Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Blaðsíða 75

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Blaðsíða 75
framkvæmdaáætlana sem miða að því að draga úr fátækt (Poverty Reduc- tion Strategic Papers). Þetta er aðeins brot af stærri mynd þar sem kynja- og mannréttindi er látin liggja á milli hluta.“ Markmið 8, sem kveður á um alþjóðlegt samstarf um þróun og er hvað nýstárlegast, gæti þjónað mikilvægu hlutverki í að auka frumkvæðisrétt kvenna. Í fyrrnefndri UNIFEM-skýrslu segir það hins vegar hafa valdið miklum vonbrigðum innan raða alþjóðlegu kvennahreyfingarinnar að hvergi sé minnst á að kvennasamtök skuli eiga hlutdeild í þessu alþjóðlega samstarfi. Gagnrýnendur markmiðanna hafa einnig hnýtt í textann sem segir að frjáls markaður sé öllum fyrir bestu. Ástæðan er sú að reynslan hefur sýnt að áhrif markaðshyggjunnar hafa oft verið slæm fyrir konur, nema gripið sé til sérstakra aðgerða samfara þessari þróun. Noeleen Heyzer, aðalframkvæmda- stýra UNIFEM, varpaði fram eftir- farandi spurningu á fundi Alþjóðabankans um kynjajafnrétti og þúsaldar- markmiðin í lok árs 2003: „Hvers vegna ættu kvenréttindasamtök að veita þúsaldarmarkmiðunum um þróun athygli þegar þörfin á því að taka á málum varðandi rétt kvenna til kynheilbrigðis, ofbeldi gegn konum, hernaðarhyggju, ofstæki, fátækt og ójafnrétti fer vaxandi?“ Heyzer segir þetta verða að taka breytingum. „Ríki hafa þegar skuld- bundið sig formlega og lagalega til að ná kynjajafnrétti, sérstaklega ríki sem samþykkt hafa alþjóðlegan sáttmála um afnám alls misréttis gegn konum (CEDAW).“ Þó svo að þúsaldarmarkmiðin um þróun hafi ekki beina til- vísun í CEDAW kveður þúsaldaryfirlýsing skýrt á um að CEDAW skuli hafður að leiðarljósi við framkvæmd þúsaldarmarkmiðanna. Hvað er til ráða? Carolyn Hannan, yfirmaður á skrifstofu SÞ sem fer fyrir málefnum kvenna (Division for the Advancement of Women, DAW), Heyzer og forsvarsmenn Alþjóðabankans hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að kynja- víddin sé skoðuð sérstaklega í hverju markmiði fyrir sig, þótt aðeins sé Hver rannsóknin á fætur annarri hefur sýnt að aðferðir sem stuðla eiga að þróun eru ekki árangurs- ríkar nema konur leiki meginhlutverk. Þar sem konur taka fullan þátt má sjá árangur undir eins; fjölskyldur eru heilbrigðari og nærðari; tekjur þeirra, sparifé og fjárfestingar aukast. Það sem á við um fjölskyldur á líka við um samfélög og, til lengri tíma er litið, heilu ríkin.“ Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, mars 2003. minnst sérstaklega á konur og jafnrétti í tveimur markmiðum af átta. Að sögn Hannan er þörf á að þróa skýrar aðferðir sem tryggja að öll verkefni og stefnumótun sem á sér stað í anda þúsaldarmarkmiðanna taki mið af kynjasjónarmiðum. Þá þurfi að sjá til þess að fylgst sé með árangri ríkja við að ná jafnréttismarkmiðinu sem einnig felur í sér að efla frumkvæðisrétt kvenna. Í þessu starfi er brýnt að kyngreindum tölum sé safnað. „Til að þetta geti orðið að veruleika þurfa ríkisstjórnir, SÞ í heild sinni, alþjóðlegar og svæðisbundnar stofnanir, þar á meðal fjölþjóðastofnanir, óháð félagsamtök, fræðimannasamfélagið og fjölmiðlar að taka virkan þátt.“ Hannan og Heyzer hafa einnig ítrekað þörfina á að skuldbindingar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna varðandi réttindi kvenna og kynja- jafnrétti skuli hafðar að leiðarljósi. Þessar skuldbindingar hafa verið settar fram á heimsþingum síðustu tvo ára- tugi í Peking, Kaíró, Vínarborg og Kaupmannahöfn og á ráðstefnunni um HIV/alnæmi sem haldin var í New York. Þá vísa þær einnig í CEDAW, sem skyldar ríki til að efla og vernda réttindi kvenna og hefur verið samþykkt af 172 ríkjum. „Til að kynjajafnrétti og kvenréttindi geti orðið órjúfanlegur hluti af þúsaldarmarkmiðunum um þróun þarf að setja þau í samhengi við önnur alþjóðleg markmið og sáttmála eins og CEDAW. Til þess þarf skuldbindingu ríkja sem veita þróunaraðstoð til að styðja við bakið á konum og auka frumkvæðisrétt og almenn réttindi þeirra. Þetta krefst aukins stuðnings við samtök sem vinna að jafnrétti kynjanna svo þau geti knúið á um aðgerðir sem miða að því að skuldbindingar verði að veru- leika. Að lokum krefst þetta viðurkenningar þróunarsamfélagsins á að grundvallarskilyrðið fyrir samþættingu kynjasjónarmiða er skuldbinding gagnvart mannréttindum kvenna og auknum frumkvæðisrétti kvenna,“ sagði Heyzer á fundi Alþjóðabankans í lok árs 2003. Heimildir og ítarefni www.mdgender.net • www.unifem.org Niðurstaða ráðstefnunnar var að þrátt fyrir að fjöl- margar ríkisstjórnir hafi áréttað mikilvægi þess að viðurkenna kvenréttindi sem mannréttindi á vett- vangi SÞ skili það sér takmarkað í þúsaldaryfirlýsing- unni og þúsaldarmarkmiðunum um þróun. Í markmið- unum skortir til að mynda áherslur á rétt kvenna til kynheilbrigðis, sæmandi vinnustaðla (decent work standards) fyrir karla og konur, auk þess sem hvergi er minnst á ofbeldi gegn konum. Ljósm ynd : Róshild ur Jónsd óttir/V íetnam
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.