Þjóðmál - 01.12.2011, Page 44
Þjóðmál VETUR 2011 43
eru nú komin í . Þá var óhugsandi að
þjóð í heimsveldi bresku krúnunnar yrði
leyft að fara í nauðsynlegt ríkisgjaldþrot .
Þvinguð björgunaraðgerð, sem bjarga átti
mannorði breska heimsveldisins, kostaði
hins vegar Nýfundnaland tilveru sína . Það
hætti að vera til sem ríki .
Firrt umræða
á Nýfundnalands-nótum
Til marks um þá umræðu sem fram fer á Íslandi þessi árin og sem náð hefur
fótfestu í þjóðmálaumræðunni í kjölfar
stríðs þátttöku og ævintýramennsku íslenska
bankageirans, er gagnlegt að rifja upp það
liðna . Í tímaritinu Vísbendingu 11 . ágúst
1997 birtist athyglisverð grein eftir íslenskan
hagfræðing, sem nokkrum árum síðar varð
yfirmaður greiningardeildar Kaupþings
banka . Í greininni kom eftirfarandi fram:
Kanada hefur frá 1987 verið með stað-
fasta peningastefnu og verðbólgu á svipuðu
róli og gerist í Bandaríkjunum, en það gildir
einu . Landið er lítið og fylgdi áður óstöðugri
gengis stefnu og á gjaldeyrismarkaði er gjald-
miðli þess aldrei treyst, sama hversu góðri
efnah ags stjórn er fylgt . Kanadamenn greiða nú
um 1 % hærri í vexti en Bandaríkjamenn, sem
er e .k . aukaálag fyrir þann munað að slá sína
eigin mynt . Þannig er einungis sá ávinningur
sem felst í lægri vöxtum umtalsverður fyrir
utan það hagræði að fá gjaldmiðill sem nýt-
ur alþjóðlegrar viðurkenningar .
Tíu árum síðar eru Kaupþing, Landsbanki,
Glitnir, Baugur og allar Groups horfin,
evra Evrópusambandsins komin í upplausn
og Kanadadalur álitinn vera ein besta mynt
veraldar . Getur firringin orðið meiri? Ég
leyfi mér að efast . Alltaf má fyrirgefa ungum
og óreyndum hagfræðingum, svo lengi sem
þeir þroskast, ráða ekki neinu, ráðleggja
ekki stjórnmálamönnum og eru ekki í
pólitík . Litla myntin frá Kanada, sem var
svo lítil að hún átti ekki að geta staðið
ein, er orðin skínandi borg á hæstu hæð .
Kletturinn margumtalaði í hafi forystu
Alþýðusambands Íslands ásamt forystu
Samfylkingar og Vinstri grænna, evran, er
komin í upplausn . Það kann að vera að
hún sé að hverfa af yfirborði jarðar . Eftir
standa íslenska krónan sem bjargaði Íslandi
í gegnum bankahrunið og þessi of litli
Kanadadalur vestanhafs . Án fullveldis- og
sjálfstæðiskrónu Íslands hefðu neyðarlögin
aldrei getað orðið til og lýðveldi okkar
væri orðið Nýfundnaland . Við værum
búin að vera, en gengið væri hins vegar
og hugsanlega allhátt, engum til gagns en
öllum til ógagns .
Enginn hefur né getur sýnt fram á að
íslenska krónan sé í eðli sínu gölluð mynt .
Reyndar er íslenska krónan í eðli sínu hin
fullkomna mynt . Nú þarf enginn að efast
lengur um að myntvafningurinn evra, sem
gefin er út af seðlabanka án ríkis, er í eðli sínu
meingölluð mynt, því að löndin, sem nota
hana, geta hvorki látið myntina endurspegla
fullkomleika né ófullkomleika hagkerfa