Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 109

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 109
pest-Tost, Leaven of Malice og A Mixture of Frailties), The Deptford Trilogy (Fijlh Business, The Manticore og World of Wonders) og The Cornish Trilogy (The fiebel Angels, llliat’s Bred in the Bone og The Lyre of Orpheus). Li Fu-yen, höfundur sögunnar um Chang Lao, var kínverskur og uppi snemma á níundu öld á seinni hluta Tang-tímabilsins. Ritlist er almennt talin hafa risið hæst í Iíína á á tímabilum Tang- og Sung-ættarveldanna, 618—907 og 960—1280 e. Kr. Sigitas Geda er meðal fremstu skálda Litháens. Hann er fæddur 1943 í Pateriai í nágrenni Veisiejai en býr nú í Vilnius. Hann gekk í gagnfræðaskóla í Veisiejai, lærði síðar sögu og bókmenntir við háskólann í Vilnius. Ljóð hans eru undir sterkum áhrifum af austurlenskri dulhyggju, þýskum miðalda- fræðum og nýplatonisma. Hann spannar yfir ótrúlega vítt svið, yrkir jöfnum höndum barnavísur, óperu- og söngleikjatexta, allt litað af fornum goðsögum, litháískum ævintýrum og súrrealisma. Um þýðingu sína segir Vilborg Dagbjartsdóttir: „Þýðingin er þannig tilkomin að fyrir tveimur árum bauð Reykjavíkurborg hingað listamönnum frá baltísku löndunum, skáldum og tónlistamönnum. Sigitas Geda var meðal skáldanna sem boðið var, þótt hann síðar sæi sér ekki fært að koma. Ekkert af ljóðum hans var til á íslensku og aðeins einn íslendingur hafði fengist við að þýða úr litháísku, Jörundur Hilmarsson, ágætur fræðimaður og þýðandi, en hann var fársjúkur og lést nokkrum mánuðum síðar. Ég lét telja mig á að reyna að þýða nokkur ljóð Sigitas Geda og studdist við norskar, sænskar, danskar og enskar þýðingar sem voru ljósritaðar upp úr safnritum og tímaritum, heila bók eftir hann hef ég ekki séð og kann ekkert í máli hans. Þetta er ófullburða tilraun en ég lagði mig alia fram enda hreifst ég mjög af ljóðum skáldsins.“ Martin A. Hansen (1909—55) var einn snjallasti og áhrifamesti rithöfundur Dana efiir seinni heimsstyrjöld. Hann var bóndasonur og kennari að mennt, en hóf að semja skáldverk hálfþrítugur. Fyrstu skáldsögur hansTVu opgiver han og Kolonien (1935—37) fjölluðu um félagslegar aðstæður á æskuárum höfundar. Næstu tvö skáldverk hans Jonatans Bejse (1941) og Lykkelige Kristojfer (1945) voru söguleg og skrifuð í allt öðrum stfl. Næst kom smásagnasafnið Tornebusken (1946) með þremur sögum sem þóttu miklum tíðindum sæta. Sama var að segja um smásagnasafnið^g-er/jonen (1947) sem ýmsum þótti vera hans besta verk. Síðasta skáldsaga hans var Logneren (1950) sem upphafiega var samin fyrir útvarp og hefur komið út á íslensku. Önnur smásagnasöfn hans voru Paradisceblerne (1953),Konkyljen (1955), Midsommer- krans (1959) og Haslgildet (1960). Martin A. Hansen birti líka ritgerðasöfnin Tanker i en skorsten (1948) og Leviathan (1950). Ennfremur hið merka sögulega verk Orm og Tyr (1952) og nokkrar ferðabækur, þeirra á meðal Bejse paa Island (1953) sem komið hefur út á íslensku. Fjórar smásögur hans birtust í safninu Syndin ogfleiri sögur (1964). á - LESIÐ MILLI LÍNA 109
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.