Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Page 89
Hulda Biering er verkefnisstjóri félags- og fullorðnisfræslu-
verkefna ÞSSÍ í Mósambík. Við tókum hana tali um störf hennar
og helstu áherslur í jafnréttismálum
Árið 2000 var undirritaður samningur milli ÞSSÍ og kvenna og félags-
málaráðuneytisins í Mósambík. Samningurinn er til fjögurra ára og felur í
sér að ÞSSÍ leggi til tæknilega ráðgjöf og fjármagn til uppbyggingar ráðu-
neytisins og þjálfunar starfsfólks. Einnig er í samningnum ákvæði um að
ÞSSÍ styðji við ákveðin verkefni ráðuneytisins. Hulda Biering fer með
verkefnisstjórn félags- og fullorðnisfræðsluverkefna ÞSSÍ og er sérlegur
ráðgjafi kvenna- og félagsmálaráðuneytisins í Mósambík.
„Starf mitt er fólgið í því að halda utan um verkefni sem eru í gangi
hverju sinni meðfram því að veita tæknilega ráðgjöf. Þá undirbý ég
einnig ný verkefni og fylgi þeim eftir. Starfið er í stöðugri þróun og tekur
breytingum frá ári til árs. Þegar ég kom fyrst hingað í september 2000 var
verið að setja á laggirnar nýja deild innan ráðuneytisins. Sú deild heitir
kvennamáladeild eða National Directorate for Women. Samhliða því
breyttist nafn ráðuneytisins úr félagsmálaráðuneyti í kvenna- og félags-
málaráðuneytið í Mósambík.“
„Á þessum tíma voru starfsmennirnir fjórir talsins og skrifstofan í
óviðunandi bráðabirgðahúsnæði. Það kom í hlut þeirra að mynda tvær
deildir, annars vegar fjölskyldudeild og hins vegar þróunardeild. Til að
byrja með var þetta afar veikt apparat en fljótlega upp úr áramótunum
2000-2001 fluttu þau í annað og skárra húsnæði. Starfsmennirnir voru þá
orðnir 13 talsins og búið að ráða deildarstjóra sem er afar sterk kona.“
„Starfsmenn deildanna hafa ólíkan bakgrunn. Þetta er sambland af há-
menntuðu fólki og fólki sem hafði eingöngu grunnmenntun, en sterk
tengsl við grasrótina. Byrja þurfti á að byggja skrifstofuna upp frá grunni
og mín aðstoð fólst á þeim tíma í að hanna starfslýsingu hvers og eins,
markmiðssetja deildirnar og búa skrifstofuna húsgögnum og tækjum.“
„Í dag er kvennamáladeildin í góðu húsnæði og þokkalega búin
Sérlegur ráðgjafi í Mósambík tækjum. Þar halda deildirnar tvær, fjölskyldudeildin og þróunardeildin,
úti starfsemi auk þess sem jafnréttisráð landsins er þar til húsa. Alls starfa
þar rúmlega 30 manns.“
„Markmið fjölskyldudeildarinnar er að samhæfa stefnumótun og verk-
efnaáætlanir tengdar fjölskyldumálum og málum tengdum konum sem
eiga sérstaklega undir högg að sækja. Leitast er við að tryggja árangursrík
afskipti yfirvalda og félagasamtaka af málaflokknum.“
„Markmið þróunardeildarinnar er hins vegar að hafa yfirumsjón með
og framfylgja opinberri stefnu á sviði kvenna- og kynjamálefna. Þá á
deildin að þjóna ráðgjafar- og samhæfingarhlutverki við gerð og fram-
kvæmd þróunarverkefna.“
„Hlutverk jafnréttisráðsins er svo m.a. að fylgjast með framkvæmd
opinberrar stefnu sem snertir stöðu kvenna og leggja fram tillögur til úr-
bóta.“ Ljóst er að skuldbingingar stjórnvalda í Mósambík eru víðtækar
og hefur starfsfólk ráðuneytisins ærið verkefni fyrir höndum. Námskeiða-
hald ÞSSÍ þjónar mikilvægu hlutverki í að ná fram þessum markmiðum,
en ÞSSÍ hefur boðið upp á enskunámskeið, tölvu- og bókhaldsnámskeið
og námskeið í skrifstofuhaldi fyrir starfsmenn ráðuneytisins. Eitt af
verkefnum Huldu hefur verið að halda utan um þessi námskeið.
„Auk þessara námskeiða höfum við unnið með samtökum ekkna og
einstæðra mæðra í hverfi númer 5 í Maputo, og þar er nú kominn vísir
að sterkri fullorðinsfræðslumiðstöð.“
Hulda segir lítið um samstarf við alþjóðlegar stofnanir á sviði jafnréttis-
mála. „Við erum hins vegar í samstarfi við ráðuneyti, borgina og hverfi
númer 3 við að styrkja fiskverkakonur og landbúnaðarverkamenn við að
koma afurðum í góðu ástandi á markaðinn til að geta fengið betra verð
fyrir aflann.“
Varðandi samstarf við UNIFEM segir Hulda slíkt ekki hafa verið
fyrirhugað, en þó tengdust störf ÞSSÍ og UNIFEM nokkuð. „UNIFEM
hefur starfað hér með Womens Forum, þá aðallega tengt fullorðins-
fræðslu. Við höfum ekki unnið beint með þeim, en samtökin Womens
Forum hafa tekið virkan þátt í uppbygginu og markmiðssetningu kvenna-
málaráðuneytisins og á þann hátt hafa störf okkar tengst.“
����������������������
����������
���������
����������������
�����
���������������������� ������ ��������
�����������������������������������
������������������������������������
������������ ������ ��� ���� ������ �����
��� �������� ������ ������ ������� ��
�����������������������������������������
����������������������������������
�����������������������������������
������� ���� ������� ������ ������
����� ����� ������ �������� ������
������� ��������� �������������������
������� ���� ������ ����� ��� ������
���������� ���� ������ �����
����������������������
���������������� �������������������������
���������������������������
��
�
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
�
��
�
�
�
�
�
�
�
�
��
��
��
�
��
�
�
�
��
�
�
�
�
��
�
�
��
�
�
�
88 89