Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Qupperneq 51

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Qupperneq 51
Í takt við breyttar áherslur Opinbera þátttöku Íslands í alþjóðlegri friðargæslu má rekja allt aftur til ársins 1950 þegar tveir lögregluþjónar fóru til starfa á vegum Sameinuðu þjóðanna í Palestínu. Eftir það lá starfsemin að mestu niðri framundir 1994 þegar Ísland hóf markvissa þátttöku í friðargæslu með því að senda heilbrigðisstarfsfólk til starfa til Bosníu og Hersegóvínu og lögregluþjóna til sama lands þremur árum síðar. Starfsemin varð fjölbreyttari upp úr aldamótunum þegar borgaralegir sérfræðingar, til dæmis fjölmiðlafólk, verkfræðingar og jafnréttissérfræðingar, fóru til starfa á vegum utan- ríkisráðuneytisins hjá ÖSE, NATO og SÞ. Sú þróun var í takt við áherslur utanríkisráðuneytisins á aukna þátttöku í starfi fyrrnefndra stofnana. Fyrst var tæpt á mikilvægi aukins framlags Íslands í skýrslu um öryggis- og varnarmál frá 1993 og var sú stefna ítrekuð enn frekar í næstu skýrslu um sama efni sem kom út 1999. Árið 2000 var myndaður sérstakur vinnuhópur fjögurra ráðuneyta um þátt- töku Íslands í alþjóðlegri friðargæslu sem skyldi útfæra nánar tillögur sem komið höfðu fram í fyrri skýrslum. Í kjölfar skýrslu vinnuhópsins var íslenska friðargæslan stofnuð í september 2001 og komið á fót tæplega hundrað manna skrá yfir einstaklinga sem voru reiðubúnir að gefa kost á sér til friðargæslustarfa með stuttum fyrirvara. Samsetning viðbragðslistans svokallaða tók mið af fyrri þátttöku utan- ríkisráðuneytisins í friðargæslu og var á listanum að finna heilbrigðis- starfsfólk, fjölmiðlafólk, verkfræðinga, stjórnmálafræðinga, lögfræðinga, viðskiptafræðinga og hagfræðinga auk annarra borgaralegra sérfræðinga með sérmenntun og víðtæka reynslu. Í auglýsingu fyrir stofnun íslensku friðargæslunnar voru konur sérstaklega hvattar til að skrá sig á viðbragðs- listann. Fyrsta starfsárið var svipað fyrri árum, haldið var áfram að senda heil- brigðisstarfsfólk, lögregluþjóna og borgaralega sérfræðinga í stöður hjá ÖSE, NATO og SÞ – og síðar einnig undir merkjum norræns samstarfs á Sri Lanka. Starfsemin tók þó mikilvægum breytingum haustið 2002 þegar samningar náðust um að íslenska friðargæslan tæki að sér rekstur flugvallarins í Pristína í Kósóvó. Verkefnið þótti um margt nýstárlegt. Þetta var í fyrsta sinn sem smáþjóð tók að sér rekstur á verkefni á vegum NATO og sú sérþekking sem það krafðist var nýjung hjá íslensku friðar- gæslunni. Rekstur flugvallarins heppnaðist þó með ágætum og störfuðu þegar mest var 15 Íslendingar á flugvellinum en undir þeirra stjórn voru tæp- lega 200 hermenn frá 13 þjóðum. Tvær konur voru í hópi þeirra 18 Íslendinga sem störfuðu við flugvöllinn. Flugvöllurinn í Pristína var af- hentur yfirvöldum Sameinuðu þjóðanna í Kósóvó í apríl 2004 en þá hafði þegar verið gengið frá samningum um rekstur íslensku friðargæsl- unnar á enn stærri flugvelli, alþjóðaflugvellinum í Kabúl í Afganistan, sem formlega var tekið við í júní 2004. Kabúl-verkefnið er mun umfangsmeira og flóknara en reksturinn í Pristína. Í Kabúl leggja Íslendingar til 17 af rúmlega 300 stöðugildum sem þarf til að reka flugvöllinn, þ.m.t. flugvallarstjórann en undir honum starfar rúmlega 900 manna herlið frá 24 löndum. Íslendingarnir sinna flestir flugumferðarstjórn, slökkviliðsstörfum og öryggismálum. Á sérstök- um 50 manna viðbragðslista fyrir Kabúl-verkefnið er einungis ein kona. Síðan tekið var við rekstri flugvallarins í Pristína og síðar í Kabúl, hafa seglin verið dregin saman á öðrum stöðum. Um mitt ár 2004 voru einungis að störfum tveir lögreglumenn og einn fjölmiðlafulltrúi í Bosníu og Hersegóvínu, jafnréttisfulltrúi UNIFEM og fjölmiðlafulltrúi í Kósóvó og tveir borgaralegir sérfræðingar á Sri Lanka. Á sama tíma störf- uðu um 17 Íslendingar við flugvöllinn í Kabúl. Breytingar á viðbragðslistanum Breytingum á starfsemi íslensku friðargæslunnar hefur vissulega fylgt nokkur breyting á viðbragðslista hennar. Árið 2001 skipuðu karlar 62% viðbragðslistans en 38% voru konur. Þremur árum síðar hafði konum fækkað úr 38% í 28% og samsetning viðbragðslistans eftir sérþekkingu var önnur. Fækkað hafði í öllum flokkum (mest í flokki viðskipta- og hagfræðinga, úr 17% í 8%) nema í flokki verkfræðinga og tækni- í íslensku friðargæslunni „Stefnumótun friðargæslunnar hefur nánast einvörðungu verið í höndum karla. Verkefnaval hefur á síðustu misserum leitt til hlutfallslegrar fækkunar kvenna bæði á viðbragðslistanum og meðal útsendra friðargæsluliða og ekki verið nægilega litið til áhrifa verkefnanna á jafnrétti kynj- anna í viðkomandi landi. Loks vantar alla jafnréttisfræðslu fyrir friðargæsluliða og þá sem annast stefnumótun friðargæslunnar.“ Mynd til vinstri: íslenska friðargæslan tekur við yfirstórn Kabúl flugvallar, júni 2004. Ljósmynd: Nína Björk Jónsdóttir. 50 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit UNIFEM

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.