Jökull - 01.12.1985, Blaðsíða 88
4. Mynd. Jarðlagasnið ofarlega í norðurbarmi gils
Syðstumerkurár. Frekari skýringar eru í texta. Fig. 4. A
schematic section of the northern side of the gully of the
Syðstumerkurá river.
brúninni vestan flatans. Guðmundur taldi, að hraunið
endaði þar sem það kemur niður á flatann og að einung-
is laust grjót úr því væri að finna þar fyrir neðan. Sveinn
P. Jakobsson (1979) taldi, að hraunið væri allt sundur-
laust á þessu svæði, en fann það aftur á móti fram í
brúninni þar fyrir vestan.
Hraunið hefir fallið fram af brúninni í tveimur kvísl-
um. Sú nyrðri hefir streymt niður sunnan með Merkurá
og er um 300 m breið. Syðri kvíslin er mun stærri, um
500 m breið, og er milli Syðstumerkurár og Bæjarlækj-
ar. Milli kvíslanna er þriðji óbrennishólminn og sá
stærsti. Hann myndar klettabrún í hlíðinni ofan við Mið-
Mörk. í hlíðinni austan Merkurbæja er hraunið auðrak-
ið og lítt hulið lausum jarðlögum. I hlíðinni austur af
Syðstu-Mörk sést glögg hrauntröð á kafla, sem vafalítið
er framhald Kambagils. Hraunið hverfur síðan í laus
jarðlög þegar niður á láglendið kemur. Þó glyttir í það í
skorningum og má með nokkurri vissu draga útlínur
hraunsins. Það markast að norðan af Merkurá, en að
sunnan af Syðstumerkurá, og nær jafn langt til vesturs
og hólarnir, sem rísa upp úr Markarfljótsaurum. Mið-
og Syðsta-Mörk standa á þessum sömu hólum.
Til að meta aldur hraunsins, var gerð athugun á þeim
jarðlögum, sem hraunið hvílir á og þeim sem ofan á
liggja. Hraunið hefir runnið í því landslagi, sem nú
einkennir svæðið og er ekki að sjá, að það hafi breyst
mikið síðan, nema að ár og lækir hafa grafið sig nokkuð
niður og að hluti hraunsins er á kafi í lausum og hálf-
hörðnuðum setlögum.
Bæði Merkurá og Syðstumerkurá hafa grafið sig niður
með hrauninu svo að undir það sést. Syðstumerkurá
hefir efst í gili sínu grafið sig niður fyrir hraunið á
alllöngum kafla. Hraunið hvílir þar yfirleitt á völu- og
hnullungabergi (4. mynd), sem víðast er illa eða ekki
lagskipt og er a.m.k. nokkrir metrar á þykkt og orðið
allhart og þétt. Undir hnullungaberginu er móberg eða
móbergsbreksía. Hnullungabergið samanstendur af mis-
stórum völum og hnullungum, sem eru allt að einum
metra í þvermál, en oftast hnefastórir og nokkuð vel
núnir. Millimassinn er sandkenndur ofan til, en neðar i
laginu verður hann gráleitur og leirkenndur eins og í
jökulbergslögum. Milli hraunsins og hnullungabergsins
er ekki vottur af lífrænum leifum s.s. koluðum jurta-
leifum eða mold. Uppi á flatanum hefir Merkurá grafið
sig niður með hrauninu á alllöngum kafla. Þar liggur
hraunið á um 1 m þykku völubergslagi (5. mynd) og
undir því er annað hraunlag. Neðra hraunlaginu fylgir
lítt máður en þéttur kargi, svo ekki er að sjá, að jökull
hafi lagst þungt á það. Gjallkarginn er þéttur af grá-
leitum leir, líkum þeim sem bindur jökulbergslög sam-
an. Þessu sama hraunlagi var fylgt norður eftir flatanum
og er það allt jökulsorfið. Á þessum stað eru heldur
86 JÖKULL 35. ÁR