Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 19

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 19
Félagar UNIFEM þau fimmtán ár sem UNIFEM hefur starfað á Íslandi hafa félagarnir alltaf stutt það dyggilega. UNIFEM fannst því við hæfi á þessum tímamótum að fletta upp í félagaskránni og taka nokkra félaga tali, fræðast um líf þeirra, áhugamál og skoðanir. Hvað hefur þú verið félagi í UNIFEM lengi? Í tvö ár. Hvað starfar þú við? Ég hef starfað sem leikari í 25 ár, auk þess sem ég hef verið í forsvari fyrir Bandalag íslenskra listamanna undanfar- in sex ár, en ég lét af því starfi á síðasta aðalfundi (í lok október). Ég hef einnig verið í MBA-námi með vinnu við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2003. Nýlega var ég skipuð Þjóðleikhússtjóri af menntamálaráðherra og mun taka við því starfi 1. janúar 2005. Hver eru áhugamál þín? Listir og mannúðarmál. Af hverju ákvaðstu að gerast félagi? Það var eiginlega fyrir hvatningu frá móður minni, Herdísi Þorvaldsdóttur, en hún hefur verið virkur félagi lengi. Hvaða þróunarmál eru þér hugleikin? Menntunarmál, ég lít svo á að árangursríkast sé að hjálpa fólki til sjálfshjálpar. Sérstaklega er mikilvægt að stuðla að aukinni menntun stúlkna, en þær standa víða illa í þessu tilliti, eins og kunnugt er. Þekking eykur einnig almenna víðsýni og er þannig árangursríkasta tækið til að hafa áhrif á afstöðu manna og trúarskoðanir til lengri tíma litið, eða þau hindurvitni sem halda konum niðri eða stuðla að misnotkun þeirra. Hvaða þýðingu hefur UNIFEM í þínum huga? Samtökin endurspegla táknræna samstöðu kvenna um allan heim um þau málefni sem varða líf og viðurværi kvenna í þróunarlöndunum. En samstaðan er ekki bara táknræn, því víða hefur UNIFEM einnig látið til sín taka með beinum og áþreifanlegum hætti. Er UNIFEM að standa sig? Ég er ekki dómbær á það, en hægt og bítandi hlýtur starf alþjóðasamtaka á borð við UNIFEM að skila árangri, við verðum að minnsta kosti að trúa því að svo sé. Ef þú ættir eina ósk handa konum heimsins, hver yrði hún? Að þær mættu í öllum tilfellum fá að njóta sín á sínum eigin forsendum án þess að þurfa að sæta andlegri eða líkam- legri kúgun vegna kynferðis síns. Finnst þér vera jafnrétti á Íslandi? Í orði já en ekki á borði, og það hefur minnst með góðan vilja að gera, hann er til staðar. Vandamálið er að við erum flest föst í viðjum vanahugsunar og tökum ósjálfrátt mið af þeim fyrirmyndum sem við ólumst upp við. Raunveru- legar hugarfarsbreytingar taka því miður langan tíma. Hvað má betur fara í jafnréttismálum hér á landi? Það snýr aðallega að okkur sjálfum að sýna og sanna að við höfum raunverulega eitthvað fram að færa í öllum málum og öllu tilliti. Við konur þurfum einfaldlega að vera djarfari en við höfum almennt þorað að vera hingað til og taka okkur það rými í tilverunni sem hæfir vitsmunum okkar og mannkostum. Tinna Gunnlaugsdóttir Kjartan Páll Sveinsson Hvað hefur þú verið lengi félagi í UNIFEM? Í þrjú ár. Hvað starfar þú við? Ég er hópstjóri á unglingadeild BUGL, en er á leið utan í meistaranám í mannfræði. Hver eru áhugamál þín? Ég hlusta mikið á tónlist, fylgist með fréttum. Svo er fátt betra en að sötra skoskt viskí og lesa góða etnógrafíu. Af hverju ákvaðstu að gerast félagi? Ég sá fyrirlestur með Waris Dirie um árið. Ég hef ferðast töluvert um horn Afríku þar sem umskurður kvenna tíðkast, og fannst mikilvægt að standa við bakið á samtökum sem láta sig varða málefni sem þetta. Hvaða þróunarmál eru þér hugleikin? Oft er mikil karlaslagsíða í þróunarverkefnum, þar sem starfsfólk þróunarsamtaka ber með sér fyrirfram mótaðar en ómeðvitaðar hugmyndir um kynhlutverk. Þær samræmast ekki endilega staðbundnum hugmyndum en karlmenn koma oftast betur út úr slíkum misskilningi. Þeir eru sjálfkrafa taldir höfuð heimilisins og að þeir taki ákvarðanir sem 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.