Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 74

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 74
Flestir eru sammála um að þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun (Millennium Development Goals) marki tímamót hvað varðar einhug ríkja til að minnka fátækt í heim- inum og stuðla að þróun. Markmiðin eru einföld og skýr, hafa ákveðin tímamörk og hafa verið samþykkt af langflestum ríkjum heims. Sameinuðu þjóðirnar og fjölmargar aðrar alþjóð- legar stofnanir, samtök og einstaklingar starfa nú í anda þús- aldarmarkmiðanna, að ógleymdum áhrifum sem þau hafa á stefnumótun í þróunarríkjunum. En hvað segja markmiðin um kynjajafnrétti og réttindi kvenna? Þúsaldaryfirlýsingin og þúsaldarmarkmiðin um þróun, sem samþykkt voru árið 2000, byggjast á þeirri sannfæringu að þróunarstarf eigi að miða að „frelsi frá ótta og frelsi frá skorti“. Í yfirlýsingunni segir að „karlar og konur hafi rétt á að lifa og ala upp börn sín í virðingu, án þess að þurfa að líða hungur eða ótta við að vera beitt ofbeldi, kúgun eða óréttlæti“. Ennfremur hvetur yfirlýsingin ríki til að „efla kynjajafnrétti og auka frumkvæðisrétt kvenna sem árangursríka leið til að sigrast á fátækt, hungursneyð, sjúkdómum og stuðla að sjálfbærri þróun“. Margir hafa hins vegar bent á að þótt markmiðin marki tímamót hvað skýra stefnumótun um þróun og fátækt varðar taki þau ekki nægilega á réttindum kvenna og kynjajafnrétti. Mikilvægar áherslur skortir í markmiðunum Nýlegar skýrslur UNDP (Millennium Development Goals: National Reports: A Look Through A Gender Lens), Alþjóðabankans (Gender and Millennium Development Goals) og UNIFEM (Progress of the World’s Women, 2003) hafa sýnt fram á mikilvægi þess að hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi ef þúsaldarmarkmiðin eiga að nást. Skýrslurnar hafa hins vegar bent á alvarlega vankanta hvað viðkemur kynjasjónarmiðum í gerð og framkvæmd markmiðanna. Árið 2003 skipulagði UNIFEM í samvinnu við tengslanet sérstofnana SÞ um konur og kynjajafnrétti (UN Interagency Network on Women and Gender Equality), Tengslanet OECD/DAC um kynjajafnrétti (OECD/DAC Network on Gender Equality) og fjölþjóðavinnuhóp Alþjóðabankans um kynjamál, fimm vikna rafræna ráðstefnu um kynja- mál og þúsaldarmarkmiðin um þróun. Þar tóku þátt yfir 400 jafnréttis- málafulltrúar frá sérstofnunum SÞ, fulltrúar stofnana og ríkisstjórna sem veita tvíhliða þróunaraðstoð, fulltrúar banka og félagasamtaka sem og óháðir fræðimenn og sérfræðingar um þróunarmál og kynjajafnrétti. Niðurstaða ráðstefnunnar var að þrátt fyrir að fjölmargar ríkisstjórnir hafi áréttað mikilvægi þess að viðurkenna kvennréttindi sem mannréttindi á vettvangi SÞ skili það sér takmarkað í þúsaldaryfirlýsingunni og þús- aldarmarkmiðunum um þróun. Í markmiðunum skortir til að mynda áherslur á rétt kvenna til kynheilbrigðis, sæmandi vinnustaðla (decent work standards) fyrir karla og konur, auk þess sem hvergi er minnst á ofbeldi gegn konum. Þá eru mælistikur og markmið sem miða að kynjajafnrétti heldur af skornum skammti í þúsaldarmarkmiðunum, að mati þessara sérfræðinga. Þetta gerir að verkum að erfitt er að fylgja markmiðunum eftir í anda kynjajafnréttis. Þetta á líka við um markmið 3, um jafnrétti kynjanna og frumkvæðisrétt kvenna, þar sem orðalagið er almennt og erfitt að mæla árangur á þessu sviði. Skýrsla UNIFEM frá árinu 2003 um þúsaldarmarkmiðin segir þau ekki leggja til mælistiku yfir þær hindranir sem konur þurfa að líða í daglegu lífi. Hér er átt við hluti eins og ólaunaða vinnu á heimilinu og utan þess, virðingarleysi gagnvart konum og ofbeldi gegn konum jafnt á heimilinu sem utan þess, á tímum stríðs og friðar. Markmiðin meðhöndluð á kynblindan hátt Tölfræðingar hjá SÞ leita nú leiða til að finna út hvernig mæla megi árangur í átt að kynjajafnrétti og frumkvæðisrétt kvenna. Að auki eru að störfum samstarfshópar sem leita leiða til að samþætta kynjasjónarmið hverju markmiði fyrir sig. Þrátt fyrir störf fyrrnefndra starfshópa er algengt að markmiðin séu meðhöndluð á kynblindan hátt. Sérfræðingur á rafrænu ráðstefnunni komst svo að orði: „Við höfum orðið vitni að því að kynjasjónarmið hafa orðið undir í starfi vinnuhópa um þúsaldarmarkmiðin, skýrslum um framkvæmd verkefna í anda þúsaldarmarkmiðanna um þróun og Þúsaldarmarkmiðin, konur og stúlkur „Hvers vegna ættu kvenréttindasamtök að veita þúsaldarmarkmiðunum um þróun athygli þegar þörfin á því að taka á málum varðandi rétt kvenna til kynheilbrigðis, ofbeldi gegn konum, hernaðarhyggju, ofstæki, fátækt og ójafnrétti fer vaxandi?“ Noeleen Heyzer, á fundi Alþjóðabankans um kynjajafnrétti og þúsaldarmarkmiðin, 2003.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.