Jökull - 01.12.1985, Blaðsíða 123
Snjóflóð á íslandi veturinn 1983 — 1984
KRISTJANA G. EYÞÓRSDÓTTIR
Veðurstofu Islands
Rúmlega 500 snjóflóð voru skráð þennan vetur.
Nokkur þeirra voru stór og ollu verulegu eignatjóni.
Fimm menn björguðust úr þremur snjóflóðum.
í október, 16.-22., lenti rjúpnaskytta í snjóflóði á
Látraströnd. Barst maðurinn með flóðinu um 100 m og
grófst að hluta í því en tókst svo að losa sig sjálfur.
Fyrsta skaðasnjóflóð vetrarins varð 26. nóvember á
Skútudal í Siglufirði. Það skemmdi hitavatnsleiðslu og
rafmagnskapal á um 100 m kafla.
Þann 14. desember varð hrina votra snjóflóða á
Hnífsdal. Þá braut flóð úr Bakkagili tvo raflínustaura og
flóð úr Búðargili skemmdi girðingu á 150 m kafla.
Hálfum mánuði síðar, 30. desember, varð aftur tjón
af snjóflóði á Hnífsdal. Þurrt flekahlaup úr Bakkahyrnu
braut upp hurð á húsinu Dalbraut 9 og fyllti geymslu og
þvottahús. Það braut einnig tvo glugga hjá Eggveri s/f
og rann snjór inn í geymslupláss.
Þremur dögum fyrr, þann 27. desember, hafði snjó-
flóð úr Fagranesdal austan í Tindastóli tekið vatn af
rafstöðinni á Fagranesdal.
Fyrst í janúar snjóaði mikið um allt land. Þann 4.
janúar féll snjóflóð úr Bröttuhlíð í fjallinu Kubba við
Skutulsfjörð. Flóðið braut upp hurð á húsinu Kjarrholti
4, rann inn í svefnherbergi og gang. Skemmdi innan-
stokksmuni. Jafnframt bar flóðið með sér fólksbifreið
um 30-40 m og skemmdi talsvert. Sama dag hljóp
snjóflóð yfir veginn við Hraná á Svalbarðsströnd, braut
raflínu- og símastaur.
Veturinn 1983-84 var unnið að vegagerð undir Ólafs-
víkurenni. Nýja vegastæðið var fært þó nokkuð frá
berginu út á grjótvarnargarð, meðal annars til að verjast
snjóflóðum. Þann 23. janúar féll stórt flóð úr Enninu.
Það fór yfir nýja veginn og alla leið út í sjó. Stuttu síðar,
30. janúar, féll flóð úr Enninu á stóra beltisgröfu. Braut
það úr henni allar rúður og fyllti hana af snjó en
skemmdi ekki að öðru leyti.
í ofsaveðri, snjókomu og skafrenningi, að kvöldi 22.
febrúar, féll kraftmikið snjóflóð austast úr Enninu.
Snjór var þá sérstaklega mikill á þessum slóðum. Flóðið
lenti á verkstæðishúsi steypustöðvarinnar Bjargs h/f.
Þar hafði verktakafyrirtækið Hagvirki h/f, sem vann að
vegagerð undir Enninu, vinnuaðstöðu. Flóðið rann í
gegnum verkstæðishúsið. Þar inni voru tveir menn og
sluppu báðir lítið meiddir. Má telja það mikið lán.
Tugmilljóna tjón varð vegna flóðsins, þar sem öll tæki
steypustöðvarinnar og byggingar eyðilögðust auk tækja
og verkstæðislagers í eigu Hagvirkis.
Þann 8. apríl fóru tveir menn á vélsleðum fram af
brún Þvergils á Sprengisandi. Við það losnaði snjóflóð
sem bar mennina niður að gilbotni. Annar mannanna
grófst í flóðinu en félaga hans tókst að losa hann.
Síðasta dagsetta skaðasnjóflóð vetrarins féll 14. apríl
úr Kleifarhorni í Ólafsfirði. Það braut fiskihjalla, þrá
raflínustaura, skíðalyftu og kofa skíðamanna.
Meiri skaða af völdum snjóflóða urðu menn varir við
þann 25. apríl er komið var að ummerkjum snjóflóðs í
Kaldalóni. Stórt flóð hafði einhvern tíma um veturinn
fallið úr Þverárgili í Lónseyrarfjalli og brotið niður 12 m
af handriðinu á brúnni yfir Mórillu og auk þess skemmt
veginn að brúnni.
í 1. töflu eru talin upp snjóflóð á víð og dreif um
landið. Aðaláhersla er lögð á staðsetningu flóðanna,
dagsetningu og fjölda, en þegar upplýsingar eru til er
einnig gerð grein fyrir stærð og tegund. í 2. töflu er
samantekt frá nokkrum vegaköflum þar sem snjóflóð
eru að jafnaði tíðari en annars staðar.
Skráningaraðilar nú hafa eins og áður einkum verið
starfsmenn Vegagerðar Ríkisins um allt land og veður-
athugunarmenn, en einnig hafa ýmsir sent Veðurstof-
unni upplýsingar. Ennfremur hefur mátt finna frásagnir
um snjóflóð í dagblöðum og landshlutablöðum. Ýmsar
upplýsingar umfram það sem hér eru birtar er að finna á
skráningareyðublöðunum, sem eru varðveitt á Veður-
stofu íslands.
Víðtæk og nákvæm skráning á snjóflóðum er grund-
völlur að mati á snjóflóðahættu. Því eru ferðamenn sem
komið hafa að snjóflóði, séð það falla eða jafnvel lent í
því, á vegi eða í óbyggðum, hvattir til að koma því á
framfæri við Veðurstofu íslands eða Vegagerð Ríkisins.
ABSTRACT
SNOW AVALANCHES IN ICELAND 1N THE
WINTER OF1983 -84
Over 500 avalanches were recorded this winter. Some
ofthem caused extensive damage. Five people were saved
from three avalanches.
Information on the avalanches, such as location, time
of occurence and other properties is presented in tables.
JÖKULL 35. ÁR 121