Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 72

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 72
Veikleikar Ríkustu 5% jarðarbúa eru með 114-faldar tekjur þeirra 5% sem fátækastir eru. Þeim sem búa við örbirgð í Afríku fjölgaði úr 242 milljónum í 300 milljónir á tíunda áratugnum. Í Mið- og Austur-Evrópu lækkuðu tekjur á íbúa um 2,4% á ári á tíunda áratugnum og um 0,3% í Afríku. 20 lönd í Afríku – þar sem meira en helmingur íbúa álfunn- ar býr – eru fátækari nú en þau voru árið 1990. 23 lönd eru fátækari en þau voru árið 1975. Hlutfall bólusettra barna í Afríku hefur farið lækkandi og er nú innan við 50%. Verði ekki lögð aukin áhersla á baráttuna gegn hungri mun það taka a.m.k. 130 ár að útrýma hungri í heiminum. Í lok árs 2000 höfðu allt að 22 milljónir manna dáið úr al- næmi, 13 milljón börn höfðu misst móður eða báða foreldra vegna alnæmis. Alls 40 milljón íbúar jarðar eru smitaðir af alnæmisveirunni, þar af eru 90% í þróunarlöndum og 75% í Afríku. Dag hvern deyja yfir 30.000 börn úr sjúkdómum sem ekki eru banvænir. 100 milljónir kvenna væru nú á lífi ef ekki tíðkuðust barna- morð, vanræksla og fóstureyðingar byggðar á kynjavali. Á hverju ári deyja fleiri en 500.000 konur af völdum þung- unar eða vegna barnsburðar. 113 milljónir barna á skólaaldri ganga ekki í skóla, 97% þeirra búa í þróunarlöndum. 93 lönd – þar sem 39% íbúa jarðar búa – hafa ekki tiltækar upplýsingar um grunnskólagöngu. 60% barna í heiminum sem ekki njóta skólagöngu eru stúlkur. Af 854 milljónum manna sem eru ólæsir og óskrifandi eru 544 milljónir konur. Framfarir Hlutfall jarðarbúa sem býr við örbirgð hefur lækkað úr 29% árið 1990 í 23% árið 1999. Á tíunda áratugnum minnkaði örbirgð um helming í Austur- Asíu og Kyrrahafslöndunum og um 7% í Suður-Asíu. Í Austur-Asíu og í Kyrrahafslöndum var 5,7% hagvöxtur á íbúa á tíunda áratugnum og 3,3% í Suður-Asíu. Síðan 1990 hafa 800 milljón jarðarbúa fengið betri aðgang að vatnsbólum og 750 milljónir að hreinlætisaðstöðu. 57 ríki – þar sem helmingur jarðarbúa býr – hafa dregið úr hungri um helming, eða munu ná því fyrir árið 2015. Sum þróunarlönd hafa náð árangri í baráttunni gegn al- næmi. Í Úganda lækkaði hlutfall þeirra sem eru smitaðir af alnæmisveirunni úr 14% í 8% á tíunda áratugnum. Á tímabilinu 1970-2000 lækkaði barnadauði í heiminum úr 96 í 56 á hverja 1.000 íbúa. Á tímabilinu 1990-1998 hækkaði hlutfall barna sem ganga í grunnskóla úr 80% í 84%. Í 51 landi – þar sem 41% íbúa jarðar býr – fá öll börn eða því sem næst grunnskólamenntun. Í 90 löndum – með meira en 60% íbúa jarðar – fá drengir og stúlkur að stunda grunnskóla jafnt, eða því takmarki verður náð fyrir 2015. 1 Byggt á Human Development Balance Sheet. Human Development Report 2002. UNDP. 2002. Birt í íslenskri þýðingu með góðfúslegu leyfi utanríkisráðuneytisins. Staða þróunar: Framfarir og veikleikar 1 Ljósmyndir: t.v. Róshildur Jónsdóttir/Laos, t.h. Eyjólfur V. Valtýsson/ Namibía. 73
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.