Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 62

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 62
Fjölmargar stúlkur í Úganda eiga hvergi í hús að venda vegna alnæmis. Erla Halldórsdóttir þjóðfélagsfræðingur tók sig til og stofnaði samtök sem hafa það að markmiði að styðja þessar stúlkur og efla frumkvæðisrétt þeirra, en UNIFEM á Íslandi hefur lagt starfseminni lið. Hér segir hún frá tildrögum að stofnun samtakanna og daglegu starfi þeirra. Í Úganda voru stofnuð samtök í apríl 2001, sem hafa að markmiði að styðja unglingsstúlkur sem vegna alnæmis hafa ekki í nein hús að venda. Allar stúlkurnar eru munaðarlausar, flestar vegna alnæmis, og um þriðjungur þeirra er HIV-jákvæður. Samtökin heita Candle Light Found- ation (CLF), en stofnandi þeirra, Erla Halldórsdóttir, hefur dvalist lang- dvölum í Afríku og gerði m.a. mannfræðirannsókn á árunum 1999-2001 á högum barna í Úganda sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi. Stuðningur til sjálfshjálpar Grunnhugmynd verkefnisins er sú að stálpaðir krakkar og unglingar, sem flosnað hafa úr skóla og jafnvel lent á götunni, geti hjálpað sér sjálfir ef þeim er gefið tækifæri til þess. CLF er því nokkurs konar vinnuheimili. Þar eru framleidd kerti sem seld eru í Úganda og þannig fást peningar til að greiða laun. Auk þess er stúlkunum veitt félagsleg aðstoð. Strax í upphafi var ákveðið að leggja áherslu á aðstoð við stúlkur. Ekki var talið gott að blanda saman kynjunum hjá þeim aldurshópi sem um ræðir (15-20 ára) auk þess sem stúlkur eiga mun erfiðara uppdráttar en strákar. Þær eiga mjög erfitt með að fá vinnu og ættingjar gifta þær gjarnan eða senda í vist þar sem þær fá þó allajafna ekki laun fyrir vinnu sína. CLF-samtökin eru orðin vel þekkt meðal götubarna í Kampala og margar stúlkur um þau fáu pláss sem losna á heimilinu. Um helmingur stúlkna sem CLF tekur við koma beint af götunni. Þær hafa þá hafst þar að í mislangan tíma. Götulífinu fylgir gjarnan kynlífssala og eitur- lyfjanotkun. Þó er það svo að um helmingur þeirra stúlkna sem koma til CLF og fá þar inngöngu hafa ekki selt sig eða notað eiturlyf. Hinn helmingurinn eru svokallaðar „community girls“, stúlkur sem misst hafa nánustu ættingja, en einhverjir vinir eða ættingjar lofa þeim að búa hjá sér. Þessar stúlkur fá enga aðstoð frá þessum velunnurum sínum, aðeins stað til að liggja á og að borða þegar eitthvað er til handa þeim. Félagsleg aðstoð og menntun Auk þess sem stúlkurnar fá vinnu hjá CLF fá þær kennslu í samræmi við getu hverrar og einnar. Þar fæst einnig læknisaðstoð og hægt er að komast til félagsráðgjafa, bæði í hóp- og einstaklingsviðtöl. Hjá CLF hafa stúlkurnar aðstöðu til þrifa og þvotta en aðgangur að rennandi vatni er ekki sjálfsagður í því umhverfi sem þær koma úr. Stúlkum sem býðst tækifæri til að taka þátt í CLF-verkefninu verða að sýna að þær stefna lengra og að þær séu tilbúnar að stunda nám eða vinnu þegar þær hafa náð sér á sál og líkama. Þegar stúlkur koma til CLF fara þær í læknisskoðun og þeim eru lagðar til brýnustu nauðsynjar, dýna til að sofa á og föt. Sumar stúlknanna geta fengið að búa áfram þar sem þær voru áður, og er því gjarnan vel tekið heima fyrir þar sem einhver úr fjölskyldunni fær að deila dýnunni með þeim. Ef stúlkur hafa engan samastað og fá ekki inni lengur leigja þær sér herbergi tvær og tvær saman og CLF greiðir húsaleiguna fyrstu þrjá mánuðina. Að þeim tíma liðnum eru þær búnar að koma svo undir sig fótunum að þær geta greitt fyrir sig sjálfar. UNIFEM á Íslandi hefur tvisvar veitt CLF fjárstuðning, nú síðast í vor. Þeir fjármunir sem UNIFEM lagði til CLF í ár hafa nýst samtökunum einkar vel við að aðstoða nýjar CLF-stúlkur. Mikil áhersla var lögð á það í upphafi að CLF væri fyrir stúlkurnar og rekið af þeim sjálfum. Stúlkur í Úganda eru ekki aldar upp við að geta haft mikil áhrif á umhverfi sitt og það reyndist því þrautin þyngri að koma þeim í skilning um að þær ættu að ráða ferðinni og hefðu tillögu- rétt um öll málefni. Fyrstu reglur CLF voru settar af stúlkunum og voru í stórum dráttum þessar: Fljótlega stofnuðu stúlkurnar sjálfar siðanefnd sem tók á hegðunar- brotum og ræddi um hvað hægt væri að gera í framtíðinni. Ljós í myrkri Um störf Candle Light Foundation í Kampala, Úganda • Það er ekki skylda að mæta til vinnu • Það má hafa börnin sín með í vinnuna • Það má ekki nota eiturlyf hjá CLF Lj ós m yn d ir m eð g re in : E rla H al ld ór sd ót tir 62 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.