Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 16
Þjóðmál VETUR 2011 15
þar sem kemur fram að hann þakki þeim
„vinsamlega heimboð annað kvöld“ . Sigurð ur
segist koma „með ánægju, ef guð lofar mjer
að lifa næstu jóla nótt“ .19 Indriði Einarsson
man einmitt vel eftir Sigurði í jólaboði hjá
Ingi björgu og Jóni . Indriði nefnir einnig að
helstu gestir hafi verið kaupmennirnir Ásgeir
Ásgeirsson á Ísafirði, Hjálmar Johnsen,
kaupmaður í Flatey, og Markús Snæbjörnsson
á Patreksfirði, Magdalena Zoëga, fröken Sig-
ríður Helgason sem var matráðs kona á Friðriks-
spítalanum, Þorlákur og Tryggvi Gunnars son .
Af ungum mönnum sóttu t .d . Björn Jónsson,
síðar ritstjóri, og Kristján Jónsson, síðar
háyfirdómari, jólaveislurnar . Veislurnar hófust
klukkan sjö og tóku hjónin fagnandi á móti
gestum sínum . Samræðurnar snerust fyrst um
fréttir að heiman og fljótlega var sest til borðs .
Ingibjörg stýrði því hvernig sætaskipan var við
borðið . Undir borðum var talað um heima og
geima, ekki síst stjórnmál í Danmörku . Þá var
komið að spilamennskunni sem Ingibjörgu
hefur greinilega þótt mjög skemmtileg .
Spilaður var „goði“ . Lýsir Indriði leiknum
með eftirfarandi hætti: „Þegar að því kom, að
einhver ekki gat greitt, það sem honum bar,
þá fór hann á sveitina, hjá þeim sem hann átti
að greiða . Þótti það miklu varða, hjá hverjum
maður komst á sveitina . Einkum ljet húsfreyja
sjer það miklu skifta, og gerði sjer mannamun
í leiknum .“20 Þessi saga sýnir keppnisandann
sem bjó í brjósti Ingibjargar . Að spilinu loknu
var svo boðið upp á drykk og setið að spjalli
fram undir miðnætti .
Tilvísanir:
JS.1 . 142 a, fol . Eiríkur Magnússon til Jóns Sigurðssonar, London
19 . desember 1864 .
ÞÍ2 . . E . 10 . 20 . Minnismiði með rithönd Ingibjargar, á hann er
skrifuð dagsetningin 20 . desember 1864, með rithönd Jóns .
ÞÍ3 . . E . 10 . 20 . Vínkarafla keypt hjá G. F. Bloch.
Lbs4 . . 526 fol . Þóra Pálsdóttir til Ingibjargar Jensdóttur,
Kaupmannahöfn 28 . s 1881 .
JS5 . . 141 a, fol . Þorlákur Ó . Johnsen til Ingibjargar Einarsdóttur,
Glasgow 8 . janúar 1867 .
ÞÍ6 . . E . 10 . 12 . Carl Sävre til Jóns Sigurðssonar, Kaupmannahöfn
28 . desember 1852 . Boðin í middag „om fredag el . Nyarsaftan“ .
Sjá einnig í ÞÍ . E . 10 . 14 . George Stephens til Jóns Sigurðssonar .
JS7 . 142 a fol . Eiríkur Magnússon til Jóns Sigurðssonar, London
19 . desember 1864 .
Lbs. 8 . 2192 b, 4to . Ingibjörg Einarsdóttir til Sigríðar Magnússon,
Kaupmannahöfn 9 . janúar 1870 . ÞÍ . E . 10 . 10 . Ólafur E .
Johnsen til Jóns Sigurðssonar, Stað 8 . janúar 1857 . „Þá fjörutíu
og átta er, ordin, aldurs ára, eg ástkjæri ætla þér, ord fáein ad
pára; og er þá sjalfsagt fyrst að þakka þér fyrir þitt stutta en þó all
góða bréf af 30 . sept f . á . meðtekið kl 9 á gamlárskvöld; gladdi
það mig að heyra þína og þinna vellíðan .“
ÞÍ9 . . E . 10 . 14 . Adolph Strunk til Jóns Sigurðssonar, 29 . desember
1849 . Nýársóskir í lok bréfs: „Af ganske Hjerte önsker jeg Dem
og Deres Frue et glædeligt Nytaar!” ÞÍ. E . 10 . 4 . Guðbrandur
Vigfússon, nýárskveðja 1877 á fallegu korti .
Lbs. 10 . 2192 b, 4to . Ingibjörg Einarsdóttir til Sigríðar Magnússon,
Kaupmannahöfn 9 . janúar 1870 .
Valtýr Stefánsson, „Á jólum hjá Jóni Sigurðssyni . Frásögn 11 .
Indriða Einarssonar“, bls . 12 .
JS.12 . 145 a, fol . Reikningar og kvittanir .
JS13 . . 145 a, fol . Minnismiði Ingibjargar: „giæs hiera kaka kierti
rioma miol hrisgr vin - 29/12“ .
Sjá t .d .: Valtýr Stefánsson, „Á jólum hjá Jóni Sigurðssyni . 14 .
Frásögn Indriða Einarssonar“, bls . 12–16 .
Þorkell Jóhannesson, 15 . Tryggvi Gunnarsson I, bls . 246–247 .
Þorvaldur Thoroddsen, 16 . Minningabók I, bls . 126 .
Valtýr Stefánsson, „Gamlar myndir og minningar . Frú Ingibjörg 17 .
Jensdóttir segir frá“, bls . 146 .
ÞÍ.18 . E . 10 . 10 . Matthías Jochumson til Jóns Sigurðssonar,
Kaupmannahöfn 23 . desember 1871 . Getur ekki þekkst
heimboð Jóns og Ingibjargar á aðfangadagskvöld . Hann vill
koma á jóladaginn eða þá um kvöldið ef hægt er . Matthías segir:
„hjá ykkur vildi jeg helzt hafa verið það kvöld .“ ÞÍ . E . 10 . 9 .
Magnús Stephensen til Jóns Sigurðssonar, Kaupmannahöfn 27 .
desember 1869 .
ÞÍ19 . . E . 10 . 13 . Sigurður L . Jónasson til Jóns Sigurðssonar,
Kaupmannahöfn 23 . desember 1875 .
Valtýr Stefánsson, „Á jólum hjá Jóni Sigurðssyni . Frásögn 20 .
Indriða Einarssonar“, bls . 12–16 .