Jökull


Jökull - 01.12.1985, Blaðsíða 147

Jökull - 01.12.1985, Blaðsíða 147
Við jarðfræðirannsóknir hjá Krýsuvík, 1963. gosbeltafærslur og fellingamyndanir gera öll einföld landrekslíkön af landinu marklítil. ítarleg kortlagning stórra landshluta á síðustu áratugum hefur fyllt inn í þá mynd af halla jarðlaga sem Trausti gerði, en megin- niðurstöður hans standa enn óhaggaðar. Þyngdarmœlingar. Á árunum 1950-54 gerði Trausti þyngdarmælingar á um 900 stöðum víðsvegar um land- ið. Markmiðið var að gera almennt þyngdarkort af landinu og, þar sem kostur var á þéttari mælistöðum, að finna helstu staðbundnu þyngdarfrávikin. Nokkrar þyngdarmælingar höfðu verið gerðar á íslandi annað slagið frá síðustu aldamótum, en straumhvörf urðu með mælingum fransk-íslenska leiðangursins 1950, þegar mælt var á yfir 130 stöðum á suðurlandi og suðvestur- landi. Þessum mælingum hélt Trausti svo áfram og lauk þeim á fjórum árum. Mælingar Trausta leiddu í ljós þyngdarlægð undir landinu, en einnig fann hann mörg þau þyngdarfrávik sem einkenna stór innskot og megin- eldstöðvar. Ritgerð Trausta og kort eru enn í dag ítar- legustu birtu niðurstöðurnar um þyngdarsviðið á ís- landi, og segir það nokkuð til um hvílíkt afrek þessar mælingar hans voru á sínum tíma. Bergsegulmœlingar. Árið 1953 hóf Trausti kortlagningu stórra landshluta eftir segulstefnu í hraun- lögum ásamt Porbirni Sigurgeirssyni eðlisfræðingi og síðar prófessor. Hollenskur stúdent, Jan Hospers, hóf slíkar mælingar hér á landi en Trausti og Þorbjörn héldu þeim áfram. Eftir 1956 sá Trausti einn um kortlagninguna, en Þorbjörn safnaði sýnum og mældi á rannsóknarstofu. Kortlagningin leiddi í ljós nokkra tugi umpólana eða segulmóta í löngum jarðlagasniðum víðs vegar um landið. Einnig að meðalþykkt jarðlagasyrpa með sömu segulstefnu er 200-350 m, og að meðalþykkt- in fyrir syrpur með rétta og öfuga segulstefnu er áþekk. Trausti birti margar greinar um þessar rannsóknir, en dró allar helstu niðurstöðurnar saman, ásamt lýsingu á jarðlagaskipan, landmótun og bergmótun, í bók sem Vísindafélagið gaf út 1962. Eftir að Trausti lauk að mestu við segulstefnumæl- ingar sínar hefur mikið starf verið unnið á þessu sviði hér á landi, og þá með fullkomnari mælitækjum því Trausti notaði aðeins venjulegan áttavita. Niðurstöður Trausta og jarðfræðilýsingar standa þó enn fyrir sínu, svo langt sem þær ná, og hefur mátt nota bók hans frá 1962 að nokkru sem handbók við síðari rannsóknir. Myndun móbergs. Meðal yngri jarðfræðinga er Trausti einkum kunnur fyrir tvennt: gagnrýni sína á móbergskenningu Guðmundar Kjartanssonar, og fyrir andmæli sín gegn landrekskenningunni. Þótt rök þau sem Trausti færði gegn landreki hafi ekki staðist tímans tönn, verður að telja að meginatriðin í gagnrýni hans á móbergskenninguna standi enn. Til að leggja skynsamlegt mat á gagnrýni Trausta verða menn auðvitað að átta sig á því um hvað deilan snýst. Deilan snýst ekki um það hvort móbergsfjöll myndist í vatni — um það eru allir sammála — heldur hitt hvort gos undir þykkri íshellu jökulskeiða hefði náð að bræða sig upp í gegnum íshelluna og hlaða upp móbergsfjalli í því vatni sem þannig myndaðist. Margir virðast halda að Surtseyjargosið hafi sannað móbergs- kenningu Guðmundar, en það er mikill misskilningur. Surtseyjargosið sýndi aðeins að móbergsfjöll geta mynd- ast í vatni (sjó) og um það standa engar deilur lengur. Aflfræðilegir eiginleikar íshellu eru augljóslega allt aðrir en eiginleikar vatns, og rök Trausta gegn móbergskenn- ingu Guðmundar eru fyrst og fremst afl- og varmafræði- leg. Trausti afsannaði auðvitað ekki móbergskenning- una, því ávallt má deila um þær forsendur og nálganir sem notaðar eru í líkönum eins og því sem Trausti notaði við reikninga sína. En út frá líkaninu leiddi hann rök að því að þungi og styrkleiki ísaldarjökulsins myndi venjulega kæfa gosið í fæðingu, og ef gosið næði á annað borð að bræða sig gegnum íshelluna myndi opið sem þannig myndaðist verða álíka vítt og þykkt jökulsins. Þvermál stapa er oft 10 til 20-föld hæð þeirra (þykkt jökulsins) og eru verulegir varmafræðilegir erfiðleikar á að fá það hlutfall út frá móbergskenningunni. Trausti hefur einnig sýnt fram á að sum móbergsfjöll eru orðin JÖKULL 35. ÁR 145
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.