1985, Blaðsíða 160
Jarðfræðafélag íslands
Skýrsla Sigurðar Steinþórssonar, formanns félagsins um starfsemina
1982-1984
STJÓRN
Á aðalfundi 7. maí 1982 var Sigurður Steinþórsson
kjörinn formaður til tveggja ára í stað Kjartans Thors,
Ingibjörg Kaldal (gjaldkeri) og Kristinn J. Albertsson
(ritari) héldu áfram frá fyrri stjórn, en Hallgrímur Jón-
asson og Margrét Kjartansdóttir voru kjörnir með-
stjórnendur. Eftir aðalfund 25. maí 1983 tók Margrét
við störfum gjaldkera, Hallgrímur við störfum ritara, en
Ágúst Guðmundsson (eldri) og Hreinn Haraldsson
höfðu verið kjörnir meðstjórnendur.
FÉLAGSFUNDIR
Almennir fræðslufundir Jarðfræðafélagsins voru flest-
ir haldnir í Skólabæ, húsi Háskóla íslands við Suður-
götu. Fræðsluerindi á vegum félagsins veturna 1982—
1984 voru sem hér segir:
Haukur Jóhannesson: Súr innskot á Vesturlandi. 2.
nóvember 1982.
Sigurður Þórarinsson: Bjarnagarður. 23. nóvember
1982.
Axel Björnsson og Ingvar Birgir Friðleifsson: Af ráð-
stefnu og jarðhitamálum áNýja Sjálandi. 24. febrúar
1983.
Páll Imsland: Eldvirkni sem áhættuþáttur í landnýtingu.
8. mars 1983.
Einar Árnason: Þróunarkenning Darwins og staða
hennar í ljósi nýrri rannsókna. 29. mars 1983.
Páll Einarsson: Jarðskjálftar á Atlantshafshrygg og ís-
landi, tengsl við jarðskorpuhreyfingar, kvikuhólf og
kvikuflutningur. Aðalfundur, 25. maí 1983 í ráð-
stefnusal Hótels Loftleiða.
Jason Morgan (Princeton): The status of the NASA
satellite geodesy program and how these rapidly
developing techniques might be applied in Iceland.
19. október 1983 í kaffistofu R.H.
Jason Morgan: Hotspots and the Icelandic—Faeroe
plateáu (ásamt H.Í.). 20. október 1983 í St. 157, VR-
II.
Sigfús Johnsen: Enn um Grænlandskjarnann. 8. nóv-
ember 1983.
Karl Gunnarsson, Margrét Kjartansdóttir og Jón Eiríks-
son: Rannsóknaborun í Flatey. 29. nóvember 1983.
Hreggviður Norðdahl: Laus jarðlög frá síðasta jökul-
skeiði og lokum þess í Fnjóskadal. 7. desember
1983.
Ólafur Flóvenz: Viðnámsmælingar og þær upplýsingar
sem þær gefa um gerð efri skorpunnar á íslandi. 14.
febrúar 1984.
Vigdís Harðardóttir: Pikrít í Mælifelli. 14. mars 1984.
Guðmundur Ómar Friðleifsson: Rannsóknir á Geita-
fells-megineldstöðinni í Hornafirði. 16. apríl 1984.
Brian Whalley (Belfast): Rock Glaciers. 2. maí 1984,
St. 101, Lögbergi.
Brian Whalley: High-mountains geomorphology. 7. maí
1984, St. 101, Lögbergi.
Elsa Vilmundardóttir og Haukur Jóhannesson: Jarð-
fræðikortagerð á Orkustofnun og Náttúru-
fræðistofnun: staða hennar og framvinda. Aðalfund-
ur 23. maí 1984, Hótel Esju.
Fundarsókn mátti teljast allgóð, var oftast á bilinu 30
til 40 manns.
ÖNNUR STARFSEMI
Engar ráðstefnur hélt félagið á tímabilinu utan eft-
irmiðdagsfund í Skólabæ um jarðfræðikennslu í fram-
haldsskólum. Var það í samræmi við tillögu frá Þorleifi
Einarssyni, sem samþykkt var á aðalfundi 1983. Fund-
inn sóttu jarðfræðikennarar víðs vegar af landinu, úr
menntaskólum, fjölbrautaskólum og háskólanum, og
lyktaði honum með því að stofnuð voru samtök jarð-
fræðikennara í framhaldsskólum. Formaður var kjörinn
Sigríður P. Friðriksdóttir, en tilgangur samtakanna m.a.
að útvega og dreifa kennslugögnum.
Helgi Björnsson og Páll Imsland voru tilnefndir í
undirbúningsnefnd ráðstefnu sem Mannvirkjajarð-
fræðifélagið hyggst standa fyrir um „Náttúruhamfarir og
áhrif þeirra á byggð á íslandi“.
Hrefna Kristmannsdóttir var fulltrúi félagsins á 16.
Norræna vetrarmótinu í Stokkhólmi 1984, þar sem lagt
var fram og samþykkt tilboð íslendinga um að halda
vetrarmótið 1992, og þaðan í frá reglulega á 10 ára
fresti. Vetrarmót var haldið hér í fyrsta sinn 1982.
Jafnframt óskuðu íslendingar eftir því að eiga aðild að
undirbúningi vetrarmóta ef það mætti verða til þess að
158 JÖKULL 35. ÁR