Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 95

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 95
Vott munnvik E. B., við munn hans loddi líka eitthvað af kossekta varalitnum hennar, hragðið af enni hennar, brjóstum hennar, handarkrikum, bragðið af líkama hennar þöktum kossum, líka rödd hennar sem hljómaði eins og hnéfiðla og slagharpa í senn, ef til vill líka orðin sem hún bjargaði sér á yfir í hvunndagslegt snakk, orðin sem kunngerðu lífið með dauða flugmannsins sem hrapaði. En snerting hennar! Við liana varð að halda sig, hana þurfti einhvern veginn að sía frá, slíta hana undan vængjum svananna, undan fiðurflóðinu, til þess að hann ekki aðeins kæmi til þessarar borgar heldur þyrfti aldrei að skiljast við hana af því að hún varðveitti snertingu hennar. Nú og, voru þau aldrei skilin hvort frá öðru? Tók ekki þessi saga líka enda? Eins og allar sögur taka einhvern tíma enda? Maður gal hara ekki skilist hvort við annað í Maríulaugum. Þar er í mesta lagi hægt að stíga upp í lestina með það í liuga að hittast aftur seinna. Og lestin gat heldur ekki flutt þann eitthvert til baka sem heppnast hafði eftir þrjátíu ár að komast til borgarinnar. Hafi snerling hinna ekki flysjað snertingu E. B. af húð hans, ilmur hinna, svallteiti með mörgum konum sem líktust hver annarri og báru keini af tjarnarfroskum. Auðvitað varð að halda hlutunum aðskildum, því alls engin mannleg kynni gátu orðið svo merkingarsnauð að þeim væri ekki ætlað annað en verða gleypt af nýjunt kynnum. Engin einustu kynni áttu rétt á að týnast í öðrum kynnum, allra síst þegar ymur frá hnéfiðlu berst inn í Bach-lokakafiann þeirra. Og það breytir heldur engu að hljómsveitin á barnum lék Je t'attandrais. Komdu, þér finnst þó líka gaman að dansa tangó. Tölum heldur saman. í barnæsku minni... Ég veit, greip E. B. fram í fyrir honum, í barnæsku varstu hræddur við fullorðna og foreldrar þínir voru ósanngjörn við þig. Þannig var það ekki. Dönsum. í menntaskólanum talaði sögukennarinn um Hasdrúbal og Hannibal. Ég veit ekki hver Ilasdrúbal var og ég veit heldur ekkert um Hannibal. Dönsum. í húsinu okkar bjó stúlka, ég var sautján og hún fnnmtán, við fórum saman með lyftunni og við kysstumst. Ég veit og þið hélduð að þið munduð unnast að eilífu. Dönsum! Af hverju getum við ekki talað saman? Gott, við skulum tala saman. Ég á tveggja ára son. Með honmn? Auðvitað með honum. Ég var honurn aldrei ótrú, bara með þér ef þú átt við það. Það er gott. Þá get ég vonað að þú verðir mér aldrei ótrú nema ég beinlínis hrapi. Þú ert ósmekklegur. Dönsum. Hljómsveitin lék Je t'attandrais og þau dönsuðu, dönsuðu til þess að gleyma tveggja ára syninum, ákvæðunum um eftirlaunin háu sem hvöttu til aðgæslu, til þess að gleyma því að sögum er eðlislægt að taka enda. í dansinum var E. B. jafn þögul og í rúminu. Þú segir svo fátt, byrjaði H. Til hvers að gjannna! hreytti E. B. í hann. Að gjannna er eins og þegar maður sigar geltandi fjárhundi inn í friðsama hjörð, hugsanirnar fara óðara í bendu, hendast út í buskann, og maður hefur ekki vald á líkamanum. Hvers vegna varstu lionum ótrú einmitt með mér? Hverjum? Þessum fiugmanni sem hrapaði? Æ, honum? Ég lofaði hvorki honum né þér neinu. Þú ert líka eins og aðrir karlmenn, vilt fá að vita allt í einu, fortíð og framtíð, en ert ekki fær um að takast á við nútíðina. Ert þú það? Nú, þarna sérðu. Við erum að dansa. Og þú ert aftur farinn út af sporinu. Þetta er ekki tangó heldur enskur vals. II. tók sveiílu til þess að líða aftur inn í rétta hrynjandi en tónlistin þagnaði við þessa snöggu hreyfingu og herbergisloftið hvolfdist yfir hann. Til baka til Maríulauga, hughreysti hann áJffiayáá - lesiðmilli lína 95
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.