Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 20

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 20
Amal Tamimi Hvað hefur þú verið félagi í UNIFEM lengi? Í um tvö ár Hvað gerir þú? Ég hef verið í BA-námi í félagsfræði síðastliðin þrjú ár og útskrifast í október. Hver eru áhugamál þín? Meðal annars pólitík, félagsmál og kvenréttindi. Einnig finnst mér gaman að elda mat og dansa. Af hverju ákvaðstu að gerast félagi? Ég fór á ráðstefnu um konur og stríð í Háskólanum á vegum UNIFEM. Þar sem ég er frá Palestínu og hef upplifað stríð fann ég samhljóm með því sem UNIFEM segir og að UNIFEM geti hjálpað konum í stríði, þá sérstaklega í Palestinu og Írak núna. Mér finnst ég líka geta lagt mitt af mörkum til félagsins og frætt konur á Íslandi um stöðu kvenna í Palestínu. Hvaða þróunarmál eru þér hugleikin? Að hjálpa konum sem búa við stríð. Konur sem búa í stríðshrjáðum löndum búa ekki bara við ógnina af dauða því félagsleg staða þeirra versnar til muna. Þær búa einnig við óttann við nauðgun, kúgun, hungur og atvinnuleysi og í raun neyðast þær til að setja persónulegan þroska í biðstöðu. Hvaða þýðingu hefur UNIFEM í þínum huga? UNIFEM og slík félög eru mjög mikilvæg í mínum huga. Fólk treystir almennt Sameinuðu þjóðunum og reiðir sig á hlutleysi þeirra og þess vegna hefur UNIFEM sérstöðu hvað varðar málefni kvenna um allan heim, ekki síst kvenna á stríðshrjáðum svæðum. Er UNIFEM að standa sig? Já, en alltaf er hægt að gera betur og meira. Ef þú ættir eina ósk handa konum heimsins, hver yrði hún? Að þær myndu stjórna heiminum og þá yrði heimurinn mun sanngjarnari. Finnst þér vera jafnrétti á Íslandi? Miðað við margar aðrar þjóðir heims ríkir hér heilmikið kynjajafnrétti. En hér er samt ennþá töluvert karlaveldi. Ekki hefur tekist að jafna launamun kynjanna og hlutur kvenna í stjórn- málum, stjórnum stórra fyrirtækja og í fjármálaheiminum er því miður ekki jafn hlut karla. Fæðingarorlofslögin voru þó eitt skref í rétta átt. Hvað má betur fara í jafnréttismálum hér á landi? Jafna þarf launamun kynjanna og hlut kvenna í stjórnmálum, stjórnum stórra fyrirtækja og fjármálaheiminum. Einnig þarf að auka hlut karla í hefðbundnum kvennastéttum, svo sem leik- og grunnskólanum og hjúkrun. Varðandi stöðu kvenna af erlendum uppruna þarf að meta betur menntun sem konur koma með sér til Íslands og gefa þeim fleiri tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu, t.d. með því að mennta sig eða taka þátt á sem fjölbreyttastan hátt í atvinnulífinu, ekki bara í láglaunastörfum. Þær þarf að fræða betur um réttindi sín og skyldur. Sum lög vinna hreinlega gegn hagsmunum kvenna af erlendum uppruna, t.d. kvenna sem búa við heimilisofbeldi. Ef þær vilja skilnað missa þær um leið dvalarleyfið. slíkir. Afleiðingarnar geta verið þær að konur missi úr höndunum hefðbundið valdasvið sitt, og þar með raskast valda- jafnvægi milli kynjanna. Ef þú ættir eina ósk handa konum heimsins, hver yrði hún? Allir, konur sem karlar, eiga að lifa við öruggar framtíðarhorfur fyrir sig og börnin sín. Aftur á móti heyrast raddir kvenna ekki jafnvel og raddir karla. Þar af leiðandi er oft litið framhjá þekkingu kvenna sem getur leitt til þess að réttindi þeirra eru sniðgengin. Ég vildi því að allar konur öðlist rödd, að hlustað væri á þær og þær metnar að verð- leikum. Finnst þér vera jafnrétti á Íslandi? Mér finnst komið ákveðið bakslag í íslensk jafnréttismál, ekki síst vegna þess að ungar konur eru ef til vill að sofna á verðinum. „Ekkert svona rauðsokkukjaftæði“ er setning sem ég heyri allt of oft frá ungu fólki af báðum kynjum. Hvað má betur fara í jafnréttismálum hér á landi? Við eigum langt í land hvað varðar launamisrétti og ábyrgðar- og stjórnunarstöður. Annars var fæðingarorlof feðra skref í rétta átt, það þarf að ala upp í karlmönnum að heimilið sé góður og virðingarverður staður, og að virk þátttaka í heimilishaldi sé bæði gefandi og skemmtileg. �������������������� �������������� �� ����������� ��������� 20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.