Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 43

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 43
friðarsamningum og sjá til þess að kynjasjónarmið séu höfð til hliðsjónar við þjálfun friðargæslusveita. Að auki er áhersla lögð á verndun kvenna og stúlkna í hernaðarátökum og samþættingu jafnréttissjónarmiða í skýrslum og úttektum sem og á öllum stigum undirbúnings og framkvæmda friðargæsluverkefna. Þótt nokkuð hafi áunnist hvað framkvæmd ályktunar nr. 1325 varðar er enn langt í land. Til að mynda var gerð úttekt á því hversu vel og reglulega jafnréttissjónarmið voru samþætt í skýrslum til öryggisráðsins á tímabilinu janúar 2000 til september 2003. Úttektin leiddi í ljós að í 17,8% tilfella var oft minnst á kynjasjónarmið. Í 15,2% tilfella var sjaldan minnst á kynjasjónarmið og í 67% tilfella var einu sinni eða aldrei minnst á konur og kynjamálefni. Konur til ákvarðanatöku Starfsemi UNIFEM er víðtæk á sviði þróunaraðstoðar við konur og stúlkur og er því eftirfarandi upptalning aðeins brot að því sem sam- tökin fást við. Á sviði ákvarðanatöku vinnur UNIFEM að því að efla jafnréttissjónarmið er varða kosningaþátttöku, stjórnskipulag og réttar- farslegar umbætur. Í um tíu ár hefur UNIFEM í samstarfi við ríkisstjórnir, stofnanir innan Sameinuðu þjóðanna og alþjóðleg og innlend samtök, pólitísk og ópólitísk, aðstoðað konur á átakasvæðum og styrkt þátttöku þeirra í ákvarðanatöku og friðarumleitunum. UNIFEM þjálfaði 145 konur í Austur-Tímor til þátttöku í framboði til kosninga. Af þessum konum tóku 26 þátt í framboði til neðrideildar þingsins og ein af þeim var kosin á þing. Aðstoð UNIFEM við að styrkja konur til forystu í Guatemala og innleiða kynjasjónarmið inn í kosninga- , laga- og dómskerfið varð til þess að fleiri konur voru kosnar í bæjarstjórnir. Til að tryggja að tekið væri tillit til málefna kvenna meðan á friðarumræðum stóð í Kongó aðstoðaði UNIFEM við stofnun kvennabandalags. Bandalagið lagði áherslu á að fræða embættifulltrúa um jafnréttissjónarmið og málefni kvenna. UNIFEM skipulagði einnig fund í Kenía með konum frá Kongó sem varð til þess að sameinast var um framkvæmdaáætlun sem byggðist á tillögu kvenna að friðarumleitan í Kongó. Aðstoð UNIFEM við konur á tímum friðaruppbyggingar er einnig eitt af meginmarkmiðum samtakanna. Að tryggja þátttöku kvenna í uppbygg- ingu í Afganistan er gott dæmi. Í desember 2001 aðstoðaði UNIFEM við að skipuleggja leiðtogafund afganskra kvenna. Afrakstur fundarins var m.a. markvisst skipulag innan embættiskerfisins þar sem samþætting jafnréttissjónarmiða er þáttur í uppbyggingu landsins. UNIFEM hefur einnig aðstoðað við stofnun svæðisbundinna kvennamiðstöðva sem er ætlað að aðstoða afganskar konur við að afla sér menntunar, heilsugæslu og atvinnu. UNIFEM hefur aðstoðað við friðaruppbyggingu í Sómalíu síðan 1993. UNIFEM og konur frá Sómalíu, ásamt styrktarþjóðunum Danmörku, Ítalíu og Hollandi, fögnuðu miklum sigri árið 2000 er sómalískar konur tóku þátt í samningaviðræðum um tillögur að stjórnarfyrirkomulagi sem varð til þess að konur fengu 27 sæti á þingi. Að koma á samningaviðræðum milli stríðandi fylkinga er forsenda þess að friður