Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 92
sem haldin var í febrúar 2003 af dóms- og félagsmálaráðuneyti. Ísland
hefur einnig beitt sér á virkan hátt í þessum málaflokki á vettvangi ÖSE
en baráttan gegn mansali er eitt af þeim verkefnum sem stofnunin hefur
á síðustu árum markvisst unnið að því að efla. Meðal þeirra verkefna
sem íslensk stjórnvöld hafa stutt á vettvangi stofnunarinnar er stofnun
stöðu innlends sérfræðings, sem hefur það hlutverk að vinna gegn
mansali, hjá sendinefnd ÖSE í Bosníu og Hersegóvínu. Ennfremur stóð
utanríkisráðuneytið í samvinnu við dómsmálaráðuneyti fyrir ráðstefnu í
mars sem bar heitið „Alþjóðleg barátta gegn mansali“.
Upplýsingatækni og stafræn gjá hafa verið töluvert til umfjöllunnar
á vettvangi SÞ síðustu ár. Bilið milli þróunarlanda og vestrænna ríkja í
tölvuþróun er mikið. Þá blasir við að konur hafa takmarkaðri aðgang
að upplýsingatækni en karlar. „Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna
lagði áherslu á konur og upplýsingatækni fyrir heimsþingið um upplýs-
ingasamfélagið (World Summit for Information Society) sem haldið
var í Genf í desember í fyrra. Í framhaldi af umræðunni innan kvenna-
nefndarinnar ákváðu fulltrúar Norðurlandanna í nefndinni að nauð-
synlegt væri að vekja athygli samstarfsmanna sinna sem sækja áttu þingið
á mikilvægi þess að lögð yrði sérstök áhersla á jafnréttismál. Markmiðið
var að kynjasjónarmið kæmu fram í lokaskjali ráðstefnunnar. Árangurinn
var kannski ekki mikill, en þó var vakin athygli á þessu máli. Vonandi
verður árangurinn meiri í Túnis 2005, þegar næsta heimsþing um upplýs-
ingasamfélagið verður haldið,“ segir Hanna Sigríður að lokum.
beggja kynja og svona mætti áfram telja. Auk þess lögðum við áherslu
á mikilvægi þess að báðir foreldrar njóti fræðslu um foreldrahlutverkið
og að karlar hafi ekki síður en konur umönnunarhlutverki að gegna
í sinni víðtækustu mynd. Þar er átt við umönnun annarra náinna
fjölskyldumeðlima en barna, svo sem aldraða foreldra, þegar þeir þurfa
sérstaka aðstoð, umsjá heimilis og fleira, sem oftar vill falla í hlut kvenna
en karla. Í öllu þessu er að sjálfsögðu mikilvægt að hvetja fjölmiðlafólk til
að setja upp kynjagleraugun þegar fjallað er um málefni sem þessi.“
Á fundinum í mars tóku fulltrúar íslenskra stjórnvalda einnig þátt í
umræðu sem fram fór um konur, stríð og friðargæslu. Meðal annars
lögðu íslensku fulltrúarnir mikla áherslu á að í lokaskjali fundarins yrði
sérstakt ákvæði þar sem mælst yrði til að aðalritari SÞ gerði niðurstöður
kvennanefndarinnar vel kunnar öllum þeim sem að öryggis- og friðar-
málum koma. „Þar á meðal háttsettri nefnd (high level panel) sem fer
með alþjóðleg öryggismál og endurbætur á alþjóðakerfinu,“ segir Hanna
Sigríður.
Mansal og stafræn gjá
Að sögn Ólafar Hrefnu Kristjánsdóttur eru Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu (ÖSE) og Norðurlandaráð mikilvægur samstarfsvettvangur á
sviði mansalsmála. „Á síðasta ári stóðu jafnréttis- og dómsmálaráðherrar
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja fyrir átaki sem miðaði að því að sporna
gegn verslun með konur. Hluti af þessu átaki var velheppnuð ráðstefna
Upplýsingatækni og „stafræn gjá“ hafa verið töluvert til umfjöllunnar á vettvangi SÞ
síðustu ár. Bilið milli þróunarlanda og vestrænna ríkja í tölvuþróun er mikið. Þá blasir
við að konur hafa takmarkaðri aðgang að upplýsingatækni en karlar.