Jökull - 01.12.1985, Blaðsíða 96
eldri en 10.000 ára hafa fundist á Suðurlandi andstætt
við Borgarfjörð og Melasveit. Skýring á þessu gæti verið
sú, að sjór hafi ekki verið kominn upp í 50-60 m hæð
fyrir um 12.000 árum, og því ekki von, að skeljar af
þeim aldri finnist á ofanverðu Suðurlandsundirlendinu.
í Borgarfirði eru allar skeljar, sem eru eldri en 10.000
ára, fundnar neðan 30 m h.y.s., að skeljum í Stóra-
Sandhól undanskildum (Ashwell 1975). Á Suðurlandi
eru allar skeljar, sem aldursgreindar hafa verið, ofan við
55 m hæð.
Niðurstaðan af ofangreindum hugleiðingum er, að Y-
garðurinn er eldri en Búðaframrásin og að M-garðarnir
gætu hugsanlega hafa myndast við framrás jökla á Búða-
stigi, sem endaði fyrir um 10.000 árum. M-garðarnir eru
alls ekki yngri. Um aldur Y-garðsins verður ekki með
vissu sagt en hann er vart yngri en frá Álftanesstigi eða
12.000 ára gamall, en gæti verið eldri.
Nú er hægt að geta sér nokkuð til um aldur hraunanna
tveggja undir Eyjafjöllum. Jökullinn, sem myndaði Y-
garðinn hefir gengið yfir Kambagilshraunið en þá var
Hamragarðahraunið ekki komið á sinn stað. Jöklarnir,
sem mynduðu M-garðana, hafa að öllum líkindum ekki
náð nema rétt upp á fyrrnefnda hraunið og skilið eftir
litlu jökulgarðana, sem þar er að finna. Kambagils-
hraunið er því með vissu runnið a.m.k. fyrir um 12.000
árum, áður en jöklar gengu fram og ruddu upp Y-
garðinum. Hraunið gæti þó verið nokkru eldra. Hamra-
garðahraunið hefir í fyrsta lagi runnið eftir að jöklarnir,
sem mynduðu Y-garðinn, hörfuðu fyrir um 11.000-
12.000 árum, en gæti verið nokkru yngra.
ÞAKKARORÐ
Kristján Sœmundsson og Bryndís G. Róbertsdóttir
lásu yfir handrit að grein þessari og bentu á margt sem
betur mátti fara. Þau eiga þakkir skildar.
HEIMILDIR
Ashwell, I.Y. 1967: Radiocarbon ages of shells in the
glaciomarine deposits of Western Iceland. Geogr. J.
133: 48-50.
Ashwell, I.Y. 1975: Glacial and late glacial processes in
Western Iceland. Geograf. Ann. 3-4: 225-245.
Elsa Vilmundardóttir 1977: Tungnaárhraun. Jarðfræði-
skýrsla. Orkustofnun OS ROD 7702: 156 bls.
Guðmundur Kjartansson 1943: Árnesinga Saga, 1.
bindi. Árnesingafélagið í Reykjavík, Reykjavík: 1-
250.
Guðmundur Kjartansson 1955: Fróðlegar jökulrákir.
Náttúrufræðingurinn 25: 154—171.
Guðmundur Kjartansson 1958a: Endaslepp hraun undir
Eyjafjöllum. Náttúrufræðingurinn 28: 127—140.
Guðmundur Kjartansson 1958b: Jarðmyndanir í Holt-
um og nágrenni. Rit Landbúnaðardeildar Atvinnu-
deildar Háskólans, B-flokkur, Nr. 11: 24 bls.
Guðmundur Kjartansson 1964: Aldur nokkurra hrauna
á Suðurlandi. Náttúrufræðingurinn 34: 101 — 113.
Guðmundur Kjartansson 1970: Úr sögu berggr-unns og
landslags á Miðsuðurlandi. Suðri 2: 12-100.
Halldór Torfason 1974: Skorradalur—Andakíll. Land-
mótun og laus jarðlög. B.S.-ritgerð, Verkfræði- og
raunvísindadeild Háskóla íslands: 30 bls.
Haukur Jóhannesson, Sveinn P. Jakobsson og Kristján
Sœmundsson 1982: Jarðfræðikort af íslandi, blað 6,
Miðsuðurland. Náttúrufræðistofnun Islands og
Landmælingar íslands, Reykjavík.
Hreinn Haraldsson 1981: The Markarfljót sandur area,
Southern Iceland: Sedimentological, petrographical
and stratigraphical studies. Striae 15: 65 bls.
Hreinn Haraldsson og Hans Palm 1980: A seismic
investigation in the Markarfljót sandur area, South-
ern Iceland. Striolae 2: 54 bls.
Ingibjörg Kaldal og Elsa G. Vilmundardóttir 1983:
Markarfljót. Lónfyllur og gjóskulög. Orkustofnun
OS-83054/VOD—26 B: 18 bls.
Kristján Sœmundsson 1965: Úr sögu Þingvallavatns.
Náttúrufræðingurinn 35: 103—144.
Kristján Sœmundsson 1979: Outline of the geology of
Iceland. Jökull 29: 7—28.
Kristján Sœmundsson og Sigmundur Einarsson 1980:
Jarðfræðikort af íslandi, blað 3, Suðvesturland.
Náttúrufræðistofnun Islands og Landmælingar
íslands, Reykjavík.
Nydal, R., K. Lövsett, K.F. Skullerud og M. Holm
1964: Trondheim natural radiocarbon measurements
IV. Radiocarbon 6: 280-290.
Ólafur Ingólfsson 1984: A review of Late Weichselian
studies in the lower part of the Borgarfjörður region,
western Iceland. Jökull 34: 117-130.
Olsson, I.U. og P. Piyanuj 1965: Uppsala natural
radiocarbon measurements. Radiocarbon 7: 315—
330.
Sveinn P. Jakobsson 1979: Petrology of Recent basalts
of the Eastern Volcanic Zone, Iceland. Acta Nat.
Isl. 26: 103 bls.
Þorleifur Einarsson 1964: Aldursákvarðanir á fornskelj-
um. Náttúrufræðingurinn 34: 127—134.
Þorleifur Einarsson 1968: Jarðfræði. Saga bergs og
lands. Mál og menning, Reykjavík: 335 bls.
Þorleifur Einarsson 1973: Jarðfræði. Mál og menning,
Reykjavík: 254 bls.
94 JÖKULL 35. ÁR