Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 107
það sem þú hefur gefið mér hefur enginn boðið mér fyrr — dýrmætustu
forréttindi háskólaborgara við Masseyskóla. En heyrðu mig nú — viltu ekki
þiggja eitthvað fyrir skólans hönd þótt þú viljir ekkert sjálfur? Hvað um digran
sjóð? Háskólamenn eru alltaf fjárþurfi. Nefndu bara upphæðina!“
En andskotinn hafði vanmetið mig. Ég veit hvað gerir háskóla að háskóla
og það er ekki fé — þótt peningar séu mikill yndisauki. Nú var það ég sem
mændi á altarisbríkina. Yst til hægri í þriðju röð er mynd sem fáir kannast við.
Hún er tákn sem er svo sérstakt, svo djúpstæðrar merkingar og víðtækrar
notkunar að jafnvel prófessor Marshall McLuhan hefur ekki tekist að splundra
því. Það er heilög Soffia, hin æðsta viska.
Andskotinn vissi á hvað ég var að horfa.
„Það máttu eiga,“ sagði hann, „þú kannt svo sannarlega að biðja um hlutina.“
„En það er nú handa skólanum," svaraði ég.
Hann andvarpaði. „Allt í lagi,“ sagði hann, „en þú verður að gera þér ljóst
að ég hef einungis helminginn af góssinu sem þú biður um — hina æðstu
visku — á mínu valdi. Hann skaltu fá handa skólanum og það er rausnarleg
gjöf. Ég get ekkert sagt um hvenær þú færð hinn helminginn.“
„Það get ég,“ svaraði ég, „ég býst við honum um leið og þú ferð heim um
jólin í allra fyrsta sinn.“
Hann hló í síðasta skipti, lagði dýrlegu vængina saman og hvarf.
Ég hélt í þungum þönkum til skrifstofu minnar til þess að merkja við enn
einn daginn sem útheimtir að fáninn okkar sé dreginn að hún og
Katrínarklukkunni hringt tuttugu og einu sinni — ef til vill um alla eilífð.
Háskólans hafði enn einu sinni verið vitjað — við aðstæður sem ég hefði hvorki
getað séð fyrir né komið í veg fyrir — ekki af draugi beinlínis, því hann var
greinilega af tilverusviði sem var óumræðilega kraflmeira og voldugra en
það sem við þekkjum — heldur anda af hæstu stigum. Ég fann til með
jafnréttissinnunum sem vilja meina okkur kynni af öðrum en draugum úr
smáborgarastétt. Ég sá að dansleiknum var lokið og jólahaldið komið vel á
skrið.
Ólöf Eldjárn íslenskaði.
á ~ LESIÐ MILU LÍNA
107