komist á. Árið 2000 tók UNIFEM þátt í samstarfsverkefninu Palestína – Ísrael, sem var styrkt af hollenska utanríkisráðuneytinu. Aðalframkvæmdastýra UNIFEM fór fyrir alþjóðlegri sendinefnd stýrði samningaviðræðum kvenna frá Palestínu og Ísrael. Verkefnið hafði í för með sér að samþykkt var að vinna að svokallaðri friðardagskrá kvenna á þessu svæði. Mansal er nútímaþrælahald Í stríði verða konur og stúlkur oft utangarðs í samfélaginu, þ.e. þær fá ekki þá vernd og aðstoð sem aðstæður kalla á. UNIFEM hefur lagt mikið upp úr því að aðstoða við að veita þeim vernd, sem og félagslega og efnahagslega aðstoð. Sérstök áhersla er lögð á að koma í veg fyrir kyn- bundið ofbeldi og mansal. UNIFEM hefur í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar og frjáls félagasamtök í Afríku starfað með flóttamönnum í Búrúndí og Tansaníu og veitt þeim nauðsynlega aðstoð. Þá hefur UNIFEM veitt konunum og börnum efnahaglega og félagslega aðstoð í Tajikistan og skipulagt áætlun til að aðstoða HIV-smitaðar konur í Sierra Leone. Auka þátttöku kvenna í ákvarðanatöku og í friðarsamning- um. Leggja meðvitað áherslu á að skipa konur í háttsettar stöður og þannig tryggja að hlutverk og ábyrgð kvenna sé aukin við friðargæslu, jafnframt því að kynjasjónarmið kvenna endurspeglist almennt við friðargæslu. Ákvæðið hvetur einnig aðildarríki til að fjölga konum í friðargæslu- sveitum, í lögreglu og meðal borgaralegra starfsmanna. Vegna ólíkra kynjasjónarmiða og menningarlegra aðstæða er mjög mikilvægt að fórnarlömb kynferðismisþyrminga og mansals geti leitað til kvenkyns lögreglu og meðlima friðar- sveita í stað karlmanna, þegar það á við. Kynjasjónarmið og þjálfun friðargæslusveita. Öryggisráðið á að veita aðildarríkjum og friðargæslusveitum viðmiðunar- reglur og tiltaka kynjasjónarmið. Aðildarríki eiga að þjálfa borgaralega starfsmenn og lögreglu friðargæslusveita sinna með kynjasjónarmið í huga. Aðildarríkjum ber einnig skylda til að auka eftir þörfum fjármagn til þjálfunar þar sem tekið er tillit til kynjasjónarmiða. Meðvitað að vernda konur í hernaðarátökum. Aðildarríki í hernaði og uppbygginu eftir átök eiga að virða mannrétt- indi kvenna og stúlkna og lögsækja stríðsglæpamenn og þá sem brjóta gegn mannréttindum, þar með talin kynferðisaf- brot og önnur ofbeldisbrot gegn konum. Samþætting jafnréttissjónarmiða þannig að það sé þáttur í heildarkerfi Sameinuðu þjóðanna og sé útfært kerfisbundið í öllum skýrslum. Aðalritara Sameinuðu þjóðanna er gert að samþætta jafnréttissjónarmið skýrslum sem berast öryggis- ráðinu og gera reglulega úttekt á því hver áhrif átaka eru á konur og stúlkur. UNIFEM fylgdi þessu eftir og tilnefndi tvo óháða sérfræðinga til að meta áhrif hernaðar á konur og hlutverk kvenna í friðaruppbyggingu. Afraksturinn er skýrslan Konur, Stríð, Friður (Women War Peace) og kom út 2002. Kofi Annan aðalritari hefur beðið um að þeirri skýrslu verði fylgt eftir 2004. Ályktun nr. 1325 heitir á öryggisráðið, aðalritara SÞ, aðildarríki, þátttakendur í átökum og aðra viðkomandi aðila að láta til sín taka á eftirfarandi sviðum: Ljósmynd: Davíð Logi Sigurðsson/Írak 42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.